Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sex vikna gæsluvarðhald í kjölfar ryskinga í híbýlum hælisleitenda Til ryskinga kom á milli tveggja manna í híbýlum hælisleitenda í Njarðvíkum í gær sem enduðu með því að einn var handtekinn og hefur hann nú verið dæmdur í sex vikna gæsluvarðhald. Enginn slasaðist alvarlega í slagsmálunum en sá handtekni er sagður hafa veifað hnífi og rispaðist sá sem slóst við hann lítillega. 12.9.2008 18:18
Óbreytt staða í ljósmæðradeilunni Sáttafundi í kjaradeilu Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefndar ríkisins lauk um klukkan fimm án þess að niðurstaða fengist í deiluna. Bára Hildur Jóhannsdóttir, formaður samninganefndar ljósmæðra, segir að ekkert nýtt hafi komið fram á fundinum og að staðan sé því óbreytt. 12.9.2008 18:04
Eimskip siglir til Ísafjarðar á nýjan leik Eimskip mun á næstunni hefja strandsiglingar á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur eftir langt hlé. Þetta er gert í samvinnu við viðskiptavini félagsins á Vestfjörðum og munu Ameríkuskip félagsins, Reykjafoss og Celia, sinna þessari þjónustu á tveggja vikna fresti til reynslu næstu þrjá mánuði. 12.9.2008 17:35
Gagnrýna launamun hjá ríkinu og á hinum almenna markaði Trúnaðarmannaráð SFR fundaði í dag. Á fundinum voru niðurstöður úr nýrri launakönnun SFR kynntar og að auki niðurstöður úr samanburði milli félaga í SFR og VR, að því er fram kemur í tilkynningu frá SFR. Í henni kemur meðal annars fram að þegar félagsmenn þessara stéttarfélaga eru skoðaðir þá kemur fram að starfsmenn ríkisins eru að meðaltali með 20% lægri laun en starfsmenn almenna markaðarins þegar sambærilegar stéttir eru skoðaðar. Þá var launamunur kynjanna hjá ríkinu einnig gagnrýndur harðlega. 12.9.2008 17:24
Jóhann og Harald greinir á um framtíðarsýn lögreglumála Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segist ekki geta tekið undir margt af því sem Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri viðrar í formála nýrbirtrar árskýrslu embættisins fyrir síðasta ár. 12.9.2008 17:16
Brotist inn í bifreiðar og hús í Bolungarvík Síðastliðna nótt var brotist inn í bifreiðar og farið inn í hús á nokkrum stöðum í Bolungarvík. Átta tilkynningar hafa borist lögreglu vegna þessa í dag, en vitað er að farið var inn í sex bifreiðar og ýmsum munum stolið úr þeim. Til dæmis I-pod spilara og GPS tæki. 12.9.2008 17:11
Forseti Djíbútí með flesta fylgdarmenn í fyrra Umfangsmesta heimsókn einstaks fyrirmennis fyrir lögreglu hingað til lands á síðasta ári reyndist heimsókn forseta Djíbútís, Ismails Omars Guelleh, í janúar á síðasta ári. 12.9.2008 17:06
Dýralæknir vill kæra meindýraeyði í milljónasjoppu Gunnar Örn Guðmundsson dýralæknir í Borgarnesi hyggst kæra meindýraeyðinn sem lógaði minknum í Leifasjoppu í gær. „Mér finnst þetta mjög gróf aðferð við að aflífa dýr Alveg hreint skelfileg bara," sagði Gunnar í samtali við Vísi. 12.9.2008 16:49
Nærri 500 tilkynningar um peningaþvætti Nærri 500 tilkynningar bárust efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra í fyrra um ætlað peningaþvætti sem er fjölgun um nærri 300 á milli ára. 12.9.2008 16:43
Hælisleitandi: Við erum ekki dýr, við erum fólk „Við erum ekki dýr, við erum fólk," Segir Fazad, hælisleitandi frá Íran, og einn þeirra sem leitað var hjá í aðgerð lögreglunnar á Suðurnesjum í gær. „Það komu sextíu lögreglumenn hingað með hund. Það voru allir sofandi. Þeir brutust inn í herbergin okkar og leituðu að vegabréfum og eiturlyfjum." segir Fazad. „Þeir voru með pappír frá dómara, sem enginn gat lesið af því hann var á íslensku." 12.9.2008 16:27
Týnd telpa fundin eftir 4 ár? Gríska lögreglan telur sig hafa fundið ítalska telpu sem hvarf á eynni Kos fyrir fjórum árum þar sem hún var í sumarfríi með foreldrum sínum. Hún var þá fjögurra ára gömul. 12.9.2008 16:18
Vill stýra fjárveitingum til lögreglustjóra Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri vill fækka lögreglustjóraembættum enn frekar og færa fjárveitingar til lögreglumála til Ríkislögreglustjóra. Þetta kemur fram í nýbirtri ársskýrslu Ríkislögreglustjóra fyrir síðasta ár. 12.9.2008 16:13
Keyptu fimm ára telpu til þess að hópnauðga Þótt það sé ekki venja í fréttum er rétt að geta þess að frásögnin sem hér fer á eftir er skelfileg lesning. Viðkvæmir ættu að hætta hér. 12.9.2008 16:00
Óttast ekki áhrif níræðs níðings á ímynd eldri borgara „Mér þykir mjög leitt að heyra þetta," segir Margrét Margeirsdóttir, formaður félags eldri borgara, um dóm yfir manni á níræðisaldri. Maðurinn var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart barnabarni sínu á ellefu ára tímabili. 12.9.2008 15:56
Farið þið hundrað sinnum til helvítis Hugo Chavez forseti Venesúela hefur rekið bandaríska sendiherrann úr landi og gefið honum 72 klukkustundir til þess að hypja sig, eins og forsetinn orðaði það. 12.9.2008 15:51
Fengu afhenta leiðsöguhunda Fjórir leiðsöguhundar fyrir blint og sjónskert fólk voru í dag afhentir notendum sínum við hátíðlega athöfn í húsakynnum Blindrafélagsins. Hundarnir hafa verið þjálfaðir í hundaskóla norsku blindrasamtakanna og hefur þjálfun þeirra tekið um það bil eitt ár. 12.9.2008 15:44
Furðar sig á orðum utanríkisráðherra „Það hefur eitthvað breyst síðan kosningaloforðin voru gefin," segir Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, um yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra um að ekki sé hægt að ganga að kröfum ljósmæðra í einum áfanga. 12.9.2008 15:28
Játaði á sig misheppnað rán með plaströri Tuttugu og fjögurra ára karlmaður játaði í dag á sig tilraun til ráns í verslun á Akueyri fyrr á árinu og bíður nú ákvörðunar dómara um refsingu. 12.9.2008 15:19
Ekkert aldurstakmark fyrir tæplega níðræðan níðing Tæplega níræður karlmaður sem í dag var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að níðast á barnabarni sínu í ellefu ár verður að öllu óbreyttu elsti fangi á Íslandi. 12.9.2008 15:19
Byrjað að steypa upp kerskála Helguvíkurálvers Byrjað var að steypa upp kerskála álvers Norðuráls í Helguvík í morgun eftir því sem segir í tilkynningu Reykjanesbæjar. 12.9.2008 14:50
Níræður dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir að níðast á barnabarni Tæplega níræður karlmaður hefur verið dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir að níðast á barnabarni sínu alla hennar barnæsku eða frá því að hún var 4 ára gömul og allt þar til að hún varð 15 ára. 12.9.2008 14:39
Biskupsstofa ætlar að fara yfir ákærur á hendur Gunnari Biskupsstofa vill ekki að svo stöddu tjá sig um mál séra Gunnars Björnssonar en Ríkissaksóknari gaf í dag út ákærur á hendur honum vegna meintra kynferðisbrota hans gegn tveimur unglingsstúlkum. 12.9.2008 14:34
Þingfundum frestað fram í septemberlok Tveggja vikna haustfundi Alþingis er lokið en á þinginu urðu níu frumvörp að lögum. 12.9.2008 14:12
Yfir 90 prósent segjast flokka sorp til endurvinnslu Níu af hverjum tíu Íslendingum segjast flokka sorp til endursvinnslu samkvæmt nýrri könnun sem Capacent gerði fyrir Úrvinnslusjóð. Hún var kynnt í dag um leið og hleypt var af stokkunum endurvinnsluviku þar sem kynnt verður mikilvægi endurvinnsu fyrir íslenskt samfélag. 12.9.2008 13:46
Samiðn vonsvikin með aðgerðaleysi stjórnvalda Miðstjórn Samiðnar lýsir yfir miklum vonbrigðum með þróun efnahagsmála og undrast aðgerðarleysi íslenskra stjórnvalda. Í ályktun á fundi miðstjórnar segir að bregðast þurfi við óðaverðbólgu og háum vöxtum. 12.9.2008 13:29
Mótmæla meðferð á hælisleitendum Boðað er til mótmæla við lögreglustöðina í Njarðvík klukkan tvö í dag vegna aðgerða lögreglu á suðurnesjum gegn hælisleitendum í gær. Sms skilaboð ganga nú manna á milli um þetta. Bloggarinn Haukur Már Helgason segir á síðu sinni að mótmælin séu friðsamleg og sjálfsprottin, og engin samtök standi bak við þau. Hann hafi þó tekið að sér að senda út fréttatilkynningu um málið. 12.9.2008 13:03
Neyslan minnkar en meira borgað fyrir neysluvörur Velta í dagvöruverslun dróst saman um tvö prósent á föstu verðlagi í ágúst miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta sýna nýjar tölur frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þegar horft er til breytilegs verðlags jókst velta dagvöruverslunar hins vegar rúm 18 prósent miðað við sama mánuð í fyrra. 12.9.2008 12:54
Palin til í stríð við Rússa ef þeir ráðast á Georgíu Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblíkanaflokksins í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í nóvember, styður aðild Georgíu og Úkraínu að Atlantshafsbandalaginu þrátt fyrir harða andstöðu Rússa. 12.9.2008 12:44
Ná tökum á eldum í Ermarsundsgöngum Slökkviliðsmenn náðu í morgun tökum á eldi sem logað hefur í Ermarsundsgöngunum milli Bretlands og Frakklands síðan um miðjan dag í gær. Enn mun þó loga í glæðum. Fjórtán manns slösuðust í eldsvoðanum, enginn alvarlega. 12.9.2008 12:39
Slapp vel þegar hann féll 10 metra í gljúfur Maður, sem féll um 10 metra ofan í gljúfur við Stóru Laxá , ofan við Flúðir í morgun, hefur verið fluttur á spítala að sögn björgunarsveitamanna. 12.9.2008 12:33
Leiður á að svara spurningum um stöðu krónunnar Því fer fjarri að krónan sé dauð að sögn forsætisráðherra sem segist vera orðinn leiður á því að svara spurningum um stöðu krónunnar. Hann segir ekki óeðlilegt að aðilar vinnumarkaðarins ræði sín á millli um mögulega þjóðarsátt. 12.9.2008 12:30
Flýið Ike eða deyið Fellibylurinn Ike er enn langt frá Texas en bandaríska veðurstofan lætur menn ekki velkjast í vafa um hvað gerist þegar hann tekur land í fyrramálið. Skilaboðin eru; flýið eða deyjið. 12.9.2008 12:13
Ekki klókt útspil hjá ráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir ákvörðun fjármálaráðherra að stefna ljósmæðrum fyrir ólögmætar uppsagnir, geta leitt til stigmögnunar deilunnar og að ákvörðunin sé ekki heppileg á þessum tímapunkti. 12.9.2008 12:09
Íbúðalánasjóður hefur lánað nærri 40 milljarða á árinu Íbúðalánasjóður lánaði 5,7 milljarða króna í ágúst sem er um sex prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. 12.9.2008 12:05
Fernt handtekið vegna fíkniefnamála á Akureyri Lögreglan á Akureyri hafði gærkvöld afskipti af þremur konum og karli í tveimur aðskildum fíkniefnamálum sem upp komu í bænum. Lögreglan leitaði í húsakynnum pars á þrítugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli. 12.9.2008 11:52
Ekki stendur til að beita bráðabirgðalögum í kjaradeilu ljósmæðra Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ekki hafi komið til umræðu eða standi til að beita bráðabirgðalögum í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins. 12.9.2008 11:36
Séra Gunnar ákærður fyrir kynferðisbrot Ríkissaksóknari hefur ákært séra Gunnar Björnsson, sóknarprest á Selfossi, fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum. 12.9.2008 11:29
Deildu um áhrif umhverfismats vegna Bakkaálvers Utanríkisráðherra sakaði Framsóknarflokkinn um þráhyggju í tengslum við umfjöllum um heildstætt umhverfismat fyrir Bakkaálver á Alþingi í dag. 12.9.2008 11:23
Ike truflar geimferðaáætlun Geimferðastofnanir Bandaríkjanna og Rússlands hafa frestað því að tengja rússneskt birgðafar við Alþjóða geimstöðina, þar sem stjórnstöðin í Texas hefur verið rýmd vegna fellibylsins Ike. 12.9.2008 10:49
Fær íþróttahús MR í bakgarðinn Í kjölfar umfjöllunar Vísis um skipulagsmál Vegamótastígs 7 – 9 hafði Kristinn Ingi Jónsson, eigandi Þingholtsstrætis 14, samband við ritstjórnina og sagði frá þeirri ákvörðun skipulagsyfirvalda að reisa nýtt íþróttahús Menntaskólans í Reykjavík beinlínis í garðinum hjá honum. 12.9.2008 10:45
Ingibjörg Sólrún: Ber enga ábyrgð á samningaviðræðum við ljósmæður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segist ekki semja við ljósmæður heldur sé það í höndum fjármálaráðherra. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 12.9.2008 10:35
Stefna fjármálaráðherra ekki til þess fallin að leysa kjaradeilu Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður stjórnar Kvennahreyfingar flokksins, segir það óheppilega vendingu og ekki til þess fallið að leysa kjaradeilu ljósmæðra að fjármálaráðherra hafi stefnt Ljósmæðrafélagi Íslands fyrir ólögmætar uppsagnir. 12.9.2008 10:30
Zuma næsti forseti Suður-Afríku Dómari í Suður-Afríku vísaði í dag frá spillingamáli sem var höfðað gegn Jacob Zuma, forseta Afríska þjóðarráðsins. Það er þá ekkert því til fyrirstöðu að hann verði næsti forseti landsins. 12.9.2008 10:25
Vill eftirlitsteymi með vistheimilinum borgarinnar Starfshópur á vegum velferðarssviðs borgarinnar leggur til að sett verði á stofn eftirlitssteymi til þess að fylgjast með vist- og meðferðarheimilum sem Reykjavíkurborg rekur. 12.9.2008 09:30
Féll 30-40 metra ofan í gljúfur við Stóru-Laxá Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Árnessýslu voru kallaðar út fyrir stundu vegna manns sem féll í gljúfur við Stóru-Laxá fyrir ofan Flúðir. 12.9.2008 09:28