Fleiri fréttir

Prenta flestar bækur sínar á Íslandi

Útgáfufyrirtækið Forlagið hyggst prenta mest allar bækur sínar hér á landi fyrir jólin í ár. Prentsmiðjan Oddi og Forlagið hafa gert með sér samning um prentun nánast allra titla hins síðarnefnda fyrir þessi jól. Oddi mun prenta um 70 titla fyrir Forlagið. Í tilkynningu segir að líklega sé um að ræða stærsta samning um prentun bóka á Íslandi frá upphafi.

Hvíta-Rússland óska eftir láni hjá IMF

Yfirvöld í Hvíta-Rússlandi hafa beðið Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um lán. Talsmaður seðlabankans þar í landi staðfesti þetta í morgun, og sagði þetta gert til að til að viðhalda stöðugleika og hagvexti í Sovétlýðveldinu fyrrverandi. Hann sagði upphæð lánsins velta á gjaldeyrissjóðnum sjálfum, en Interfax fréttastofan hefur það eftir starfsmanni seðlabankans að lánið sé upp á tvo milljarða dollara.

Fundað í utanríkisráðuneytinu um Icesave

Fundur stendur nú yfir í utanríkisráðuneytinu þessa stundina þar sem íslenskar og breskar sendinefndir ræða lausn á deilu landanna vegna Icesave-reikninga Landsbankans.

Dæmdir fyrir barsmíðar á þorrablóti

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt tvo menn í þriggja og tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir fyrir utan íþróttahúsið í Þorlákshöfn í febrúar í fyrra.

Obama að ná afgerandi forystu

Forskot Baracks Obama á John McCain er nú orðið meira en nokkru sinni áður ef marka má nýja skoðanakönnun CNN.

Bréf með dufti til bandarískra banka

Rúmlega þrjátíu skammarbréf sem hafa auk þess innihaldið óþekkt hvítt duft, hafa verið send bandarískum bönkum upp á síðkastið.

Sjötíu prósenta hækkun lána

Lán smábátaflotans hafa hækkað um liðlega sjötíu prósent á einu ári vegna hækkunar gengisvísitölunnar, að mati Landssambands smábátaeigenda.

Játuðu innbrot í söluskála

Þrír menn, sem lögreglan í Reykjavík handtók í fyrrinótt að beiðni lögreglunnar á Selfossi, játuðu við yfirheyrslur undir kvöld í gær að hafa brotist inn í söluskála við Árnes og stolið þaðan talsverðum verðmætum fyrir nokkrum dögum.

Brotist inn í apótek í Árbæ

Brotist var inn í apótek í Árbæjarhverfi undir morgun og þaðan stolið lyfjum. Lögregla er nú að rannsaka upptökur úr eftirlitsmyndavélum þar sem sést til tveggja manna, en ekki var búið að ná þeim nú fyrir fréttir.

Skipbrotsmennirnir heilir heim

Dragnótabáturinn Sólborg kom til Reykjavíkur á miðnætti með báða skipbrotsmennina af hraðfiskibátnum Mávanesi, sem brann og sökk á Faxaflóa í gærkvöldi. Þeir voru heilir á húfi.

Afl vill óháðan rannsóknarhóp

Afl, starfsgreinafélag, ætlar að leggja það fyrir ársfund Alþýðusambandsins á morgun, að fundurinn krefjist þess að óháður aðili, utan fjármálaeftirlits, seðlabanka eða stjórnvalda,

Yfirdrátturinn algengur

Rösklega helmingur ungra félaga í aðildarfélögum Alþýðusambandsins er með yfirdrátt í viðskiptabönkum sínum, samkvæmt könnun, sem Alþýðusambandið lét gera nýverið.

Tveimur bjargað um borð í Sólborgina

Mönnunum tveimur sem lentu í því að eldur kom upp í bát þeirra, Mávanesinu, var bjargað um borð í Sólborgina og eru þeir á leið til hafnar í Reykjavík. Að sögn Ólafar Snæhólm sakaði mennina ekki og var þyrlu Lanhelgisgæslunnar snúið við.

Bátur fékk á sig brotsjó

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Reykjavík og Hafnarfirði og tveir harðbotna björgunarbátar eru nú á leið að báti sem fékk á sig brotsjó og eldur kom upp í á Faxaflóa, suður af Snæfellsnesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Ingibjörg ræddi við Rice

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddi í dag við Condoleezu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna um stöðu fjármálakerfis Íslands og þau úrræði sem unnið er að. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir einnig að Rice hafi lýst yfir áhyggjum af málinu og mun hún taka það upp við aðra fulltrúa bandarískra stjórnvalda.

Bankar hunsa tilmæli ráðherra

Bankar og lánastofnanir virðast hunsa tilmæli ríkisstjórnarinnar um frystingu íbúðalána. Dæmi eru um að bankar krefjist vaxtahækkunar gegn því að frysta lán.

Finnur með tvær milljónir á mánuði

Stjórn Nýja Kaupþings hefur ráðið Finn Sveinbjörnsson sem bankastjóra. Finnur tekur við af Hreiðari Má Sigurðssyni á morgun, þó aðeins með brot af launum forvera síns eða 1950 þúsund á mánuði.

Önnur bresk sendinefnd á leiðinni

Von er á annari sendinefnd frá breskum yfirvöldum til Íslands til þess að reyna að leiða deiluna um innlán breskra ríkisborgara í íslenskum bönkum til lykta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá breska fjármálaráðuneytinu og segir að í nefndinni verði yfirmenn frá Seðlabanka Englands og háttsettir menn úr fjármálaráuneytinu.

Síldinni mokað upp við Stykkishólm

Þrjú síldveiðiskip fylltu sig nánast uppi í landsteinum við Stykkishólm í dag og mokuðu þar upp samtals hátt í tvöhundruð milljóna króna gjaldeyrisverðmæti. Nærri þrefalt hærra verð fæst fyrir síldina nú en í fyrra.

Mögulegar flóttaleiðir frá landinu

Lántaka ríkisins til að endurreisa íslenskt efnhagslíf gæti numið 16 milljónum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Almenningur á þó ýmsa möguleika í stöðunni til að komast hjá því að greiða fyrir hina misheppnuðu útrás.

Tekjum skotið undan skatti

Hópur fólks hefur skotið tekjum undan samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum Ríkisskattstjóra. Þetta sést á yfirlitum um hreyfingar á greiðslukortum sem eru skuldfærð af erlendum reikningum en notuð á Íslandi.

Fastir í Færeyjum í heila viku

Um fjörutíu manna hópur Íslendinga, sem sigldi með farþegaskipinu Norrænu, er veðurtepptur í Færeyjum og gert er ráð fyrir að hópurinn komist ekki heim fyrr en eftir viku.

Sérfræðinganefnd metur tjón Seðlabankans

Seðlabanki Íslands hefur falið sérfræðinganefnd til að meta eignir og skuldir nýju og gömlu bankanna og því liggur ekki fyrir hvert tjón Seðlabankans verður vegna falls bankanna þriggja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum þar sem segir einnig að Seðlabankinn fari að líkindum ekki tjónlaus út úr fallinu.

Vilja sérstaka rannsókn á Fannie Mae og Freddie Mac

Háttsettir menn úr röðum þingmanna Repúblikanaflokksins í fulltrúadeildinni vilja að dómsmálaráðuneytið skipi sérstaka nefnd til að rannsaka ákvarðanir stjórnenda fasteignalánasjóðanna Fannie Mae og Freddie Mac.

Þrír í farbann vegna fíkniefnasmygls

Þrír karlar á aldrinum 17 til 28 ára hafa verið úrskurðaðir í farbann til 2. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Fagna þjónustusamningi um heimahjúkrun

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar markmiðum yfirlýsingar heilbrigðisráðherra og borgarstjórans í Reykjavík frá 8. október síðastliðnum um þriggja ára þjónustusamning um sameiginlega stjórnun heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu Reykjavíkurborgar.

Fresta því að kaupa nýja slökkvibíla vegna kreppunnar

Stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins ákvað á fundi sínum fyrir helgi að hætta við fyrirhuguð kaup á fjórum slökkvibifreiðum og taka ákvörðun um þau síðar. Hugsanlegt er að kaupunum verði dreift yfir lengri tíma.

Ekki má sópa neinu undir teppið

Samstaða í stjórnmálum við núverandi aðstæður í samfélaginu er mikilvæg, að mati Dags B. Eggertssonar borgarfulltrúa Samfylkingarinnar. Mikilvægt er að víðtæk samstaða takist um öryggi og velferð, skjaldborg verði slegið um atvinnulíf og fjölskyldur, eftir því sem nokkur er kostur.

Ísafjarðarbær leggur fram aðgerðaáætlun

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt sérstaka aðgerðaáætlun til að til að bregðast við breytingum á umhverfi í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir