Alþingi niðurlægt Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. maí 2009 13:47 Guðlaugur Þór Þórðarson gagnrýnir upplýsingagjöf til Alþingis.
Guðlaugur Þ. Þórðarson alþingismaður segir að þær fullyrðingar Mats Josefsson, efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar, að það kosti 85% af vergri landsframleiðslu að endurreisa bankana séu allt aðrar upplýsingar en þær sem þingið hafi fengið. Ummælin lét Josefsson falla í sænskum fjölmiðli. Josefson sagðist þar telja að endurreisn bankakerfisins myndi kosta miklu meira en Íslendingar gerðu sér grein fyrir. Guðlaugur gagnrýndi það harðlega að þingmenn fengu upplýsingar um stöðu þjóðarbúsins í fjölmiðlum. Tók hann undir skoðun Birkis Jónssonar sem taldi að samskipti framkvæmdavaldsins við þingið væru niðurlægjandi fyrir Alþingi. Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG og formaður viðskiptanefndar Alþingis, sagði við þingumræður í dag að þegar Mats hefði talað um skuldir ríkissjóðs vegna endurreisn bankanna hefði hann verið með brúttóskuldir í huga. Þær myndu lækka aftur þegar eignir bankanna yrðu seldar. Hún sagðist telja að kostnaður við endurreisn bankakerfisins yrði milli 50 og 60% af landsframleiðslu. Hart var deilt um málið við við upphaf þingfundar í dag og kröfðust þingmenn úr stjórnarandstöðunni að boðað yrði til fundar í viðskiptanefnd.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira