Innlent

Steinsofnaði í handfærabáti

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Óttast var um afdrif sjómanns, sem var einn á handfærabáti á Sandvíkinni við Reykjanes undir morgun, og báturinn datt út úr sjálfvirka tilkynningakerfinu. Skipverjinn svaraði heldur ekki talstöð eða farsíma. Tilkynningaskyldan kallaði því út björgunarbáta frá Sandgerði og Grindavík, en rétt í þann mund að þeir voru að leggja af stað náðist samband við skipverjann, sem hafði aðeins ætlað að hvíla sig en steinsofnað. Hann er nú glaðvaknaður og byrjaður að skaka á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×