Mótmælendur í hár saman 17. janúar 2009 12:57 Raddir fólksins standa fyrir mótmælum í fimmtánda sinn í dag.
Skipuleggjendur mótmæla á Austurvelli virðast vera komnir í hár saman ef marka má fréttatilkynningu sem Raddir fólksins sendu fjölmiðlum fyrir stundu. Raddir fólksins standa fyrir mótmælafundi í fimmtánda sinn á Austurvelli klukkan þrjú í dag. Fyrir hópnum fer Hörður Torfason tónlistarmaður. Korteri síðar hefst svo annar mótmælafundur á Austurvelli sem Nýjar raddir standa fyrir. Fyrir þeirri hreyfingu fer Ástþór Magnússon friðarsinni. Raddir fólksins sendu frá sér fréttatilkynningu vegna Nýrra radda. „Af gefnu tilefni vilja samtökin Raddir fólksins koma því á framfæri að svonefndar „Nýjar raddir" sem boðað hafa fund á Austurvelli kl. 15:15 í dag, laugardaginn 17. janúar, hafa ekki sótt um tilskilin leyfi til lögregluyfirvalda fyrir fundarhöldum," segir í tilkynningunni. Raddir fólksins halda því fram að boðaður fundur Ástþórs Magnússonar sé því ólöglegur og óréttmætur sem slíkur og beri að harma að Íslendingur skuli fara fram með jafn lágkúrulegum hætti. Nýjar raddir sendi svo stundu seinna frá sér tilkynningu þar sem fullyrt var að Raddir fólksins færu með ósannindi þegar fullyrt væri að Nýjar raddir á Austurvelli hafi ekki tilkynnt sig til lögreglunnar. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Fréttastofu að samkvæmt lögum þurfi ekki að fá leyfi til að mótmæla. Hins vegar þurfi mótmælendur að tilkynna til lögreglustjóra að þeir hyggist efna til mótmæla. Geir Jón sagðist ekki vita til þess að síðari mótmælin hafi verið tilkynnt. Hann sagði þó að engin viðurlög lægju við slíku en ef að mótmælin yllu röskun, til dæmis á umferð, þá myndi lögreglan grípa til ráðstafana.
Mest lesið Tvö hundruð manns bjargað af þjóðvegi 1 Innlent Atvinnulífið misnoti heilbrigðiskerfið Innlent Bandaríkin áður mun öflugri á Grænlandi Erlent Þessi sóttu um hjá Höllu Innlent Ragnar Þór verður ráðherra Innlent Telur að Evrópa myndi fórna Grænlandi fyrir NATÓ Erlent Netsambandslaust meðan mótmælt er í Íran Erlent Guðmundur Ingi segir af sér Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Leita að manneskju við Sjáland Innlent Fleiri fréttir Atvinnulífið misnoti heilbrigðiskerfið Tvö hundruð manns bjargað af þjóðvegi 1 Leita að manneskju við Sjáland Ragnar Þór verður ráðherra Guðmundur Ingi segir af sér Telur ólíklegt að aðrar þjóðir berjist með Dönum Hátt í hundrað á fjöldahjálparstöð Bæjarfulltrúar slást um oddvitasætið í Hafnarfirði Ekki fengið kvartanir um Grok-myndir af íslenskum konum Neyðarástand í uppsiglingu takist ekki að fjölga sjúkraliðum Mistök ollu því að sumir fengu ekki boð Þessi sóttu um hjá Höllu Kynferðisbrot gegn dreng í Hafnarfirði komið til saksóknara Ungt barn með mislinga á Landspítalanum Halda í opinbera heimsókn til Eyja Ekki komið til héraðssaksóknara Gjaldskylduskógurinn verði grisjaður Stormur í aðsigi: Ræða sviptingar í alþjóðastjórnmálum í pallborði Sex á slysadeild og bílarnir óökufærir Leigubílstjóri sem keypti vændi fær ekki að starfa áfram Meðalaldur hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og ljósmæðra heldur áfram að hækka „Málið er að ástandið fer versnandi“ Ekið inn í verslun og á ljósastaur Þvag, saur og uppköst í klefum Leitar afkomenda Ungverjanna sem komu til Íslands fyrir sjötíu árum Símabann skilað góðum árangri þó sumir stelist í símann „Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Hildur hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin Rússneskt skip í íslenskri lögsögu og nemendur eiga erfitt með símabann Kleip og sparkaði í fjölda lögreglumanna og látin dúsa í einangrun mánuðum saman Sjá meira