Innlent

Umferðarljós aftengd

Bústaðavegur. Mynd/Hari.
Bústaðavegur. Mynd/Hari.

Umferðarljós á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar verða aftengd tímabundið í kvöld kl. 19:00 og verða óvirk í nótt og fram eftir degi á morgun, miðvikudag. Á sama tíma verða vinstri beygjur af Flugvallarvegi inn á Bústaðaveg bannaðar. Umferðarhraði er tímabundið lækkaður í 30 km og er brýnt fyrir vegfarendum að virða hraðatakmarkanir.

Í kvöld verða einnig umferðarljós á gatnamótum Bústaðavegar við Litluhlíð, en þau verða aðeins óvirk fram eftir kvöldi og á sama tíma verður Litlahlíð lokuð við Eskitorg.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát meðan ljósin eru aftengd og velja aðrar ökuleiðir. Lögreglan verður með viðbúnað og sérstaklega þegar þungi morgunumferðar vex og framkvæmdum verður ekki lokið.

Ekki er hægt að segja nákvæmlega um hvað verkið tekur langan tíma, en líklegt er að vinna standi fram eftir degi á miðvikudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×