Innlent

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan vélsleðamann

TF-EIR.
TF-EIR.

TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti slasaðan vélsleðamann á Lyngdalsheiði á þriðja tímanum í dag. Stjórnstöð Gæslunnar fékk beiðni um aðstoð frá Neyðarlínunni koter yfir tvö og var tveimur af björgunarsveitum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar einnig gert viðvart.

TF-EIR var á sama tíma á leið í reglubundið gæsluflug og fór strax á vettvang. Þyrlan var komin í loftið klukkan tuttugu og fimm mínútur yfir tvö og var um átta mínútur á leiðinni á slysstaðinn. TF-EIR lenti við Landspítalann í Fossvogi klukkan tuttugu mínútur yfir þrjú.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×