Síldinni mokað upp við Stykkishólm 21. október 2008 18:52
Þrjú síldveiðiskip fylltu sig nánast uppi í landsteinum við Stykkishólm í dag og mokuðu þar upp samtals hátt í tvöhundruð milljóna króna gjaldeyrisverðmæti. Nærri þrefalt hærra verð fæst fyrir síldina nú en í fyrra. Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, var í síldarævintýri á Breiðafirði, og heilsaði upp á sjómenn um borð í Bjarna Ólafssyni AK. Það er tilkomumikið að sjá þessi stóru veiðiskip athafna sig aðeins örfáa tugi metra frá ströndinni. Hér kastar Börkur nótinni en þarna er svo grunnt að hún nær niður á botn. Skipið siglir svo umhverfis síldartorfuna og girðir hana þannig af með nótinni. Henni er síðan lokað í botninn og hún dregin saman upp að skipinu. 450 tonn fengust þar, þrjátíu til fjörutíu milljóna gjaldeyrisverðmæti í einu kasti. Skipstjórarnir mega hafa sig alla við innan um óteljandi eyjar og sker og reyndar neyddist skipstjórinn á Ásgrími Halldórssyni til að hætta við eitt kastið í dag þegar hann næstum lenti upp á boða. Hér eru skipverjarnir á Bjarna Ólafssyni búnir að ná 300 tonna kasti, dælan er sett út og hafist handa við að ná síldinni um borð. Í fyrra fengust ellefu krónur fyrir kílóið en nú fæst nærri þrefalt meira fyrir síldina, hátt í þrjátíu krónur. Sjómennirnir segja síldina betri nú en þá síld sem fékkst í Breiðafirði í fyrra. Tekjurnar nú bæti fyrir dapra loðnuvertíð. Sjómennirnir höfðu á orði að þeir gætu nánast horft inn um eldhúsgluggana í Hólminum um leið og þeir nytu náttúrufegurðar við Breiðafjörð. Og kokkurinn naut lífsins í veðurblíðunni enda stilltur sjór. En þetta snýst þó um allt annað, að afla tekna fyrir þjóðarbúið. Skipin þrjú fylltu sig öll í dag, af síld sem þau sigla með ýmist í Horrnafjörð eða Neskaupstað þar sem hún verður flökuð eða fryst og síðan seld til útlanda, einkum til Rússlands, sem virðist borga best þessa dagana. Okkur reiknast til að afli þessara þriggja skipa rétt utan við Stykkishólm á þessum eina degi skili þjóðarbúinu um tvöhundruð milljóna króna gjaldeyristekjum.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira