Innlent

Eimskip siglir til Ísafjarðar á nýjan leik

Eimskip mun á næstunni hefja strandsiglingar á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur eftir langt hlé. Þetta er gert í samvinnu við viðskiptavini félagsins á Vestfjörðum og munu Ameríkuskip félagsins, Reykjafoss og Celia, sinna þessari þjónustu á tveggja vikna fresti til reynslu næstu þrjá mánuði.

„Á síðustu tveimur árum hefur Eimskip unnið náið með fyrirtækjum á Vestfjörðum með það að markmiði að ná fram aukinni hagkvæmni í flutningum til og frá svæðinu. Eðli málsins samkvæmt hefur félagið því fengið mjög sterk og jákvæð viðbrögð við þessari ákvörðun frá ýmsum fyrirtækjum sem þurfa að flytja vörur til og frá Vestfjörðum," segir í tilkynningu frá Eimskipi og því bætt við að þjónustan sé viðbót við vikulegar viðkomur gámaskipa Einskips á Reyðarfirði og í Vestmannaeyjum.

„Það er svo sannarlega ánægjulegt að geta boðið upp á þessa þjónustu á ný, eftir nokkurt hlé," segir Guðmundur P. Davíðsson, forstjóri Eimskips á Íslandi. „Jákvæð viðbrögð fólks og fyrirtækja á Vestfjörðum við þessari ákvörðun okkar komu okkur ekki á óvart. Vonir okkar standa til þess að þetta fyrirkomulag siglinga gefi góða raun og geti til frambúðar styrkt byggð og atvinnustarfsemi í þessum þýðingarmikla landshluta."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×