Fleiri fréttir

Ike nálgast Texas óðfluga

Öruggur dauðdagi bíður íbúa sumra strandsvæða Texas-ríkis hlýði þeir ekki fyrirmælum yfirvalda um að hafa sig á brott áður en fellibylurinn Ike skellur á ströndinni um helgina.

Innanríkisráðherra Bandaríkjanna hneykslaður

Innanríkisráðherra Bandaríkjanna, Dirk Kempthorne, segist stórhneykslaður á framferði starfsmanna sinna sem sýnt var fram á með ítarlegri rannsókn að hefðu haft óviðeigandi samskipti við starfsfólk og stjórnendur nokkurra olíu- og gasfyrirtækja sem þeim var ætlað að hafa eftirlit með.

Ók ölvuð utan í handrið

Ölvuð kona ók bíl sínum utan í handrið á Óseyrarbrú, austan Þorlákshafnar, um miðnættið. Hún slapp ómeidd. Bíllinn varð óökufær við ákeyrsluna og stóð á miðri brúnni, þegar lögreglu bar að og handtók konuna, sem gistir fangageymslur.

Ljósmæður reiðar fjármálaráðherra

Mikil reiði kom fram á félagsfundi ljósmæðra í gærkvöldi, yfir því að Árni Mathiesen fjármálaráðherra skuli hafa stefnt Ljósmæðrafélaginu fyrir ólöglegar uppsagnir í sumar og krefjist þess að þær verði dæmdar ólögmætar.

Brotlenti við Egilsstaði

Eins hreyfils erlend flugvél brotlenti utan flugbrautar á Egilsstöðum í gærkvöldi, en flugmaðurinn, sem er erlendur, meiddist ekki.

Árni stefnir ljósmæðrum

Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, hefur fyrir hönd ríkissins stefnt félagi ljósmæðra vegna ólöglegra fjöldauppsagna. Stefnan barst félagi ljósmæðra síðastliðinn föstudag. Þetta kom fram í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins.

Tsvangirai og Mugabe hafa komist að samkomulagi

Roberts Mugabe, forseti Simbabve, og Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu hafa komist að samkomulagi um myndun þjóðstjórnar. Viðræður um lausn á stjórnarkreppunni hefur staðið frá því að kosningar fóru fram í landinu í júlí.

Líf minks tók endi í Leifasjoppu (myndband)

Það er ekki á hverjum degi sem minkur finnst og gerir sig heimkominn við fjölbýlishús í Reykjavík. Þeim brá því heldur betur í brún systkinunum Jakobínu Helgu, Ara og Önnu Jónu Jósepsdóttur þegar þau sáu hvar einn slíkur var að spóka sig við Jórufell 10 í Breiðholti rétt fyrir klukkan fjögur í dag.

Vandræðaganginum verður að linna

Vandræðaganginum varðandi áfangaheimili borgarinnar verður að linna, sagði Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, í bókun á borgarráðsfundi í dag.

1000 enn á biðlista vegna frístundaheimila

Börnum á biðlistum eftir plássi á frístundaheimilum Reykjavíkurborgar hefur fækkað úr ríflega 1400 í ríflega 1000 frá því í liðinni viku. Meginástæðan fyrir þessum góða árangri er að tekist hefur að ráða fleiri starfsmenn til starfa á frístundaheimilin. Nú hafa 1800 börn fengið vistun á frístundaheimilunum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Stelpunni ekki synjað vegna þyngdar

Einstaklingum er ekki synjað um hjálpartæki á grundvelli þyngdar, að sögn forstöðumanns Hjálpartækjamiðstöðvar Tryggingastofnunar.

Íslendingur flytur

Víkingaskipið Íslendingur var í dag fluttur í sýningarsal á Fitjum sem opnar í Reykjanesbæ vorið 2009. Íslendingur hefur verið staðsettur við Fitjar síðastliðinn ár en þar hefur hann staðið úti fyrir gesti. Skipið sigldi til Ameríku árið 2000 í tilefni af afmæli landafundanna.

Geir: Horfur í efnahagsmálum eru betri

Atvinnuleysi í vetur verður minna en áður var spáð að og horfur í efnhagsmálum almennt betri að mati Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Hagvöxtur á öðrum ársfjórðungi þessa árs var mun meiri en spár gerðu ráð fyrir.

Segja ísraelska herinn hafa hindrað sjúkraflutningamenn

Eva Hauksdóttir sem er við hjálparstörf á vegum International Solidarity Movement í Palestínu ásamt systur sinni segir að ísraelski herinn hafi hindrað með táragasi og hljóðsprengjum að maður sem hermenn skutu í gær fengi læknisaðstoð.

Eldur slökktur í Ermarsundsgöngum

Ekkert manntjón varð í dag þegar eldur kviknaði í Ermarsundsgöngunum milli Bretlands og Frakklands. Göngin verða lokuð til morguns.

Vilja fjarstýra rennsli í lón á Ylströnd

Starfshópur á vegum borgarinnar leggur til að fjarstýrðum búnaði verði komið upp við Ylströndina í Nauthólsvík til þess að breyta lóninu þar í fjöru og láta þannig sjávarföllin hreinsa fjöruna.

Tíbetum hótað brottrekstri frá Nepal

Maóista-stjórnin í Nepal ætlar að reka úr landi alla tíbetska flóttamenn sem ekki hafa tilskilin leyfi. Yfir 20 þúsund Tíbetar búa í Nepal.

Kornabörn með nýrnasteina af þurrmjólk

Tugir kornabarnabarna eru á sjúkrahúsum í Kína vegna nýrnasteina og eitt barn hefur látist. Þetta er rakið við vissrar tegundar af þurrmjólk sem öll börnin neyttu.

Líðan Össurar enn óbreytt

Líðan Össurar Össurarsonar, sem fannst meðvitundarlaus við Höfatún á laugardagsmorgun, er óbreytt.

Rússar setja vígvæðingu í forgang

Forseti Rússlands segir að það sé forgangsverkefni að stórefla rússneska herinn. Lögð verður megináhersla á að búa hann nýjustu og bestu vopnum sem til eru.

Þjóðina skortir sterka leiðtoga

Þjóðina skortir sterka leiðtoga. Þetta má lesa út úr nýrri könnun um gildismat Íslendinga, sem Capacent kynnti í morgun.

Chavez fagnar komu rússneskra sprengjuflugvéla

Langdrægar rússneskar sprengjuflugvélar taka nú í fyrsta sinn, síðan kalda stríðinu lauk, þátt í heræfingum í Vesturheimi. Vélarnar fóru framhjá Íslandi í gær og fóru bandarískar orrustuþotur til móts við þær, en þær eru nú staddar hér á landi við æfingar. Hugo Chavez, forseti Venesúela, segir að rússnesku sprengjuflugvélarnar séu nú komnar þangað.

Umsóknum útlendinga um kennitölur fækkar nokkuð

Átján prósentum færri útlendingar fengu úthlutað kennitölu hjá Þjóðskrá á fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í vefriti dómsmálaráðuneytisins.

Telur að Sigurjón muni ekki vinna formannsslag

„Ég held að Sigurjón muni ekki vinna þann slag," segir Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, um hugsanlegt framboð Sigurjóns Þórðarsonar til formanns flokksins.

Deilt á Obama fyrir svínaummæli

Repúblikanar í Bandaríkjunum deila nú hart á Barack Obama forsetaframbjóðanda demokrata vegna ummæla hans, sem þeir segja að hafi verið beint að Söru Palin varaforsetaefni repúblikana.

Leitað í fórum 42 hælisleitenda

Hátt í 50 lögreglumenn frá mörgum embættum gerðu í morgun húsleit á sex stöðum í Reykjanesbæ hjá fólki, sem leitað hefur hælis hér á landi sem flóttamenn. Leitað var í fórum fjörutíu og tveggja hælisleitenda og gögn í fórum sumra þeirra gerð upptæk.

Sængurkonur liggja frammi á gangi

Miklar annir hafa verið á fæðingardeild Landspítalans frá því verkfall ljósmæðra hófst á miðnætti. Sængurlegudeildin er full og þar liggja þrjár nýbakaðar mæður frammi á gangi.

Ekkert í svörum ESA sem gerir kröfu um aðskilnað lána hjá Íbúðalánasjóði

Í svörum Eftirlitsstofnunar EFTA við fyrirspurnum Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns Vinstri - grænna, er ekkert að finna sem gerir kröfu um að Íbúðalánasjóður aðskilji félagsleg og almenn lán. Þetta fullyrti þingmaðurinn á Alþingi í dag. Formaður félags- og tryggingamálanefndar segir engar stórbreytingar á sjóðnum í pípunum.

Sjá næstu 50 fréttir