Elliði Vignisson: Guð forði okkur frá pólitískum ráðningum 26. maí 2009 12:41 Elliði Vignisson segir að hann hafi ekki verið fæddur þegar faðir hans var ráðin til starfa hjá bænum. „
Hann karl faðir minn er búinn að starfa hjá bænum síðan árið 1967, eða tveimur árum áður en ég fæddist. Þannig ég kom nú ekki beint að ráðningunni hans," segir bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, en minnihlutinn hefur gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn fyrir óeðlilegar ráðningar í íþróttamiðstöð bæjarins. Það var eiginmaður Páleyjar Borgþórsdóttur sem er formaður bæjarráðs, sem var ráðinn og svo faðir Elliða sem gegnir starfi umsjónarmanns í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Páll Scheving, oddviti V-listans í Vestmannaeyjum gagnrýndi Elliða og Páleyju fyrir að víkja ekki af fundum bæjarráðs og bæjarstjórnar þegar ráðningarnar voru ræddar. Þessu vísar Elliði alfarið á bug og segir að stjórnmálamenn samþykki ekki ráðningar bæjarstarfsmanna. Þeir séu ráðnir á faglegum forsendum. „Guð forði okkur frá því að við förum að íhlutast í ráðningu þeirra 550 starfsmanna sem eru hjá bænum," segir Elliði sem sá enga ástæðu til þess að víkja af fundi bæjarráðs þar sem listar með starfsmönnum voru til kynningar ekki til samþykktar. „Listarnir eru ekki samþykktir af okkur," segir Elliði og vill meina að ekki fari fram efnisleg meðferð á málinu. Við þetta bætir Elliði að störfin hafi verið auglýst. Að hans sögn voru hæfustu umsækjendurnir ráðnir til starfanna og um það sé ekki deilt. Þá bendir hann jafnframt á það að faðir hans hafi verið yfirmaður hjá bænum en sé nú húsvörður hjá íþróttamiðstöðinni. Hann hafi sótt um starfið vegna meiðsla sem hann hlaut fyrir nokkru. Þar af leiðandi sé eingöngu um tilfærslu í starfi að ræða. V-listinn gagnrýnir bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sérstaklega fyrir að hafa ekki lagt ráðningasamning við forstöðumanns íþróttamiðstöðvarinnar sérstaklega fyrir fagráð. Í samþykktum bæjarins standi að svo beri að gera sæki einstaklingar um yfirmannastöður stofnanna. Elliði vísar gagnrýninni á bug og segir forstöðumann íþróttamiðstöðvarinnar alls ekki yfirmann. „Hann er ekki yfirmaður í þeim skilningi," segir Elliði og því hafi ekki verið ástæða til þess að leggja ráðningasamninginn sérstaklega fyrir fagráð. Hann segir málið allt lykta af pólitískum brögðum og vill meina að þarna sé V-listinn að reyna skapa sér sérstöðu en aðeins ár er í sveitastjórnakosningar. Að lokum, til þess að taka af allan vafa, þá segir Elliði að hann hafi á engan hátt stýrt þessum ráðningum. Slíkt sé ekki hlutverk stjórnamálamanna. Hann segist þó hafa skilning á því að það sé alltaf umdeilt þegar ættingjar eða nákomnir stjórnmálamönnum séu ráðnir til starfa, „en við búum í litlu samfélagi og öll mín ætt er hérna í bænum. Það væri ósanngjarnt að láta þau öll líða fyrir fjölskyldutengslin," segir Elliði.
Tengdar fréttir Réð pabba í vinnu Hörð átök voru á síðasta bæjarstjórnarfundi Vestmannaeyja fyrir helgi en þar bókaði minnihluti V-listans gegn ráðningu nýs forstöðumanns íþróttamiðstöðvarinnar sem og ráðningu umsjónarmanns sömu miðstöðvar. Ástæðan fyrir mótmælum minnihlutans er sú að ný ráðin forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar er eiginmaður bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Páleyju Borgþórsdóttur sem er formaður bæjarráðs Vestmannaeyja. 26. maí 2009 10:40 Brutu hugsanlega sveitastjórnalög „Þau viku ekki af fundi bæjarráðs né bæjarstjórnar þegar ráðningarnar voru ræddar og samþykktar," segir Páll Scheving Ingvarsson, oddviti V-listans í Vestmannaeyjum, en hann gagnrýnir verklag við ráðningar meirihlutans harðlega. 26. maí 2009 11:28 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn fordæma vinnubrögð og framkomu ráðuneytisins Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira
Réð pabba í vinnu Hörð átök voru á síðasta bæjarstjórnarfundi Vestmannaeyja fyrir helgi en þar bókaði minnihluti V-listans gegn ráðningu nýs forstöðumanns íþróttamiðstöðvarinnar sem og ráðningu umsjónarmanns sömu miðstöðvar. Ástæðan fyrir mótmælum minnihlutans er sú að ný ráðin forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar er eiginmaður bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Páleyju Borgþórsdóttur sem er formaður bæjarráðs Vestmannaeyja. 26. maí 2009 10:40
Brutu hugsanlega sveitastjórnalög „Þau viku ekki af fundi bæjarráðs né bæjarstjórnar þegar ráðningarnar voru ræddar og samþykktar," segir Páll Scheving Ingvarsson, oddviti V-listans í Vestmannaeyjum, en hann gagnrýnir verklag við ráðningar meirihlutans harðlega. 26. maí 2009 11:28