Fleiri fréttir

Stálu tölvu og tölvuskjám úr Öskjuhlíðaskóla

Fangageymslur lögreglunnar fylltust í nótt. Á meðal þeirra sem gistu fangageymslurnar voru innbrotsþjófar sem fóru inn í Öskjuhlíðaskóla á fimmta tímanum og stálu þaðan tölvu og tölvuskjám.

Morgunblaðsljósmyndari í vinnu fyrir lögregluna

„Mér finnst harla óeðlilegt að blaðamenn, ljósmyndarar eða tökumenn séu að vinna fyrir lögregluna," segir Óðinn Jónsson, fréttastjóri útvarps, um það að ljósmyndari Morgunblaðsins skuli einnig starfa sem ljósmyndari fyrir lögregluna.

Segja marga ágalla á seðlabankafrumvarpi

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins tættu í sig frumvarp um ný lög um Seðlabankann í þinginu í gær. Auk þess að telja á því margvíslega ágalla segja þeir það lagt fram til höfuðs Davíð Oddssyni. Stjórnarflokkarnir segja málið faglegt.

Enex skipt upp

Samkomulag hefur tekist milli eigenda Enex um uppskiptingu félagsins. Það hefur verið staðfest á hlutafundi í félaginu og af stjórnum stærstu eigendanna, Reykjavik Energy Invest, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur og Geysis Green Energy. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur jafnframt afgreitt samkomulagið fyrir sitt leyti.

Tveggja vikna gæsluvarðhald

Karlmaður sem er grunaður um að eiga þátt í andláti konu sem fannst látin í dúfnakofa í Hafnarfirði, hefur verið hnepptur í tveggja vikna gæsluvarðhald. Lögreglan krafðist gæsluvarðhalds síðdegis í dag.

Tveir seðlabankastjórar búnir að svara

Seðlabankastjórarnir Ingimundur Friðriksson og Eiríkur Guðnason hafa sent Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra skrifleg svör en hún óskaði eftir því að þeir bæðust lausnar undan störfum.

Obama ókyrrist

Atvinnuleysi í Bandaríkjunum náði nýjum hæðum í janúar en þá töpuðust rétt tæp sex hundruð þúsund störf. Þar með hefur atvinnuleysi farið úr 4,9 prósentur fyrir ári síðan upp í 7,6 prósent. Atvinnuleysi hefur ekki verið jafn mikið í Bandaríkjunum síðan árið 1992.

Kaupþing búið að losa sig við flesta bíla

Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings segir að bankinn sé búinn að losa sig við flesta bíla sem fyrri stjórnendur hjá bankanum höfðu. Þegar Nýi bankinn tók yfir var strax farið í að losa bíla og það kláraðist upp úr áramótum. Engin útsala var á bílaflota bankans en Finnur fagnar því að bankinn hafi náð að selja, því ekki sé auðvelt að losa sig við dýra bíla í dag.

Herskipum í Nagasaki mótmælt

Bandaríska herskpinu Blue Ridge var ekki sérlega vel tekið þegar það kom til Nagasaki. Tilgangur heimsóknarinn var að bæta og treysta samband Bandaríkjanna og Japans.

Þjóðverjar styrkja Mæðrastyrksnefnd

Hópur Þjóðverja sem tapaði hundruðum milljóna króna á hruni íslensku bankanna afhenti í dag Mæðrastyrknefnd Reykjavíkur peningagjöf til að aðstoða Íslendinga í neyð.

Sigmundur í stjórnmálin

„Gamlir fréttahundar eins og ég hafa fylgst mörgum betur með þjóð- og stjórnmálum og það hef ég gert síðastliðinn 30 ár auk þess sem þetta eru mínar ær og kýr," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, sem hyggst sækjast eftir öðru sæti í norðausturkjördæmi fyrir Samfylkinguna. Hann segist hafa fengið góðar viðtökur bæði frá öðrum Samfylkingarmönnum sem og íbúum kjördæmsins.

Frysting eigna

Sléttir fjórir mánuðir eru frá því bankarnir hrundu og enn hafa engar ákærur litið dagsins ljós. Hætta er á að búið sé að skjóta undan ávinningi brota þegar rannsókn tekur langan tíma, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari um bankahrunið. Rannsóknarnefnd um bankahrunið er enn að safna gögnum og verið er að tengja tölvur hjá embætti sérstaks saksóknara.

Kannabisfundur í Reykjavík

Lögreglan á höfuðborgasvæðinu framkvæmdi húsleit í Reykjavík nú síðdegis þar sem komið var upp um kannabisræktun. Samkvæmt Karli Steinari Valssyni, yfirmanni fíkniefnadeildarinnar, liggur umfang ræktunarinnar ekki fyrir. Líklega er um hundruð til tvö hundruð plöntur að ræða.

Árshátíð Kaupþings aflýst

Árshátíð Nýja Kaupþings sem halda átti 14.mars næstkomandi hefur verið aflýst. Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri segir efnahagsástandið spila inn í en dagurinn verður nýttur í stefnumótun. Hann segir starfsfólk sýna niðurskurðinum skilning.

Sambýlismaðurinn grunaður

Maðurinn sem er í haldi, grunaður um að eiga þátt í andláti konu sem fannst í dúfnakofa í Kapelluhrauni í gær, var sambýlismaður hennar. Þau höfðu búið saman í um tvo mánuði áður en atvikið átti sér stað.

Jón varð undir í þingflokknum

Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, varð undir í atkvæðagreiðslu í þingflokknum fyrr í vikunni þegar tekin var ákvörðun um það hvort að flokkurinn stillti sér upp með stjórnarflokkunum og Framsóknarflokknum gegn Sjálfstæðisflokknum við kosningu fastanefnda Alþingis.

Aðstoðar Steingrím

Jóhann Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og formanns Vinstri grænna.

Lögreglan íhugaði að óska eftir liðsinni frá Danmörku

Ríkislögreglustjóri íhugaði að leita liðsinnis dönsku lögreglunnar þegar mótmælin gegn ríkisstjórninni stóðu sem hæst. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá embættinu og einnig sagt að komið hafi til álita að flytja hingað til lands sérbúnar bifreiðar til þess að nota gegn mótmælendum. Þessir möguleikar voru kannaðir í fullu samráði við lögregluna á höfuðborgarsvæðisins og dómsmálaráðherra. Áður en til þess kom að ákveða nokkuð fjöruðu mótmælin út.

Gæsluvarðhalds krafist vegna látinnar konu

Búið er að krefjast gæsluvarðhalds yfir manninum sem er grunaður um að tengjast andláti konu á fertugsaldri sem fannst látinn í dúfnakofa í Kapelluhrauni í Hafnarfirði.

560 vildu listamannalaun

Úthlutunarnefndum listamannalaun bárust alls 560 umsóknir um starfslaun listamanna fyrir árið 2009, en fyrir ári síðan bárust 514 umsóknir. Launin eru veitt leikhópum og einstaklingum allt frá þremur mánuðum til þriggja ára og voru launin úthlutað til 134 einstaklinga og 11 hópa í þetta sinn. Listamannalaun eru rúmlega 267 þúsund krónur á mánuði.

Landvernd: Orkuveitan villir um fyrir fólki

Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar segir að tilkynning Orkuveitunnar um að til standi að hefja hreinsun hveralyktar úr gufunni, sem kemur frá virkjun fyrirtækisins á Hellisheiði, sé til þess fallin að villa um fyrir fólki. Hann segir að látið sé hjá líða að greina frá því að losun brennisteinsvetnis er hvað mest þegar holur eru í blæstri.

Össur á Al Jazeera

Sjónvarpsmaðurinn Sir David Frost sem nýverið gekk til liðs við Al Jazeera sjónvarpsstöðina ræddi við Össur Skarphéðinsson, utanríkis- og iðnaðarráðherra, í dag og verður viðtalinu sjónvarpað í kvöld. Össur mætti í myndver Stöðvar 2 í Skaftahlíð og ræddi við Frost í gegnum gervihnött.

Yfirheyrslur hafnar

Yfirheyrslur eru hafnar yfir karlmanni sem er grunaður um að tengjast andláti konu á fertugsaldri sem fannst í dúfnakofa í Kapelluhrauni í Hafnarfirði um kvöldmatarleytið í gær.

Fréttablaðið og Morgunblaðið bæta við sig í lestri

Ný könnun um lestur dagblaða frá Capacent sýnir að bæði Morgunblaðið og Fréttablaðið bæta við sig í lestri á milli ára. Fréttablaðið bætir við sig 3% í meðallestri en Morgunblaðið 2,5% í hópi allra landsmanna.

Gefur sér góðan tíma í að skoða hvalveiðiheimildir

Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra sagði á fjölmennum borgarafundi um hvalveiðar, á Akranesi í gærkvöldi, að hann ætlaði að taka sér góðan tíma til að skoða nýútgefnar hvalveiðiheimildir frá sjónarhóli allra hagsmunahópa, sem málið varðar.

Orkuveitan vinnur að hreinsun hveralyktar

Orkuveita Reykjavíkur hefur unnið að því um hríð að hefja hreinsun hveralyktar úr gufunni, sem kemur frá virkjun fyrirtækisins á Hellisheiði. Lyktinni veldur brennisteinsvetni og í vor mun hefjast blöndun þess við niðurrennslisvatn frá virkjuninni, þannig að því verður veitt niður í jarðhitageyminn, þaðan sem það kom upphaflega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni.

Sjálfstæðismenn gagnrýna Seðlabankafrumvarp

Faglegur undirbúningur og víðtækt pólitískt samráð skortir í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á yfirstjórn Seðlabankans og er nú til meðferðar á Alþingi, að mati Birgis Ármanssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðimenn gagnrýndu harðlega Seðlabankafrumvarp ríkisstjórnarinnar á þingi í dag. Sautján þingmenn eru nú á málendaskrá, þar af sex sjálfstæðismenn. Auk Birgis hafa Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Pétur Blöndal nú þegar tekið til máls.

Rússneski flugherinn meira og minna ónýtur

Það eru um 650 orrustuþotur í rússneska flughernum. Þar af eru um 290 af gerðinni MiG 29. Þær eru taldar með bestu þotum flughersins þótt þær hafi verið hannaðar á sjöunda áratugnum.

Spurði Jóhönnu um meint sinnaskipti varðandi seðlabankastjóra

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í dag hvað hefði breyst frá því Jóhanna lýsti þeirri skoðun sinni í þingræðu fyrir 10 árum að það væri tímaskekkja að forsætisráðherra skipaði seðlabankastjóra. Bankaráð ætti þess í stað að ráða í stöðurnar.

Kannabisræktun í Árbænum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Árbæ síðdegis í gær. Við húsleit á staðnum fundust 140 kannabisplöntur og var karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknar málsins.

Frávísunarkröfu Þorsteins Kragh hafnað

Kröfu Þorsteins Kragh um frávísun í máli hans var hafnað af dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. Þorsteinn er grunaður um aðild að stórfelldum innflutningi á fíkniefnum en Hollendingurinn Jacob Van Hinte var handtekinn um borð í Norrænu með um 190 kíló af hassi, eitt og hálft kíló af maríjúana og eitt kíló af kókaíni í bíl sínum. Þorsteinn var handtekinn um mánuði síðar og hefur setið í gæsluvarðhaldi í um hálft ár.

Flugókyrrð og flokkun hennar

Bandarískar rannsóknir sýna að fjölmargir eru flughræddir eða finna fyrir ónotum á flugi og að um 20% flugfarþega hreinlega þjáist á flugi.

Siðferðisbrestur Guðjóns - hættir á þingi fyrir Frjálslynda

„Þegar menn búa við heimilisböl til lengri tíma þá endar það með því að þeir segja hingað og ekki lengra," segir Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sem hefur ákveðið gefa ekki kost á sér fyrir flokkinn í komandi þingkosningum. Jón segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formann flokksins, hafa sýnt alvarlegan siðferðisbrest.

Vaka lagði Röskvu

Vaka, félag lýðæðissinnaðra, stúdenta sigraði í kosningunum til stúdentaráðs og Háskólaþings sem fram fóru í gær og fyrradag. Röskva, samtök félagshyggjufólks, hefur verið í meirihluta í ráðinu undanfarin tvö ár.

Fannst nakin í kofanum

Konan sem fannst látin í dúfnakofanum í Hafnarfirði var nakin þegar eigandi kofans kom að henni. Samkvæmt heimildum Vísis var búið að breiða yfir líkama hennar. Fötin voru inni í kofanum.

Á fjórtánda þúsund atvinnulausir

Atvinnulausum heldur áfram að fjölga og á vef Vinnumálastofnunar eru nú 13.688 skráðir atvinnulausir. Í lok síðasta árs voru 8982 skráðir án atvinnu og hefur þeim því fjölgað um 4700 á rúmum mánuði.

Seðlabankafrumvarp tekið til umræðu

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á Seðlabankanum verður tekið til fyrstu umræðu þegar Alþingi kemur saman klukkan hálfellefu í dag. Áður verð störf þingsins til umræðu.

Maður í haldi - líklega farið fram á gæsluvarðhald í dag

Maður er í haldi lögreglu grunaður um aðild að hvarfi konunnar sem fannst látin við dúfnakofa í Kapelluhrauni í Hafnarfirði síðdegis í gær. Dánarorsök konunnar mun enn vera óljós en farið verður fram á gæsluvarðhald yfir manninum síðar í dag, samkvæmt heimildum Vísis.

Misheppnuð ránstilraun í Nykøbing

Tveir ræningjar hurfu á brott tómhentir eftir að hafa reynt að ræna peningaflutningabíl í danska bænum Nykøbing á Sjálandi.

Rúm hálf milljón í þjónustugeiranum missti vinnu

Meira en hálf milljón starfsmanna í þjónustugeiranum í Bandaríkjunum missti vinnuna í janúar sem er svipuð tala og í desember. Atvinnuleysi mælist nú 7,3 prósent í Bandaríkjunum en hagfræðingar spá því að vinnumarkaðurinn taki að rétta úr kútnum við lok fyrsta fjórðungs ársins og staðan batni til muna á öðrum ársfjórðungi.

Óttast aukinn styrk al-Qaeda í Jemen

Bandaríkjamenn eru uggandi vegna stóraukins fjölda al-Qaeda-liða sem nú streyma frá Sádi-Arabíu til Jemen þar sem samtökin hafa orðið töluverðan liðsstyrk.

Sjá næstu 50 fréttir