Innlent

Sakfelldur fyrir mannrán og humarþjófnað

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ýmis brot, meðal annars fyrir mannrán.

Maðurinn var ásamt félaga sínum ákærður fyrir að hafa svipt þriðja manninn frelsi sínu við Garðskagavita í febrúar í fyrra og fært hann nauðugan upp í bíl. Þaðan óku þeir í Sandgerði en á leiðinni sló hinn ákærði fórnarlambið ítrekað í andlit, bak og maga og sparkaði einnig í hann. Í kjölfarið neyddi hinn ákærði fórnarlambið til þess að fara í verslun Samkaupa/Úrval í bænum og taka þaðan út 50 þúsund krónur úr peningaskáp. Peningana hirti hinn ákærði.

Hann var einnig ákærður fyrir þrjú þjófnaðarbrot, meðal annars fyrir að hafa í félagi við tvo menn brotist inn í tvö fyrirtæki og stolið þaðan tölvum. Enn fremur fyrir að hafa í félagi við annan mann stolið 170 kílóum af humri úr frystigámi í Reykjanesbæ, en verðmæti humarsins var 680 þúsund krónur. Enn fremur var maðurin ákærður fyrir að hafa í tvígang verði gripinn með fíkniefni í fórum sínum.

Maðurinn á að baki sakaferil sem nær allt til ársins 1997. Hann hafði í fyrra verið dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir ýmis brot en brotin sem hann var nú dæmdur fyrir áttu sér stað áður en dómurinn gekk. Því var manninnum dæmdur hegningarauki.

Segir í dómnum að frelsisviptingin og líkamsárásin hafi verið mjög fólskuleg og að hann hafi stolið verulegum verðmætum. Hins vegar hafi lunginn af þeim komist til skila. Þá tók dómurinn tillit til þess að nokkuð langt hefði verið liðið frá því að ákærði framdi brotin. Þótti fjögurra mánaða dómur því hæfileg refsing.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×