Innlent

Með skammbyssu í Skeifunni

Sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra voru kallaðir út laust fyrir klukkan fjögur í nótt eftir að tilkynning barst um að maður, vopnaður skambyssu, væri á ferli við Hagkaup í Skeifunni, en þar er opið allan sólarhringinn. Vel gekk að afvopna manninn, sem reyndist vera 17 ára, og hafði hann tekið byssuna ófrjálsri hendi. Hún var ekki hlaðin en að öðru leyti fullvirk byssa. Piltinum var sleppt að yfirheyrslum loknum og fer mál hans svo áfram í kerfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×