Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölgun framundan í mannafla slökkviliðs höfuðborgarinnar Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefur ákveðið að fjölga slökkvistöðvum á höfuðborgarsvæðinu á næstu misserum og byggja m.a. tvær stöðvar í stað þeirrar við Tunguháls, sem verður lokað. 6.9.2008 11:08
Gunnar Nelson berst í Kaupmannahöfn í kvöld Íslenski bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson berst sinn sjötta atvinnumannabardaga í blönduðum bardagaíþróttum (MMA) á Adrenalínmótinu í Kaupmannahöfn í kvöld. 6.9.2008 11:01
Flugumferðarstjórar lýsa yfir stuðningi við ljósmæður Félag íslenskra flugumferðarstjóra lýsir yfir eindregnum stuðningi við ljósmæður í kjarabaráttu þeirra. 6.9.2008 10:41
Búist við heitavatnsskorti á öllu höfuðborgarsvæðinu í dag Búist er við heitavatnsskorti á öllu höfuðborgarsvæðinu fram eftir degi í dag. Önnur aðalheitavatnsæðin til borgarinnar, Reykjaæð 1, fór í sundur við Laxalón í morgun. 6.9.2008 10:24
Kveikt var í Keikókvínni við Vestmannaeyjar Lögreglunni í Vestmannaeyjum barst tilkynning um sjö-leytið í morgun um að eldur logaði í Keikókvínni , sem liggur í Klettsvík. 6.9.2008 10:13
Vill að unglingar læri að koma auga á hryðjuverkamenn Aðstoðarborgarstjóri í Kaupmannahöfn vill að kennarar, skátaleiðtogar og aðrir sem umgangast unglinga læri að koma auga á upprennandi hryðjuverkamenn. 6.9.2008 09:57
Atkvæðagreiðsla hafin á ný í Angóla Atkvæðagreiðsla í Afríkuríkinu Angóla hófst á ný í dag eftir upplausnarástandið í gær, þegar ekki tókst að opna alla kjörstaði. 6.9.2008 09:54
Jeppabifreið valt í Ártúnsbrekku Jeppabifreið valt í Ártúnsbrekku í Reykjavík um klukkan átta í morgun. 6.9.2008 09:46
Neyðarástandi lýst eftir að Hanna náði landi í Bandaríkjunum Hitabeltisstormurinn Hanna gekk á land í Bandaríkjunum í nótt, á landamærum Norður- og Suður-Karolínu. 6.9.2008 09:41
Talsvert um slagsmál og pústra í Reykjanesbæ Mikið annríki var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt vegna ölvunar og óspekta í miðbæ Reykjanesbæjar en þar stendur nú yfir hátíðin Ljósanótt. Talsvert var um slagsmál og pústra en enginn slasaðist þó alvarlega. Fjórir gistu fangageymslur og þá var einn tekinn grunaður um ölvun við akstur. 6.9.2008 09:21
Tveir 16 ára strákar teknir með hass á Selfossi í nótt Tveir 16 ára drengir voru teknir með fíkniefni undir höndum á Selfossi í nótt. 6.9.2008 09:15
Franska konan fannst í Landmannalaugum heil á húfi Frönsk kona sem leitað var að í alla nótt fannst nú skömmu eftir klukkan átta í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu var koman heil á húfi og amaði ekkert að henni. Hún fannst skammt frá Landamannalaugum, við Suðurnámur. 6.9.2008 09:02
Ókeypis í sund um helgina Ný og glæsileg sundmiðstöð, Ásvallalaug, í Hafnarfirði verður opnuð í dag við hátíðlega athöfn. Ókeypis aðgangur verður fyrir alla sundgesti í dag og á morgun en laugin verður opin frá þrjú til átta í dag og frá átta til átta á morgun. 6.9.2008 00:01
Hæstiréttur úrskurðar Þorstein Kragh áfram í sex vikna gæsluvarðhald Hæstiréttur úrskurðaði í dag að Þorsteinn Kragh skuli sitja áfram í gæsluvarðhaldi næstu sex vikurnar vegna rannsóknarhagsmuna. Þorsteinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í byrjun júlí, grunaður um aðild að stóra hassmálinu svokallaða. 5.9.2008 21:05
Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur á Bústaðarvegi Ökumaður vélhjóls og ökumaður fólksbíls voru fluttir á slysadeild eftir árekstur á Bústaðarvegi um hálfníuleytið í kvöld. Tildrög slyssins eru ókunn. Ekki er vitað hversu alvarlega ökumennirnir slösuðust. 5.9.2008 21:37
Á annað þúsund hafa skráð nöfn sín í minningarbók um biskup Um 1100 manns eru búnir að skrá nöfn sín í minningarbók um Sigurbjörn Einarsson biskup. Bókin hefur legið frammi á Biskupsstofu í Kirkjuhúsinu undanfarna daga. Sigurbjörn andaðist þann 28. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju á morgun klukkan 14. 5.9.2008 20:35
Írakar æfir yfir fregnum af njósum Bandaríkjamanna í Írak Bandarísk stjórnvöld hafa njósnað um Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, og fleiri ráðamenn Írak eftir því sem rannsóknarblaðamaðurinn Bob Woodard fullyrðir í nýrri bók um Bush-stjórnina. 5.9.2008 16:41
Lögreglan á Blönduósi fann fíkniefni Lögreglan á Blönduósi gerði húsleit í dag, að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Norðurlands vestra. Ástæða húsleitarinnar var grunur um vörslu, neyslu og dreifingu fíkniefna á svæðinu. 5.9.2008 19:58
Sextíu prósent aukning á bjórútflutningi Bjórinn Skjálfti, sem hefur verið seldur á Íslandi um skeið, er nú að leggja í landvinninga þar sem hafinn hefur verið útflutningur á honum til Danmerkur. Bjórinn mun koma á markað eftir helgi í verslunum Magazin Du Nord í Kaupmannahöfn. Þá mun COOP verslunarkeðjan í Danmörku selja jólabjór sem framleiddur verður hjá Ölvisholt Brugghús í Flóahreppi. 5.9.2008 19:36
Bankastjóri orðaður við Landsvirkjunarstól Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, vill ekki tjá sig um sögusagnir þess efnis að hann hyggist sækja um starf forstjóra Landsvirkjunar. 5.9.2008 18:51
Hvergi meiri kaupmáttarrýrnun en hér á landi Íslendingar hafa á nokkrum mánuðum tapað næstum helmingi af góðærinu frá 2004. Hvergi meðal iðnvæddra ríkja er spáð meiri rýrnun kaupmáttar á þessu ári en hér á landi, eftir því sem fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2. 5.9.2008 18:42
Læknanemar styðja ljósmæður Læknanemar í verknámi á kvennasviði Landspítala háskólasjúkrahúss styðja kjarabaráttu ljósmæðra og hvetja ráðamenn þjóðarinnar til að tryggja að gengið verði hratt og örugglega til samninga við ljósmæður. Þetta kemur fram í tilkynningu sem læknanemar sendu frá sér fyrir stundu. 5.9.2008 17:28
Vestfirskir háskólanemar í siglingu um firðina Meistaranemar og kennarar í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða munu leggja af stað í þriggja daga námsferð á 60 feta seglskútu um Vestfirði á hádegi næstkomandi mánudag. 5.9.2008 17:15
Stefna að því að klára hrefnuveiðikvóta í þessum mánuði Búið er að veiða 37 hrefnur af þeim 40 dýra kvóta sem sjávarútvegsráðherra gaf út í vor. Þetta kemur fram á heimasíðu Félags hrefnuveiðimanna, hrefna.is. 5.9.2008 17:06
Náðu skartgripum fyrir á aðra milljón króna Tveir karlmenn, sem grunaðir eru um að hafa tekið skartgripi ófrjálsri hendi í verslun á Laugavegi um hádegisbil í gær, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 10. september. 5.9.2008 16:57
Danir búast við frekari árásum Al Kæda Greiningardeild dönsku lögreglunnar telur að nýtt myndband þar sem Al Kæda hótar frekari árásum á Danmörku sé ófalsað. 5.9.2008 16:49
Kröfu Jóns um tvo verjendur vísað aftur heim í hérað Hæstiréttur vísaði í dag aftur heim í hérað kröfu Jóns Ólafssonar athafnamanns um að Sigurður G. Guðjónsson og Ragnar Aðalsteinsson yrðu báðir verjendur hans í máli efnhagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á hendur Jóni vegna meintra skattalagabrota. 5.9.2008 16:31
Hæstiréttur ómerkti úrskurð um nýja rannsókn á kynferðisbroti Hæstiréttur hefur ómerkt úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur að hefja skuli að nýju rannsókn á máli þar sem karlmaður er grunaður um kynferðisbrot gegn ungri dóttur sinni. 5.9.2008 16:15
Rice rýfur hálfrar aldar einangrun Libyu Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom í dag í heimsókn til Libyu. Það er í fyrsta skipti í meira en hálfa öld sem bandarískur utanríkisráðherra heimsækir landið. 5.9.2008 15:58
Palestínska flóttafólkið á leiðinni Palestínska flóttafólkið frá Al Waleed flóttamannabúðunum í Írak kemur til landsins á mánudagskvöldið eftir langt ferðalag frá Írak í gegnum Sýrland. Um er að ræða 29 manns og verður þeim ekið beint til sinna nýju heimkynna á Akranesi. 5.9.2008 15:32
Rændi verslun 10-11 með sprautunál Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú manns sem rændi verslun 10-11 við Eggertsgötu þar sem stúdentagarðar Háskóla Íslands eru til húsa. 5.9.2008 15:18
Var í lífshættu eftir árás eiginmanns Eiginkona manns sem í dag var úrskurðaður í gæsluvarðahald vegna gruns um að hafa gengið í skrokk á henni var um tíma í bráðri lífshættu. 5.9.2008 14:50
Mannslátið á Skúlagötu: Tvímenningar bera við minnisleysi Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna meintrar aðildar sinnar að mannsláti að Skúlagötu bera við minnisleysi í yfirheyrslum hjá lögreglu. 5.9.2008 14:42
Dæmdur fyrir árás eftir deilur um Ólafsvík Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás fyrir utan veitingahús í Norðlingaholti í fyrrahaust. 5.9.2008 14:40
Íslenski fanginn á leið heim Fannar Gunnlaugsson, íslendingurinn sem hefur mátt dúsa í rúman mánuð í fangelsi í Nevada í Bandaríkjunum fyrir að endurnýja dvalarleyfi sitt tveimur dögum of seint, er á leið til Íslands. 5.9.2008 14:30
Kanómaður áfrýjar dómi vegna fjársvika Breskur karlamaður sem dæmdur var í rúmlega sex ára fangelsi fyrir að setja dauða sinn á svið og svíkja þannig út tryggingarfé hefur ákveðið að áfrýja dómnum. Frá þessu greina breskir miðlar í dag. 5.9.2008 14:25
Telur sæstrengi frekar vernda hafsbotninn við Surtsey Deilt hefur verið um þá ákvörðun að leggja sæstrengi í gegnum friðlandið við Surtsey. Jafnvel talað um að hún verði tekin af Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. 5.9.2008 14:24
Sjúkraflutningamenn í Árnessýslu styðja ljósmæður Félag sjúkraflutningamanna í Árnessýslu hefur bæst í ört stækkandi stuðningsmannahóp ljósmæðra sem standa nú í kjarabaráttu við ríkið. 5.9.2008 14:06
Jórdanir senda Palestínumönnum vopn Ísraelar samþykktu fyrir nokkru að Jórdanir sendu um eittþúsund nýja hríðskotariffla til öryggissveita Mahmouds Abbas, forseta Palestínu á Vesturbakkanum. 5.9.2008 13:37
Cheney í Úkraínu Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, ræðir í dag við leiðtoga Úkraínu, eftir ferð sína til Georgíu. Cheney hefur hvatt forystumenn beggja ríkja til að leggja áherslu á aðild að NATO, en stjórnarkreppa sem blossaði upp í Úkraínu fyrr í vikunni kann að flækja fyrir því. 5.9.2008 13:06
Tóku skóflustungu að Lækningaminjasafni á Seltjarnarnesi Fyrsta skóflustungan að byggingu Lækningaminjasafns Íslands við Nesstofu á Seltjarnarnesi var tekin í morgun. Kostnaður við bygginguna er áætlaður um 400 milljónir króna. 5.9.2008 12:56
Í gæsluvarðhald eftir hrottalega árás á sambýliskonu Karlmaður var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á þriðjudag vegna gruns um að hann hafi gengið í skrokk á sambýliskonu sinni. 5.9.2008 12:41
Fjölmenni á stuðningsfundi við ljósmæður Talið er að nokkur hundruð manns hafi safnast saman á Austurvelli til þess að styðja ljósmæður í kjarabaráttu sinni. Ekkert hefur þokast í deilu ljósmæðra og ríkisins en fyrsta verkfallinu lýkur á miðnætti. 5.9.2008 12:39
Akureyringar minna Reykvíkinga á ábyrgð og skyldur höfuðborgar Bæjarráð Akureyrar, höfuðstaðar Norðurlands, telur ástæðu til að minna borgarstjórn Reykjavíkur á ábyrgð og skyldur sem höfuðborg landsins ber gagnvart landsmönnum öllum. 5.9.2008 12:34
McCain boðar breytingar John McCain þáði í gærkvöldi útnefningu repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum sem frambjóðandi flokksins í forsetakosningunum í nóvember. Þó að hann myndi sem forseti taka við af öðrum repúblikana, þá lagði hann áherslu á breytingar sem þyrfti að gera í Bandaríkjunum. 5.9.2008 12:28
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent