Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan vélsleðamann TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti slasaðan vélsleðamann á Lyngdalsheiði á þriðja tímanum í dag. Stjórnstöð Gæslunnar fékk beiðni um aðstoð frá Neyðarlínunni koter yfir tvö og var tveimur af björgunarsveitum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar einnig gert viðvart. 18.1.2009 15:42
Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðum Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza er yfirskrift mótmælafundar sem hófst í Háskólabíói klukkan þrjú. Fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök gangast fyrir fundinn. 18.1.2009 15:31
Hamas ætla að hætta hernaðaraðgerðum Hamas samtökin tilkynntu í dag að þau myndu hætta öllum hernaðaraðgerðum og gefa Ísraelum vikufrest til þess að flytja hermenn sína frá Gaza ströndinni. 18.1.2009 15:27
Obama styður Geithner þrátt fyrir undanskot hans frá skatti Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, stendur þétt að baki Timothy Geithner, sem hann hefur valið í embætti fjármálaráðherra, þrátt fyrir að honum hafi orðið á mikil mistök þegar að hann sveikst undan því að greiða skatta. Þetta segir verðandi starfsmannastjóri í Hvíta húsinu. 18.1.2009 15:10
Valgerður hlaut jafnréttisverðlaun Framsóknarflokksins Valgerður Sverrisdóttir hlaut jafnréttisverðlaun Framsóknarflokksins á flokksþinginu nú í hádeginu. Inga Guðrún Kristjánsdóttir, jafnréttisfulltrúi flokksins, afhenti verðlaunin. Valgerður varð fyrst kvenna varaformaður og formaður Framsóknarflokksins og settist einnig fyrst kvenna í stól iðnaðar- og viðskiptaráðherra og utanríkisráðherra. 18.1.2009 14:25
Kosið aftur milli Sigmundar og Höskuldar - Páll dottinn út Sigmundur Davíð Gunnlaugsson varð efstur í fyrri umferð í kjöri til formanns Framsóknarflokksins. Kjósa þarf aftur á milli hans og Höskuldar Þórhallssonar. Sigmundur Davíð hlaut 40,9% atkvæða, Höskuldur hlaut 37,9%, en Páll Magnússon hlaut 18,9%. 18.1.2009 14:16
Bruggverksmiðju lokað á Frakkastíg Bruggverksmiðju var lokað í kjallara húss á Frakkastíg rétt fyrir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var um minniháttar framleiðslu að ræða og er talið að tveir karlmenn hafi staðið fyrir henni. Lögreglan haldlagði tæki til bruggframleiðslu sem voru í húsinu. 18.1.2009 12:06
Gott skíðafæri víða á landinu Í dag er fyrsti opnunardagur í Bláfjöllum á þessu ári. Þar er ágætis veður, þriggja stiga hiti og frábært skyggni. Opið verður til klukkan fimm.Í Hlíðarfjalli á Akureyri verður opið í dag til klukkan fjögur. Skíðafærið er troðinn þurr snjór, með besta móti. 18.1.2009 10:10
Víðast hvar hálka á vegum landsins Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er einnig víða á Suðurlandi, einkum á útvegum. 18.1.2009 10:06
Formaður líklegast kosinn í tveimur umferðum Frekar er búist við að kjósa verði í tveimur umferðum um embætti formanns Framsóknarflokksins, en kosning hefst á flokksþingi hans klukkan tólf á hádegi. 18.1.2009 09:36
Ísraelar lýstu yfir vopnahléi Ísraelar lýstu í nótt yfir einhliða vopnahléi á Gaza ströndinni. Ekki eru þó byssurnar þagnaðar. Vopnahléð tók gildi á miðnætti. Skömmu síðar skutu Hamas liðar eldflaugahrinu á Ísrael. Því var svarað með loftárás sem Ísraelar segja að hafi hitt bæði skotpalla og skotmennina. Þótt Ísraelar hafi lýst yfir vopnahléi eru hermenn þeirra enn á ströndinni og verða þar áfram enn um sinn. 18.1.2009 09:32
Þrír slösuðust í bílveltu Þrír piltar slösuðust þegar að bíll þeirra velti á þjóðveginum skammt vestan við Ólafsfjarðarveg um sexleytið í morgun. Að sögn lögreglunnar velti bíllinn og staðnæmdist aftur á hjólunum um 20-25 metra frá veginum. Einn þeirra var fluttur með sjúkrabíl, en lögreglan aðstoðaði hina tvo við að koma sér á slysadeild. Enginn þeirra er alvarlega slasaður að sögn lögreglu. 18.1.2009 09:27
Færeyingar ósáttir við aðgerðarpakka Rasmussen Danir gáfu Færeyingum langt nef þegar að oddviti ríkisstjórnar þeirra bað forsætisráðherra Danmerkur um að Færeyjar yrðu hluti af fjármálapakka, sem felur í sér ríkisstuðning við bankana. 17.1.2009 22:01
Samfylkingin hyggst skerpa á stefnumálum sínum Samfylkingin ætlar að halda Framtíðarþing á laugardag eftir viku þar sem "leitað verður lausna á brýnustu verkefnum í stjórnmálum samtímans en jafnframt horft til framtíðar með áherslu á þau gildi, stefnumið og 17.1.2009 15:04
Mótmælendur í hár saman Skipuleggjendur mótmæla á Austurvelli virðast vera komnir í hár saman ef marka má fréttatilkynningu sem Raddir fólksins sendu fjölmiðlum fyrir stundu. 17.1.2009 12:57
Upptök eldsins rannsökuð Fjórir íbúar í húsinu sem brann við Klapparstíg í fyrrinótt gistu í boði Rauða Krossins á Hótel Lind í nótt. Tveir til viðbótar gistu hjá Hjálpræðishernum en aðrir íbúar hafa komið sér fyrir hjá vinum og vandamönnum. 17.1.2009 12:03
Fyrrverandi ráðherrar styðja Pál Magnússon Tveir fyrrverandi ráðherrar Framsóknarflokksins lýsa yfir stuðningi við Pál Magnússon í framboði til formanns Framsóknarflokksins. Kosið er á morgun. 17.1.2009 11:50
Tvöfaldur lottópottur næst Aðalvinningurinn í lottó gekk ekki út í kvöld þannig að potturinn verður tvöfaldur næsta laugardag. Einn var með 4 réttar tölur auk bónustölu og hlýtur hann tæplega 190 þúsund krónur í vinning. Lottótölurnar voru 11 12 16 30 36 og bónustalan var 15. 17.1.2009 20:13
Glæsilegasta pókermót á Íslandi Pókermót sem haldið var í öskjuhlíðinni í dag er sagt það glæsilegasta sem fram hefur farið á Íslandi. Fjölmargir þátttakendur voru mættir til leiks. sumir höfðu unnið sér inn þátttökurétt með því að spila á 17.1.2009 19:09
Friðsöm mótmæli á Akureyri Liðlega 200 manns komu saman í friðsömum mótmælum á Ráðhústorginu á Akureyri í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 17.1.2009 17:08
Undirbýr aðgerðaráætlun gegn heimilisofbeldi Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur kynnt drög að nýrri aðgerðaráætlun gegn heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi og mansali. Vinna í þeim málum hefur verið of ómarkviss segir ráðherrann. 17.1.2009 12:30
Kosið um lagabreytingu í Framsóknarflokknum í dag Það skýrist í dag hvort formaður Framsóknarflokksins verður kosinn eftir núgildandi lögum flokksins eða nýjum lögum sem samþykkja þarf í dag. Mikil spenna ríkir um formannskjörið og úrslitin gætu orðið tvísýn. Ef kosið verður eftir nýjum lögum þarf formaður að hljóta yfir 50 prósent atkvæða annars vinnur sá sem fær flest atkvæði. 17.1.2009 12:23
Eiga nóg í fjórar til fimm bombur Bandarískur sérfræðingur Selig Harrison hefur verið í Norður-Kóreu síðan á þriðjudag og rætt við háttsetta embættismenn þar í landi. 17.1.2009 11:51
Armstrong hjólar á ný Hjólreiðakeppinn Lance Armstrong hefur keppni á nýjan leik á morgun í vikulangri hjólreiðakeppni í Ástralíu. Á fundi með fréttamönnum í dag kvaðst hann hafa litla möguleika á sigri eftir að hafa setið á rassinum í þrjú og hálft ár og drukkið bjór, eins og hann orðaði það. 17.1.2009 10:18
Víða mótmælt í dag Boðað hefur verið til mótmæla víða um land í dag. Raddir fólksins með Hörð Torfason í fararbroddi boða til mótmælafundar á Austurvelli fimmtánda laugardaginn í röð en yfirskrift þess fundar er sem fyrr: Breiðfylking gegn ástandinu. Fundurinn hefst klukkan þrjú. 17.1.2009 10:11
Fundu fíkniefni á ökumanni Lögreglan stöðvaði ökumann á Vesturlandsvegi við Hvalfjarðargöng um miðnætti í nótt vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Við nánari eftirgrennslan lögreglu fundust fíkniefni á manninum. Hann var handtekinn en látinn laus aftur að lokinni skýrslutöku. 17.1.2009 10:04
Talibanar banna skólagöngu kvenna Talibanar hafa bannað skólagöngu kvenna í dalnum Swat í norðvesturhluta landsins. Þar ráða þeir lögum og lofum. Bannið við skólagöngu kemur niður á fjörutíu þúsund stúlkun og ungum konum. Talibanar halda því fram að menntun kvenna sé ó-islömsk. 17.1.2009 09:59
Bílvelta í Hrútafirði Bíll valt um 10 kílómetra norðan við gamla Staðarskálann í Hrútafirði um áttaleytið í gærkvöld. Bíllinn rann í hálku, fór út fyrir veginn, fór eina veltu og staðnæmdist á toppnum. Fjórir voru í bílnum, en lögreglan á Blönduósi segir að þeir hafi allir verið í bílbeltum og beltin hafi komið í veg fyrir alvarleg meiðsl á fólkinu. Lögreglan segir að fólkið hafi hlotið minniháttar rispur og að læknir hafi gert að sárum þeirra á staðnum. 17.1.2009 09:57
Formannsefni kynna áherslur sínar í dag Landsfundi Framsóknarflokksins verður framhaldið í Vodafonehöllinni í dag, en landsfundurinn samþykkti með miklum meirihluta atkvæða í gær að Ísland gangi til aðildarviðræðna að Evrópusambandinu. 17.1.2009 09:49
Afþakka heimsókn ísraelsks ráðherra Íslensk stjórnvöld hafa afþakkað komu menntamálaráðherra Ísraels til landsins. Í heimsókninni ætlaði ráðherrann að útskýra málstað Ísraels í stríðinu sem nú stendur yfir á Gaza ströndinni. 17.1.2009 09:28
Vill að sonur sinn taki við Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur ákveðið að yngsti sonur sinn taki við af sér, að því er fréttastofa í Suður-Kóreu heldur fram. Hins vegar bárust einnig fréttir af því að elsti sonur hans sé tilbúinn að taka við af föður sínum. 17.1.2009 06:45
Mótmælt í Amman Fjölmenn mótmæli voru haldin í Amman, höfuðborg Jórdaníu, í dag vegna árása Ísraela á Gaza-ströndina undanfarnar þrjár vikur. Reiðum mótmælendum lenti saman við óeirðalögreglu fyrir utan sendiráð Ísraela í borginni. Þess var krafist að stjórnmálasambandi við landið yrði slitið og sendiherrann rekinn úr landi. 16.1.2009 22:45
Voru að útbúa heimatilbúna sprengju Lögreglunni á Suðurnesjum barst klukkan rúmlega hálf sjö í kvöld að sprenging hefði orðið í heimahúsi í Grindavík og að tveir drengir 10 og 17 ára væru slasaðir. Greint var frá spreningunni á Vísi fyrr í kvöld. 16.1.2009 20:56
Vopnahlé hugsanlega undirritað á sunnudaginn Yfirvöld í Ísrael eru farin að hafa orð á því að sókn þeirra á Gaza ströndinni ljúki brátt með vopnahléi. Sagt er að Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels, Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna og Hosni Mubarak forseti Egyptalands geti þegar á sunnudag undirritað samkomulag sem yrði grunnur að eins árs vopnahléi á milli Ísraela og Hamas samtakanna. Yfir 1100 Palestínumenn hafa farist í innrás Ísraela á Gaza ströndina. 16.1.2009 20:48
Starfsmönnum við gerð Héðinsfjarðaganga fækkað Óvissa hefur ríkt um framvindu Héðinsfjarðarganga þar sem kostnaður við framkvæmdina hefur stóraukist. Tvö fyrirtæki vinna við gerð gangnanna Háfell og tékkneska verktakafyrirtækið Metrostav. Hið síðarnefnda hefur nú ákveðið að fækka starfsmönnum sínum tímabundið um allt að þriðjung. Þetta kom í ljós eftir fund fyrirtækjanna með fulltrúum Vegagerðarinnar í dag. 16.1.2009 21:09
Sagt upp fyrir að blogga óviðeigandi um mótmælendur Guðmundi Jóhannssyni sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit hefur verið sagt upp störfum eftir átta mánaða starf. Umdeild bloggfærsla, samskiptaörðugleikar og hátternisvandamál Gumundar eru samkvæmt heimildum fréttastofu ástæður þess að sveitarstjórn vék Guðmundi frá störfum í gær. 16.1.2009 18:47
Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar krefst breytinga Ríkisstjórnin þarf að gera nýjan sáttmála við þjóðina, að mati Skúla Helgasonar framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar. Hann vill breytingar á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar og uppstokkun innan Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. 16.1.2009 21:37
Hálka og hálkublettir víðsvegar um landið Hálka og hálkublettir eru um land allt. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði, stórhríð og ekkert ferðaveður. Ófært er um Klettsháls. Á Vestfjörðum er annars hálka, snjóþekja og éljagangur. 16.1.2009 21:24
Vill að skipuð verði neyðarstjórn „Hættum að berja höfðinu við steininn. Fjölmörgum þjóðum sem komnar hafa verið í þessa stöðu, hafa verið skipaðar neyðarstjórnir. Að vísu „þriðja heims ríkjum“, en það er það sem við erum orðin,“ segir fyrrum borgarfulltrúinn Helgi Pétursson í grein á heimasíðu Samfylkingarinnar. Helgi situr í framkvæmdastjórn flokksins og hann er jafnframt formaður Samfylkingarfélagins í Garðabæ. 16.1.2009 20:42
Fimmtándi mótmælafundur Radda Fólksins Fimmtándi mótmælafundur Radda Fólksins verður haldinn á Austurvelli á morgun og sem fyrr hefjst þau klukkan 15. Ræðumenn verða Svanfríður Anna Lárusdóttir sem er atvinnulaus og Gylfi Magnússon dósent í hagfræði við Háskóla Íslands. Fundarstjórn verður í höndum Harðar Torfasonar. 16.1.2009 20:30
Börn flutt á slysadeild eftir flugeldaslys í Grindavík Tvö börn voru flutt á slysadeild Landspítalans eftir alvarlegt flugeldaslys í heimahúsi Grindavík fyrir stundu. Þetta kemur frá á fréttasíðunni Víkurfréttir. Börnin eru sögð alvarlega slösuð. ,,Ekki var hægt að fá nánari upplýsingar um slysið nú rétt áðan en að sögn sjónarvotta var viðbúnaður sjúkrabílana mikill," segir í frétt Víkurfrétta. 16.1.2009 19:41
Framsóknarmenn vilja aðildarviðræður við ESB Afgreiðslu tillögu um að Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið er rétt að ljúka á flokksþingi Framsóknarflokksins. Allt lítur út fyrir að tillagan verði samþykkt með meirihluta greiddra atkvæða. Áður hafði tillögu um að þingið hafnaði ályktuninni verið felld. 16.1.2009 19:25
Lík 1800 Þjóðverja finnast í fjöldagröf Fjöldagröf fannst þegar verið var að grafa fyrir hóteli í bænum Malbork í Norður-Póllandi. Í síðari heimsstyrjöldinni hét bærinn Marienburg og tilheyrði Þýskalandi. Í gröfinni eru lík um átjánhundruð Þjóðverja sem týndust í framsókn rússneska hersins í lok stríðsins. Talið er að rússnesku hermennirnir hafi drepið fólkið. Milljónir óbreyttra borgara týndust í stríðinu og ekki er enn vitað um örlög þeirra. 16.1.2009 19:24
Tíu bjargað af flutningaskipi við Noreg Tíu skipverjum var í dag bjargað af flutningaskipi frá Möltu sem strandaði í Harðangursfirði í Noregi. Mikill leki kom að skipinu og þótti vissast að áhöfnin yfirgæfi það. Farþegaskip sem var skammt undan Harðangursfirði heyrði neyðarkall frá maltneska skipinu og kom fljótt á vettvang. Tvö norsk strandgæsluskip og þyrla voru einnig send á vettvang. Maltneska skipið var með timburfarm og ekki talið að það sökkvi í bili. Norska strandgæslan mun reyna að gera við það til bráðabirgða og koma því til hafnar. 16.1.2009 19:14
Íþróttir fyrir alla á Akureyri Átakið Íþróttir fyrir alla fer vel af stað á Akureyri. Verkefnisstjóri átaksins, kunnur handboltakappi, passar börn svo mæður og feður geti stundað jóga áhyggjulaus. 16.1.2009 19:09