Innlent

Stúdentar vilja áfram frítt í strætó

Hildur Björnsdóttir er formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Hildur Björnsdóttir er formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.

Stúdentaráð Háskóla Íslands harmar áform Strætó bs. um niðurfellingu gjaldfrjálsra strætóferða fyrir námsmenn næsta skólaár. Ráðið tekur undir með Jórunni Frímannsdóttur, stjórnarformanni Strætó, og kallar eftir því að ríkið styðji við rekstur félagsins, til að mynda með niðurfellingu opinberra gjalda.

Stúdentaráð minnir ríki og sveitafélög á mikilvægi þess að bjóða námsmönnum gjaldfrjálsar strætóferðir en langtímamarkmið þess sé minni umferð einkabíla, aukin áhersla á notkun almenningssamgangna meðal ungs fólks, umhverfisvernd og aukinn sparnaður fyrir stúdenta og samfélagið í heild. „Nú er tímabært að líta til framtíðar, ákveða hvers kyns höfuðborg Íslendingar vilja byggja og taka ákvarðanir sem hagnast munu samfélaginu í heild," segir í ályktun Stúdentaráðs Háskóla Íslands.

Þar segir einni að í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar komi fram að vinna skuli áætlun um sjálfbærar samgöngur og stuðla að því að almenningssamgöngur verði stórefldar um land allt.

„Stúdentaráð Háskóla Íslands kallar því eftir viðbrögðum stjórnvalda - við óskum þess að ríkisstjórnin sýni í verki að hún hyggist stórefla almenningssamgöngur og tryggi að áfram verði boðið uppá gjaldfrjálsar strætóferðir næsta skólaár."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×