Ungmenna leitað hátt í þrjú hundruð skipti 26. maí 2009 05:00 Lögreglan að störfum. Leit lögreglu að börnum er misumfangsmikil eftir aðstæðum.
Lögreglan hefur í 253 skipti hafið eftirgrennslan eða leit að ungmennum á aldrinum ellefu til átján ára á tímabilinu frá janúar 2008 til aprílloka 2009. Leitað hefur verið að 145 einstaklingum sem þýðir að 44 hafa komið oftar en einu sinni við sögu í leit lögreglunnar og oftast var leitað þrettán sinnum að sama ungmenninu. Að meðaltali á tímabilinu var því leitað sextán sinnum að börnum í mánuði, eða ríflega annan hvern dag. Miklar sveiflur eru á milli mánaða í fjölda leita og eru þær ekki auðskýrðar að mati lögreglunnar. Geir Jón Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn segist ekki telja að lögreglan fari oftar á stúfana nú en áður fyrr, stundum komi þrjú til fjögur útköll á stuttum tíma og þá verði tilfinning fólks og lögreglu sú að um aukningu sé að ræða en svo komi rólegri tímabil inn á milli. Geir Jón bendir einnig á að mjög misjafnar ástæður liggi á bak við það að ungmenni hverfi. „Það er voðalega erfitt að átta sig á því hverjar ástæðurnar eru, þær geta verið eitthvað sem kemur upp í samskiptum við foreldra eða félaga. En oftar en ekki tengist þetta eitthvað neyslu, krakkarnir hverfa í smátíma, eru kannski lentir í nýjum kunningjahópi. Það getur líka eitthvað komið upp á í umhverfinu sem verður til þess að þau láta sig hverfa.“ Á bak við tölurnar um leit eða eftirgrennslan eftir ungmennum eru mis umfangsmiklar aðgerðir. Það er skráð sem eftirgrennslan hjá lögreglu þegar foreldri hringir inn og biður um að leitað sé að barni sínu. Þegar slík beiðni berst hefur lögreglan ekki formlega leit en lögreglumenn svipast um eftir barninu. Foreldrum er vísað til viðkomandi barnaverndarnefndar og það er hennar að meta hvort nauðsynlegt sé að lögregla hefji formlega leit. Í formlegri leit felst til dæmis að haft er samband við vini og kunningja, tölvusamskipti barnsins skoðuð og svo framvegis. Mjög misjafnt er hvort strax er send tilkynning til fjölmiðla um börn sem verið er að leita að, yfirleitt er það ekki gert strax nema þau séu talin í hættu. „Þetta fer allt eftir forsögunni, það er svo margt sem þarf að meta þegar leit er hafin að börnum,“ segir Geir Jón. Hann segir stundum snúið að leita að krökkum, en tilkynningar til fjölmiðla séu oft mjög árangursríkar, þær skili oft mjög fljótt vísbendingum um hvar barnið sé að finna. sigridur@frettabladid.is
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Fleiri fréttir MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Sjá meira