Innlent

Kannabisræktun í Árbænum

Myndin tengist fréttinni ekki.
Myndin tengist fréttinni ekki.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Árbæ síðdegis í gær. Við húsleit á staðnum fundust 140 kannabisplöntur og var karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknar málsins.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að fyrrnefnd aðgerð sé liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.

Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×