Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Powell reyndi að telja Bush ofan af Íraksstríði Colin Powell, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt frá því að hann reyndi að telja George W. Bush, bandaríkjaforseta, ofan af því að ráðast inn í Írak. Powell segist þá einnig telja að bandaríski herinn geti ekki komið á stöðugleika í landinu. 9.7.2007 11:57
Afgreiðslustúlkurnar báðar undir átján ára aldri Afgreiðslustúlkurnar sem voru við störf þegar ránið var framið voru báðar undir átján ára. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir ekki venju að ráða yngra starfsfólk en átján ára en slíkt hafi verið gert á tímabili vegna erfiðleika við að fá starfsfólk. 9.7.2007 11:35
Viðræður hafnar við vígamenn í Rauðu moskunni Pervez Musharraf, forseti Pakistan, hefur skipað samninganefnd til þess að ræða við vígamennina í Rauðu moskunni. Nefndin var skipuð eftir samráðsfund með áhrifamiklum klerkum sem réðu honum gegn því að ráðast inn í moskuna. Umsátrið um moskuna hefur nú staðið yfir í heila viku. 9.7.2007 11:18
Bruni í Tréverkshúsinu á Bíldudal rannsakaður sem íkveikja Vettvangsrannsókn lögreglunnar á Vestfjörðum sýnir að eldur hafi verið borinn að Tréverkshúsinu að Litlu Eyri á Bíldudal þann 20. febrúar síðastliðinn. Málið er því rannsakað sem íkveikja. Eldsvoðans varð vart skömmu fyrir hádegi og brann tæplega 600 fermetra iðnaðarhúsnæði til grunna. 9.7.2007 11:03
Jarðskjálfti í morgun Jarðskjálfti að stærð 3,5 á Richterskvarða varð í morgun klukkan 07:42. Skjálftinn átti sér upptök við Krísuvík á Reykjanesskaga. Fáeinir eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið. Jarðskjálftinn fannst í Reykjanesbæ. Skjálftar eru algengir við Krísuvík. 9.7.2007 10:49
Náði ekki að synda yfir Ermasundið Sundkappinn Benedikt LaFleur náði ekki markmiði sínu að synda yfir Ermasundið milli Englands og Frakklands. Benedikt lét af áformum sínum í nótt eftir 21 klukkutíma sund vegna mikilla strauma við strönd Frakklands. Hann segir það vonbrigði að ekki náðist að klára sundið en segist þó vera reynslunni ríkari. 9.7.2007 10:42
Breiðavíkursamtökin opna heimasíðu Vefslóð Breiðavíkursamtakanna verður opnuð formlega í dag og hefst dagskrá klukkan 13:30 með ávarpi formanns samtakanna, Páls Elíassonar. Klukkan 13:45 mun Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra opna heimasíðuna formlega. Athöfnin verður í safnaðarheimilinu við Laugarneskirkju. 9.7.2007 10:24
Varað við vegaskemmdum á Þingvallavegi Talsverðar skemmdir eru á vegaklæðningu á 1,5 kílómetra kafla á Þingvallavegi við Grafningsvegamót samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Eru ökumenn beðnir um að aka varlega á þessum kafla og hefur hraða verið takmarkaður við fimmtíu kílómetra. 9.7.2007 09:34
Farþegum um flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgar Um 17 þúsund fleiri farþegar fóru um flugstöð Leifs Eiríkssonar á fyrstu sex mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Alls fjölgaði farþegum um rúm 7 prósent. 9.7.2007 09:28
Ofnæmisviðbrögð vegna katta algeng Rannsókn vísindamanna við The Imperial College í Lundúnum sýnir að ekki aðeins þeir sem hafa ofnæmi fyrir köttum sýni við þeim ofnæmisviðbrögð sem líkjast astma á byrjunarstigi. 9.7.2007 09:00
Eiga enn eftir að finna eftirmann Rato Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins segjast ekki tilbúnir að tilnefna eftirmann Rodrigo de Rato, forseta Alþjóðagjaldeyrissjóðins (IMF) en þeir funda um málið á morgun. Rato er spænskur og hefur gegnt embættinu síðan 2004 en hann tilkynnti á fimmtudaginn að hann ætlaði að segja af sér vegna persónulegra ástæðna. 9.7.2007 08:16
Heita vatnið rennur á ný í Fossvogi Verið er að hleypa heitu vatni aftur á heitavatnsæð í Eyrarlandi í Fossvogi eftir að viðgerð á æðinni lauk um níu-leytið í kvöld. Um fimmtán sentimetra rifa hafði komið á rörið vegna tæringar og fossaði vatn þar út um stokkana. Erfitt reynist að finna skemmdina, en það tókst að lokum og er vonast til að fullur þrýstingur verði kominn á um kl. 22:00. 8.7.2007 21:32
Stígvél rokseljast á Hróarskeldu keyptu gestir á Hróarskeldur hátíðinni í Danmörku sér stígvél um helgina og talið að aldrei hafi selst jafn mörg slík á hátíðinni síðan hún var haldin fyrst 1971. Rignt hefur á tónleikagesti og þeir því þurft að vaða eðju milli sviða til að berja hljómsveitir augu og hlýða á þær. 8.7.2007 20:24
Ráðstefna fjölburaforeldra í Chicago Um helgina komu bandarískir fjölburaforeldrar saman með börnum sínum á árlegri ráðstefnu í Chicago. Tvíburum var þó ekki boðið - aðeins þríburum hið minnsta. 8.7.2007 20:21
Fjöldi manns í gleðigöngu samkynhneigðra Talið er að um sex hundruð þúsund manns hafi tekið þátt í árlegri gleðigöngu samkynhneigðra í Köln í Þýskalandi. Gangan þar er ein sú fjölmennasta í Evrópu og rekur sögu sína aftur til níunda áratugar síðustu aldar. 8.7.2007 20:18
Safnadagurinn er í dag Í dag er íslenski safnadagurinn haldinn um allt land. Flest söfn voru með dagskrá í tilefni dagsins og aðgangur var víða ókeypis. Þema dagsins var fyrir alla fjölskylduna og framkvæmdastjóri Safnaráðs fór með börnin á safnaflakk. 8.7.2007 20:16
Hvalaferðir ehf á Húsavík kaupa sinn þriðja bát Um miðjan dag í gær þann 07.07.07. sigldi nýr hvalaskoðunarbátur, Sylvía, inn til Húsavíkur í fyrsta skipti, fánum prýdd. Báturinn er 30 tonna eikarbátur sem upphaflega var smíðaður sem fiskveiðibátur hjá skipasmíðastöðinni Vör á Akureyri árið 1976 fyrir Grenvíkinga. 8.7.2007 19:44
Ný undur valin Þau eru mikilfengleg nýju undrin sjö sem voru kynnt í gær sem þau mikilfenglegustu í gjörvallri veröldinni. Kosið var milli fjölmargra undrastaða á netinu í tvö ár. Niðurstaðan vakti athygli þegar hún var kynnt í Lissabon í Portúgal í gærkvöldi og voru stórstjörnur víða að fengnar til að kynna undrin. 8.7.2007 19:15
Norska ríkið braut gegn börnum Norska ríkið braut á rétti barna til að fá tilhlýðilega menntun með kennslu í kristinfræði, trúfræði og lífsskoðunum í grunnskólum. Þetta er niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu í Strasborg. Siðmennt á Íslandi segir að dómurinn renni stoðum undir gagnrýni félagsins hér á landi. 8.7.2007 19:00
Banaslys í Norðurárdal Piltur um tvítugt lést í umferðarslysi við mynni Norðurárdals í morgun. Hann var á leið í vesturátt, niður af Öxnadalsheiði, á litlum jeppa en velti honum rétt við brúna yfir Norðurá.Hann var einn á ferð en vegfarandi sem kom að slysstaðnum tilkynnti lögreglu um atburðinn skömmu fyrir klukkan sjö í morgun. 8.7.2007 18:57
Sókn á Rússlandsmarkað Íslenska orkufyrirtækið ENEX sér fyrir sér sókn á rússneskan markað á næstunni með hjálp öflugra samstarfsaðila. Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur segir ýmsa möguelika felast í jarðhitasvæðum Rússa. Fulltrúar íslenskra orkufyrirtækja kynntu starfsemi sína fyrir rússneskum sérfræðingum og ráðamönnum á orku- og umhverfisráðstefnu í Mosvku í vikunni. 8.7.2007 18:45
Vatn komið á kerfið í Fossvogi um tíuleitið Íbúar í Fossvogi og nálægum hverfum í Reykjavík hafa verið heitavatnslausir frá því um tíu leytið í morgun. Mikill leki kom að heitavatnslögn sem tengist dælustöð Orkuveitu Reykjavíkur við Eyrarland í Fossvogi. Töluverðan tíma tók að finna uppruna bilunarinnar og tókst það ekki fyrr en upp úr klukkan fimm í dag. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að viðgerð sé nú hafin og vonast sé til að heitt vatn verði komið á kerfið á nýjan leik um klukkan tíu í kvöld. 8.7.2007 17:46
Opinberir starfsmenn brjóta lög um barneignir Yfirvöld í Hunansýslu í Kína segja að á árunum 200-2005 hafi næstum því tvö þúsund opinberir starfsmenni brotið bannið við því að eignast fleiri en eitt barn. Einn starfsmannanna átti fjögur börn með fjórum hjákonum sínum. Banninu er ætlað að draga úr fólksfjölgun í Kína, þar sem íbúar eru nú þegar á annan milljarð. 8.7.2007 17:35
Gæti þurft að hætta við sundið Líkur eru á að Benedikt Lafleur þurfi að hætta við sund sitt yfir Ermasundið. Eftir þrettán klukkustunda vagg í sjónum er hann farinn að finna fyrir sjóveiki, og á því að sögn Hermínu Ólafsdóttur aðstoðarkonu hans erfitt með að koma niður næringu. Hann er því orðinn bæði kaldur og þreyttur. 8.7.2007 16:53
Kolbrún Sara komin í leitirnar Kolbrún Sara Runólfsdóttir, 17 ára stúlka sem lýst var eftir í gærkvöldi, er komin í leitirnar. 8.7.2007 16:29
Banaslys í Skagafirði Banaslys varð við mynni Norðurárdals í Skagafirði rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Ökumaður lítils jeppa sem var að koma ofan af Öxnadalsheiði, velti bíl sínum, rétt við brúna yfir Norðurá. Hann var einn á ferð en vegfarandi tilkynnti lögreglu um slysið. Hann var látinn þegar að var komið. Lögreglumenn eru enn að störfum á vettvangi en ekki er vitað um tildrög slyssins á þessari stundu. 8.7.2007 13:37
Íslenski safnadagurinn er í dag Í dag er íslenski safnadagurinn haldinn um allt land. Flest söfn eru með dagskrá í tilefni dagsins og aðgangur er víða ókeypis. Þema dagsins er fyrir alla fjölskylduna. 8.7.2007 13:12
Líkamsárás á tjaldstæði á Akranesi Hópur manna gekk í skrokk á tveimur öryggisvörðum á tjaldstæðunum á Akranesi í nótt með þeim afleiðingum að annar rifbeinsbrotnaði. Mikil ölvun og erill var í bænum auk fjölda slagsmála. Íbúi á svæðinu segir ástandið hafa veirð eins og í dýragarði. 8.7.2007 12:40
Ný undur veraldar valin Þau eru tignarleg nýju undrin sjö sem valin voru þau mikifenglegustu í veröldinni gjörvallri í netkosningu sem lauk í gær. Úrslitin voru kunngjörð í gærkvöldi. 8.7.2007 12:25
Mýrin valin besta myndin Kvikmyndin Mýrin í leikstjórn Baltasar Kormáks var valin besta myndin á kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary í Tékklandi í gær. Baltasar var kominn heim af hátíðinni þegar hann hafi verið kallaður aftur út og sagt að hann yrði verðlaunaður. 8.7.2007 12:23
130 manns hið minnsta féllu Að minnst kosti 130 manns féllu og 240 særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Amirli í Norður-Írak í gær. Árásin eru sú mannskæðasta í Írak í 3 mánuði. 8.7.2007 12:19
Viðgerð stendur yfir á heitavatnslögn í Fossvogi Mikill leki kom að heitavatnslögn sem tengist dælustöð Orkuveitu Reykjavíkur við Eyrarland í Fossvogi í morgun. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að eftir að lokað var fyrir rennsli um lögnina hafi viðgerð hafist og að hún geti staðið fram eftir degi. Af þessum sökum er heitavatnslaust í nærliggjandi hverfum í Fossvogi. 8.7.2007 11:17
Ástralir vara við hryðjuverkum Áströlsk yfirvöld vara þegna sína við því að ferðast til Indónesíu vegna hryðjuverkahættu. Utanríkisráðuneytið varar ferðamenn sérstaklega við stöðum á borð við Bali og Jakarta sem það telur vera líkleg skotmörk. Sprengingar á næturklúbbum á Balí árið 2002 urðu 202 að aldurtila, þar af 88 áströlum. 8.7.2007 10:54
Eistlendingar heimsmeistarar í eiginkonuburði Eistlendingar nældu sér bæði í gull og silfurverðlaun á tólfta árlega heimsmeistaramótinu í eiginkonuburði í Finnlandi í gær. Þurftu keppendur að berjast við slagviðri og ofþreytu þar sem þeir klóruðu sig í gegnum 250 metra langa braut sem var alsett hindrunum og pollum, með eiginkonuna á bakinu. Sigurverarnir hlutu plasmasjónvarp og þyngd eiginkonunnar í bjór í verðlaun. Fjörtíu og fjögur pör tóku þátt í keppninni sem fór fram í bænum Sonkajarvi. 8.7.2007 10:16
Benedikt hálfnaður yfir Ermasundið Íslendingurinn Benedikt Lafleur er nú hálfnaður á sundi yfir Ermasund sem hófst klukkan fjögur í morgun að íslenskum tíma. Hann gerir ráð fyrir að sundið frá Dover í Englandi til Calais í Frakklandi taki um tuttutu klukkustundir. Samkvæmt aðstoðarmönnum sem fylgja honum á bát gengur sundið vel, veður er gott og sólbjart. Nú syndi hann í frönskum sjó. Benedikt tileinkar sundið baráttunni gegn mansali og klámvæðingu og er áheitasíminn 905 2020. Takist tilraunin er þetta í fyrsta sinn sem íslendingur syndir yfir Ermasundið. 8.7.2007 10:15
Live Earth lauk í nótt Live Earth tónleikunum lauk í New Jersey í Bandaríkjunum í nótt þegar söngvarinn Sting og hljómsveit hans The Police stigu á svið og skemmtu gestum. 8.7.2007 10:14
130 látnir í sjálfsvígsárás Að minnst kosti 130 manns týndu lífi og 240 særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Amirli í Norður-Írak í gær. Tuttugu borgarar eru enn týndir og óttast er að þeir hafi einnig látið lífið í árásinni sem er sú mannskæðasta í Írak síðan í apríl. 8.7.2007 10:11
Ofursti féll í átökum við Rauðu Moskuna Ofursti í pakistanska hernum féll í átökum við rótæka stúdenta við Rauðu moskuna í Íslamabad, höfuðborg Pakistans, í morgun. Skotið var á ofurstann þar sem hann leiddi herdeild sem var gert að sprengja gat á vegg moskunnar svo hægt yrði að frelsa hundruð kvenna og barna sem haldið er þar inni. 8.7.2007 10:10
Ný sjö undur heims Kínamúrinn, klettaborgin Petra í Jórdaníu, Kristsstyttan í Rio De Janeiro og hringleikahúsið í Róm eru meðal nýrra sjö undra heimsins. Hin þrjú eru fjallaborgin Macchu Picchu, Taj Mahal og forna Mayaborgin Chicken Itza. 8.7.2007 10:09
Láta tvö hundruð og fimmtíu Palestínumenn lausa Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í morgun að láta tvö hundruð og fimmtíu Palestínumenn lausa úr fangelsi. Þetta er gert til að styrkja neyðarstjórn Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, sem skipuð var í síðasta mánuði eftir að liðsmenn Hamas tóku völdin á Gaza-ströndinni og ráku liðsmenn Fatah-hreyfingar Abbas þaðan. 8.7.2007 10:07
Bíll valt við Sólheima Bíll valt við Sólheima í Grímsnesi á ellefta tímanum í gærkvöldi. Lögreglan á Selfossi sem og sjúkralið voru kölluð á vettvang. Útlendur karlmaður á þrítugsaldri var einn í bílnum og var nokkuð slasaður. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, var kölluð til og flaug með manninn á slysadeild Landsspítala háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Ekki fengust upplýsingar um líðan mannsins á slysadeild nú rétt fyrir fréttir. 8.7.2007 10:04
Ellefu bjargað úr sjálfheldu Ellefu ferðamönnum var bjargað úr sjálfheldu í Þórsmörk í gærkvöldi. Hópurinn hafði gengið yfir Fimmvörðuháls og tók vinstri beygju af Morinsheiði, sem leið lá niður í Hvannárgil. Þegar fólkið var komið sunnarlega í Útgönguhöfða lenti það í sjálfheldu og gat sig illa hrært. Fararstjóri hópsins komst við illan leik úr sjálfheldunni og gat hringt í Neyðarlínuna. 8.7.2007 10:04
Sértekjur Háskólans um 40% af tekjum Sértekjur Háskóla Íslands (HÍ) jukust verulega á síðasta ári og eru nú um 40 prósent tekna skólans. Hlutfallið hefur hækkað á milli ára, en árið 2005 voru sértekjurnar 34 prósent tekna skólans. Þeta kemur fram í Árbók skólans, sem kynnt var á ársfundi á fimmtudag. 8.7.2007 09:00
Vilja kláf og veitingahús á Eyrarfjall Tveir ungir Ísfirðingar hafa ráðist í fjármögnun á dráttarkláfi og veitingahúsi á Eyrarfjalli. Framkvæmdin kostar 450 til 500 milljónir króna. Um 30 þúsund viðskiptavini á ári þarf til að fjárfestingin borgi sig. Það telja þeir raunhæft. 8.7.2007 09:00
Nýjar túnþökur í Fossvogsdal spændar upp „Við vorum að reyna að stoppa þetta með því að leggja þökur en síðan hefur greinilega einhver keyrt þarna um,“ segir Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, um miklar skemmdir sem unnar voru á fimmtudag á nýlögðum túnþökum í Fossvogsdal. 8.7.2007 08:45