Innlent

Steingrímur: Sjávarútvegsstefna ESB í klessu

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins er í klessu, segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna og furðar sig ekki á að sjávarútvegsráðherrar ESB ríkja hafi ákveðið í gær að draga úr miðstýringu fiskveiða innan sambandsins. Það breyti hins vegar í engu afstöðu hans til aðildar Íslands að ESB.

Ráðherrarnir viðurkenndu á fundinum í gærkvöldi að núverandi miðstýring hefði mistekist hrapalega með þeim afleiðingum að um 80 prósent af fiskistofnum í lögsögu bandalagsríkjanna væru í hættu vegna ofveiði og brottkasts. Talið er að brottkastið sé slíkt að fyrir hvert kíló af þorski í Norðursjó sé öðru kílói kastað í sjóinn, samkvæmt fréttavef BBC. Þar staðfestir fulltrúi Tékklands einnig að að einróma stuðningur sé hjá sjávarútvegsráðherrunum við að færa meira vald yfir fiskveiðum til aðildarríkjanna.

Einhver þyngstu rökin gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu hafa verið að við inngöngu myndi þjóðin framselja stjórn fiskveiða til Brussel.

Frosti Sigurjónsson, í framkvæmdaráði Heimssýnar, samtök sem eru yfirlýstir andstæðingar Evrópusambandsaðildar, er ekki upprifinn og minnir á að ESB geti hvenær sem er ákveðið að auka miðstýringu á ný. Hann líti því ekki svo á að helsta hindrun fyrir inngöngu Íslendinga félli niður ef fiskveiðistjórnun yrði færð til aðildarríkjanna. Ekki yrði tryggt að svo yrði til langframa nema Lissabon sáttmálanum yrði breytt.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna segir ákvörðun ráðherranna heldur í engu breyta afstöðu sinni til inngöngu Íslands. Evrópusambandið hafi margoft lýst yfir vilja til að breyta sjávarútvegsstefnu sambandsins, án árangurs enda kæmi hagsmunapólitík landanna ævinlega í veg fyrir vitræna niðurstöðu í því efni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×