Innlent

Stálu tölvu og tölvuskjám úr Öskjuhlíðaskóla

Fangageymslur lögreglunnar fylltust í nótt. Á meðal þeirra sem gistu fangageymslurnar voru innbrotsþjófar sem fóru inn í Öskjuhlíðaskóla á fimmta tímanum og stálu þaðan tölvu og tölvuskjám.

Lögreglumenn komu að innbrotsþjófunum þegar þeir voru í þann mun að aka frá skólanum og veittu þeim eftirför. Þeir stöðvuðu bifreið sína á gatnamótum Dalbrautar og Brúnavegar og reyndu að komast burt á hlaupum. Lögreglumenn reyndust þó vera frárri á fæti og tókst fljótlega að ná í skottið á þeim.

Þá fékk lögreglan tilkynningu um sex líkamsárásir í miðborginni í nótt. Í öllum tilfellum var að ræða minniháttar pústra að sögn lögreglu. Þá voru 10 manns teknir fyrir ölvun við akstur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×