Innlent

Umferð um íslenskt flugstjórnarsvæði minnkaði

Flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið, sem er eitt hið stærsta í heimi, minnkaði um tíu og hálft prósent fyrstu fjóra mánuði ársins, samanborið við sama tímabil í fyrra. Umferð um svæðið jókst hins vegar um fimm prósent í fyrra. Tekjur Íslendinga vegna þjónustu við flug um svæðið í fyrra námu tveimur og hálfum milljarði króna en ef fer sem horfir verða þær töluvert minni í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×