Innlent

Fjármálaráðherra Noregs ræðir myntsamstarf við Steingrím J.

Óli Tynes skrifar
Kristín Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs.
Kristín Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs.

Allt frá því kreppan skall á hefur Steingrímur J. Sigfússon litið mjög til Noregs um aðstoð og samvinnu við að koma Íslandi aftur á réttan kjöl.

Steingrímur hefur meðal annars viðrað þann möguleika að taka upp norsku krónuna sem gjaldmiðil.

Margir norskir stjórnmálamenn hafa tekið vel í þetta. Meðal annars Kristín Halvorsen fjármálaráðherra, sem leiðir systurflokk Vinstri grænna í ríkisstjórn Noregs.

Hún er nú komin til Íslands. Aðaltilgangurinn með heimsókn hennar er raunar að vera við tíu ára afmælishátíð Vinstri grænna.

Hún sagði hinsvegar í blaðaviðtali að hún myndi ræða við Steingrím um efnahagsástandið og einnig myntsamstarf ef það bera á góma, eins og hún orðaði það.

Aðrir stjórnmálamenn hafa einnig tjáð sig, þeirra á meðal Liv Signe Navarsete formaður Norska Miðflokksins.

Hún sagði að Norðmenn ættu að taka vel í það ef Íslendingar hefðu áhuga á því að taka upp norsku krónuna. Þannig væri hægt að koma í veg fyrir að Ísland gangi í Evrópusambandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×