Fleiri fréttir Vinnuslys við Reykjanesbraut Vinnuslys varð við gatnamót Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar skömmu fyrir klukkan tvö. Verið var að loka sliskju á flutningavagni, eða skábraut, eftir að ýta hafði verið sett upp á vagninn en hún féll þá ofan á karlmann. 21.12.2006 14:32 Fær sex milljónir greiddar vegna læknamistaka Íslenska ríkið og læknir voru í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða manni hátt í sex milljónir króna í bætur, vegna læknamistaka, sem talið er að hafi orðið til þess að taka varð af vinstri fót mannsins fyrir ofan hné. 21.12.2006 14:18 Engum datt í hug að fjármálafyrirtæki gætu talið fram í evrum Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, telur þá ákvörðun Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka, að telja fram í evrum í stað krónu óheppilega. Þetta kom fram á Fréttamannafundi vegna stýrivaxtahækkunar Seðlabankans í morgun. Davíð sagði að þegar lögin hafi verið sett um að fyrirtæki gætu gert upp í evrum, þá hafi ekki verið gert ráð fyrir að fjármálafyrirtæki nýttu sér þá heimild. Þau hafi ekki formlega verið undanþegin í lögunum, en engum hafi heldur dottið það í hug að þetta gæti gengið til þeirra. Sérfræðingar óttast að fleiri bankar kunni að fylgja fordæmi Straums, sem gæti veikt stöðu krónunnar. 21.12.2006 14:15 Malbikað umhverfis Snæfellsjökul Berglín ehf. í Stykkishólmi átti lægsta tilboð í gerð 17 kílómetra langs vegar með bundnu slitlagi á utanverðu Snæfellsnesi. Með vegagerðinni lýkur malbikun vegarins milli Arnarstapa og Ólafsvíkur og verður þá unnt að aka hring um Snæfellsnes á bundnu slitlagi með því að fara Vatnaleið en malarvegur er enn um Fróðárheiði. 21.12.2006 14:10 Varað við fölskum atvinnutilboðum í netpósti Ríkislögreglustjóri varar netnotendur við atvinnutilboðum erlendis frá sem þeir fá send á netföng sín. Fram kemur í tilkynningu frá Ríkislögreglsutjóra að í flestum tilfellum sé um sölu- og markaðsstörf að ræða og þykjast fyrirtækin sem kynnt eru til sögunnar vera leiðandi á því sviði á Netinu en flestum tilfellum er um hreina svikastarfsemi að ræða. 21.12.2006 14:06 Vatnsborð Hálslóns hækkar mikið vegna asahláku Vatnsborð Hálslóns hefur hækkað um 60 sentímetra á síðasta sólarhring sem er tífalt meira en að jafnaði í síðustu viku. Þetta kemur fram á vef Kárahnjúkavirkjunar. Þar segir að vatnsborðið sé nú komið í 562 metra yfir sjávarmáli og að skýringarinnar á þessari miklu hækkun sé að leita í asahlákunni á landinu öllu með tilheyrandi vatnavöxtum. 21.12.2006 13:53 Stýrivextir hafa sjaldan verið hærri Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í dag um 0.25 prósent og hafa stýrivextir sjaldan verið hærri, en þeir eru nú 14.25 prósent. Þetta er sjöunda vaxtahækkun Seðlabankans á þessu ári og telur greiningardeild KB Banka ekki hafa verið ástæðu fyrir hækkuninni í dag. 21.12.2006 13:42 Hefur miklar áhyggjur af húsakosti Náttúrugripasafns Stjórn Félags Íslenskra safna og safnmanna lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirrar ófullnægjandi aðstöðu sem íslensk stjórnvöld hafa um of langt skeið búið Náttúrgripasafni Ísland. Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu. 21.12.2006 13:15 Ekki ástæða til aðgerða á Grund eftir umfjöllun Ísafoldar Landlæknir segir frásögn blaðamanns tímaritsins Ísafoldar af konu á elliheimilinu Grund sem beinbrotnaði ranga en tímaritið fullyrti að konan hefði verið látin liggja í meira en sólarhring áður en henni var komið á sjúkrahús. 21.12.2006 12:45 Tafir á flugi til og frá London Nokkur hundruð flugum til og frá Heathrow hefur verið aflýst í morgun þar sem þykk þoka liggur yfir flugvellinum annan daginn í röð. Flugvél Icelandair er á leið til Heathrow en tafir verða á flugi til og frá London í dag. Einnig eru tafir á öðrum flugvöllum í London. 21.12.2006 12:45 Nokkuð um þjófnaði úr verslunum Nokkuð hefur verið um þjófnaði úr verslunum í Reykjavík síðustu dagana. Tveir tólf ára piltar voru teknir fyrir þjófnað úr matvöruverslun í gær. Hringt var í foreldra þeirra sem sóttu þá. 21.12.2006 12:36 Útgerðarmenn í Evrópu sjá fram á tap Þorskkvóti Evrópuríkja í Norðursjó verður skertur um 14% á næsta fiskveiðiári. Þetta er þó hvergi nærri nóg að mati fiskifræðinga, sem vildu banna alla þorskveiði á þessu svæði. Hagsmunaaðilar sjá fram á mikið tap, til dæmis áætla danskir útgerðarmenn að tapið nemi milljarði íslenkra króna. Sjávarútvegsráðherra Breta hvetur hins vegar til bjartsýni. 21.12.2006 12:30 Tæpur helmingur olíunnar eftir í skipinu Sterkar líkur benda til að um 70 tonn af svartolíu séu þegar lekin úr botntönkum flutningaskipsins Wilson Muuga á strandstað við Hvalsnes. Sé það raunin eru aðeins 50 tonn eftir af svartolíu í hliðartönkum þess. Auk þess bendir margt til þess að um helmingur af rúmum þrettán tonnum af gasolíu í skipinu, sé líka lekinn út. 21.12.2006 12:10 Fengu samtals yfir tuttugu ára fangelsisdóm Fjórir karlmenn voru í dag dæmdir í samtals tuttugu og fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir smygl á fíkniefnum til landsins. Um er að ræða fjóra Íslendinga og einn Hollending sem ákærðir voru fyrir smygl á um 15 kílóum af amfetamíni og tíu kílóum af hassi í BMW-bifreið til landsins. 21.12.2006 12:09 Eyjafjarðará skemmdi flugvallarsvæðið Skemmdir urðu hjá Flugmálastjórn á Akureyri í gær eftir að Eyjafjarðaráin ruddist inn á flugvallarsvæðið. Fólk í Eyjafjarðarsveit var flutt til vegna hættu á skriðuföllum en flóðin eru í rénun. 21.12.2006 12:07 Floods in South Iceland 21.12.2006 11:25
Sjá næstu 50 fréttir
Vinnuslys við Reykjanesbraut Vinnuslys varð við gatnamót Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar skömmu fyrir klukkan tvö. Verið var að loka sliskju á flutningavagni, eða skábraut, eftir að ýta hafði verið sett upp á vagninn en hún féll þá ofan á karlmann. 21.12.2006 14:32
Fær sex milljónir greiddar vegna læknamistaka Íslenska ríkið og læknir voru í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða manni hátt í sex milljónir króna í bætur, vegna læknamistaka, sem talið er að hafi orðið til þess að taka varð af vinstri fót mannsins fyrir ofan hné. 21.12.2006 14:18
Engum datt í hug að fjármálafyrirtæki gætu talið fram í evrum Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, telur þá ákvörðun Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka, að telja fram í evrum í stað krónu óheppilega. Þetta kom fram á Fréttamannafundi vegna stýrivaxtahækkunar Seðlabankans í morgun. Davíð sagði að þegar lögin hafi verið sett um að fyrirtæki gætu gert upp í evrum, þá hafi ekki verið gert ráð fyrir að fjármálafyrirtæki nýttu sér þá heimild. Þau hafi ekki formlega verið undanþegin í lögunum, en engum hafi heldur dottið það í hug að þetta gæti gengið til þeirra. Sérfræðingar óttast að fleiri bankar kunni að fylgja fordæmi Straums, sem gæti veikt stöðu krónunnar. 21.12.2006 14:15
Malbikað umhverfis Snæfellsjökul Berglín ehf. í Stykkishólmi átti lægsta tilboð í gerð 17 kílómetra langs vegar með bundnu slitlagi á utanverðu Snæfellsnesi. Með vegagerðinni lýkur malbikun vegarins milli Arnarstapa og Ólafsvíkur og verður þá unnt að aka hring um Snæfellsnes á bundnu slitlagi með því að fara Vatnaleið en malarvegur er enn um Fróðárheiði. 21.12.2006 14:10
Varað við fölskum atvinnutilboðum í netpósti Ríkislögreglustjóri varar netnotendur við atvinnutilboðum erlendis frá sem þeir fá send á netföng sín. Fram kemur í tilkynningu frá Ríkislögreglsutjóra að í flestum tilfellum sé um sölu- og markaðsstörf að ræða og þykjast fyrirtækin sem kynnt eru til sögunnar vera leiðandi á því sviði á Netinu en flestum tilfellum er um hreina svikastarfsemi að ræða. 21.12.2006 14:06
Vatnsborð Hálslóns hækkar mikið vegna asahláku Vatnsborð Hálslóns hefur hækkað um 60 sentímetra á síðasta sólarhring sem er tífalt meira en að jafnaði í síðustu viku. Þetta kemur fram á vef Kárahnjúkavirkjunar. Þar segir að vatnsborðið sé nú komið í 562 metra yfir sjávarmáli og að skýringarinnar á þessari miklu hækkun sé að leita í asahlákunni á landinu öllu með tilheyrandi vatnavöxtum. 21.12.2006 13:53
Stýrivextir hafa sjaldan verið hærri Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í dag um 0.25 prósent og hafa stýrivextir sjaldan verið hærri, en þeir eru nú 14.25 prósent. Þetta er sjöunda vaxtahækkun Seðlabankans á þessu ári og telur greiningardeild KB Banka ekki hafa verið ástæðu fyrir hækkuninni í dag. 21.12.2006 13:42
Hefur miklar áhyggjur af húsakosti Náttúrugripasafns Stjórn Félags Íslenskra safna og safnmanna lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirrar ófullnægjandi aðstöðu sem íslensk stjórnvöld hafa um of langt skeið búið Náttúrgripasafni Ísland. Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu. 21.12.2006 13:15
Ekki ástæða til aðgerða á Grund eftir umfjöllun Ísafoldar Landlæknir segir frásögn blaðamanns tímaritsins Ísafoldar af konu á elliheimilinu Grund sem beinbrotnaði ranga en tímaritið fullyrti að konan hefði verið látin liggja í meira en sólarhring áður en henni var komið á sjúkrahús. 21.12.2006 12:45
Tafir á flugi til og frá London Nokkur hundruð flugum til og frá Heathrow hefur verið aflýst í morgun þar sem þykk þoka liggur yfir flugvellinum annan daginn í röð. Flugvél Icelandair er á leið til Heathrow en tafir verða á flugi til og frá London í dag. Einnig eru tafir á öðrum flugvöllum í London. 21.12.2006 12:45
Nokkuð um þjófnaði úr verslunum Nokkuð hefur verið um þjófnaði úr verslunum í Reykjavík síðustu dagana. Tveir tólf ára piltar voru teknir fyrir þjófnað úr matvöruverslun í gær. Hringt var í foreldra þeirra sem sóttu þá. 21.12.2006 12:36
Útgerðarmenn í Evrópu sjá fram á tap Þorskkvóti Evrópuríkja í Norðursjó verður skertur um 14% á næsta fiskveiðiári. Þetta er þó hvergi nærri nóg að mati fiskifræðinga, sem vildu banna alla þorskveiði á þessu svæði. Hagsmunaaðilar sjá fram á mikið tap, til dæmis áætla danskir útgerðarmenn að tapið nemi milljarði íslenkra króna. Sjávarútvegsráðherra Breta hvetur hins vegar til bjartsýni. 21.12.2006 12:30
Tæpur helmingur olíunnar eftir í skipinu Sterkar líkur benda til að um 70 tonn af svartolíu séu þegar lekin úr botntönkum flutningaskipsins Wilson Muuga á strandstað við Hvalsnes. Sé það raunin eru aðeins 50 tonn eftir af svartolíu í hliðartönkum þess. Auk þess bendir margt til þess að um helmingur af rúmum þrettán tonnum af gasolíu í skipinu, sé líka lekinn út. 21.12.2006 12:10
Fengu samtals yfir tuttugu ára fangelsisdóm Fjórir karlmenn voru í dag dæmdir í samtals tuttugu og fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir smygl á fíkniefnum til landsins. Um er að ræða fjóra Íslendinga og einn Hollending sem ákærðir voru fyrir smygl á um 15 kílóum af amfetamíni og tíu kílóum af hassi í BMW-bifreið til landsins. 21.12.2006 12:09
Eyjafjarðará skemmdi flugvallarsvæðið Skemmdir urðu hjá Flugmálastjórn á Akureyri í gær eftir að Eyjafjarðaráin ruddist inn á flugvallarsvæðið. Fólk í Eyjafjarðarsveit var flutt til vegna hættu á skriðuföllum en flóðin eru í rénun. 21.12.2006 12:07
Telur stýrivaxtahækkun í morgun þá síðustu í bili Greiningardeild Glitnis telur að stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands í morgun sé sú síðasta í þessu hækkunarferli en bankinn hækkaði stýrivextina um 0,25 prósentur. Fram kemur í Morgunkorni Glitnis að greiningardeildin telji að næsta skref hans verði að lækka vexti og að það gerist um miðbik næsta árs. 21.12.2006 11:04
Slasaðist lítils háttar í bílveltu á Sandskeiði Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu á Sandskeiði á tíunda tímanum í morgun. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en maðurinn var kominn út úr bílnum þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði. Meiðsl mannsins eru talin minni háttar en hann var einn í bílnum. 21.12.2006 10:55
Til minningar um Túrkmenbashi Einn nafntogaðasti einræðisherra í heimi, forseti Túrkmenistans, lést úr hjartaáfalli í nótt. Þar með lýkur einni taumlausustu sjálfsdýrkun sem um getur í seinni tíð en ekki er víst að þegnar hans fái þrátt fyrir allt til baka nokkuð af þeim mannréttindum sem þeir hafa farið á mis við í valdatíð hans. 21.12.2006 10:51
Chavez reynir að ná tökum á olíufélagi Venúsúela gæti þurft að greiða háar sektir, vegna tilraunar ríkisins til að ná meirihluta í olíufélagi í landinu, sem rekið er af erlendum aðilum, en ríkið hefur gert samkomulag við erlenda banka sem verið er að brjóta með þessu. 20.12.2006 23:26
Coloradobúar arka snjóinn Snjóstormur hefur gengið yfir Colorado í Bandaríkjunum í dag. Mikill snjór er víða á götum og aflýsa hefur þurft hundruðum fluga. Yfirvöld hafa þurft að loka þjóðvegum vegna veðursins. 20.12.2006 23:12
Verðmunur á konfekti í verslunum allt að 131% Mikill verðmunur er á jólamatnum milli verslana samkvæmt könnun sem ASÍ gerði í dag. Mestur er munurinn á verði á konfekti og drykkjarvörum en mikill munur reyndist einnig á laufabrauði, smákökum og jólakjötinu. 20.12.2006 22:33
British Airways hefur aflýst innanlandsflugi um Heathrow Breska flugfélagið British Airways hefur aflýst öllu innlandsflugi um Heathrowflugvöllinn í London á morgun sökum mikillar þoku. Skyfréttastofan greindi frá þessu en alls er um 180 flug að ræða. 20.12.2006 22:22
Sumarbústaður skemmdur eftir að hafa staðið í vatni Vatn flæddi inn í sumarbústað skammt frá Háskólanum á Bifröst í nótt. Lögreglan í Borgarnesi segir bústaðinn líklega hafa staðið í um hálfs meters háu vatni þegar það var sem mest. 20.12.2006 21:53
Fangar fluttir af Byrginu á Litla Hraunið Fangelsismálastofnun ákvað í dag að taka tvo fanga, sem leyft hefur verið að afplána hluta refsingar í Byrginu, til baka á Litla Hraun. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir brýnt að hefja lögreglurannsókn á ásökunum á hendur forstöðumanni Byrgisins. 20.12.2006 21:30
Ekki taldar líkur á að Ölfusá flæði yfir bakka sína Björgunarfélag Árborgar stendur nú vaktina við bakka Ölfusár við Ölfusárbrú. Lögreglan á Selfossi segir ekki taldar líkur á að áin flæði yfir bakka sína en björgunarsveitarmenn standa þó áfram vaktina til að koma í veg fyrir að fólk fari sér að voða við ána. 20.12.2006 21:04
Flugumferðarstjórar segja skort á samningsvilja Félag íslenskra flugumferðarstjóra segja Flugstoðir skorta vilja til að semja. Félagið sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem því er neitað að flugumferðarstjórar krefjist þess að laun sín hækki um tugi prósenta líkt og Flugstoðir hafa haldið fram. 20.12.2006 20:45
Ekki hægt að mismuna starfsfólki Flugstoðir segja að ekki sé hægt að gera flugumferðarstjórum hærra undir höfði en öðrum starfsmönnum og því sé ekki hægt að ganga að kröfum þeirra. Um sextíu flugumferðarstjórar sem störfuðu hjá Flugmálastjórn Íslands hafa ekki gert samning við Flugstöðir ohf., sem tekur við rekstirnum um áramótin, og krefjast þeir kjarabóta. 20.12.2006 20:16
Dómarar detta í lukkupottinn Þingmenn, ráðherrar og æðstu embættismenn fengu vænar launahækkanir, samkvæmt ákvörðun Kjararáðs í dag. Sex komma fimm prósenta launahækkun fellur þeim í skaut. Dómarar detta í lukkupottinn þar sem þeir fá, þessu til viðbótar, launahækkanir frá í fyrra sem ríkið afnumdi með lögum, til baka með dómsúrskurði. 20.12.2006 20:15
Metrennsli í Norðurá Í Borgarfirði hafa ár flætt yfir bakka sína og gamla brúin yfir Hvítá, milli Ferjukots og Hvítarvalla, er lokuð og íbúar í Ferjukoti því innlyksa. 20.12.2006 19:45
Mesta hættan liðin hjá á Akureyri Mestan hættan er liðin hjá á Akureyri vegna vatns- og aurflóða. Ekki er talin ástæða til að óttast frekari skriðuföll nema aftur fari saman miklar leysingar og rigning. Björgunarsveitarmenn munu þó áfram standa vaktina í nótt. 20.12.2006 19:20
Bæir innlyksa vegna flóða í Hvítá Hvítá í Árnessýslu er í miklum ham og var brúnni á Brúarhlöðum lokað í morgun þar sem áin flæddi yfir hana. Eins eru átta íbúðarhús innlyksa í Auðsholti þar sem Hvítáin beljar allt um kring. 20.12.2006 19:11
Mikil hætta á bráðri mengun úr flutningaskipinu Flutningaskipið Wilson Muuga er nú flokkað sem umhverfisslys enda mikil hætta talin á bráðri mengun. Flogið var í skipið í dag til að kanna ástand skipsins og aðstæður til að dæla olíunni í land. 20.12.2006 19:10
Samningur um varðskip undirritaður Smíðasamningur um nýtt varðskip var undirritaður í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík í dag. Samningsverðið er tæpir 2,7 milljarðar króna og er búist við að smíðin taki hálft þriðja ár. 20.12.2006 18:55
Bush boðar stækkun heraflans George Bush, forseti Bandaríkjanna, boðaði í dag stækkun herafla landsins en vildi ekki svara því hvort liðsstyrkurinn yrði nýttur í stríðinu í Írak. 20.12.2006 18:30
Komið verður á fót heimili fyrir heimilislausa Félagsmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg ætla að koma á fót heimili fyrir heimilislausa í Reykjavík. Rúm verður fyrir 10 heimilismenn samtímis. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag, samstarfssamning um heimilið. 20.12.2006 18:05
Ellefu áramótabrennur í Reykjavík Um þessi áramót verða 11 áramótabrennur í Reykjavík. Þær verða allar á sömu stöðum og í fyrra. Kveikt verður í borgarbrennum kl. 20.30. á gamlárskvöld. Í frétt frá Framkvæmdasviði segir að starfsmenn hverfastöðva Framkvæmdasviðs verði við móttöku og uppröðun í bálkesti frá fimmtudeginum 28. desember. Hætt verður að taka á móti efni þegar kestirnir eru orðnir hæfilega stórir eða í síðasta lagi kl.12:00 á gamlársdag. 20.12.2006 17:38
Björgunarsveitir klári verkefni og verði svo í viðbragðsstöðu Almannavarnarnefndir í Árnessýslu ákváðu á fundi sínum sem var að ljúka björgunarsveitir muni ljúka fyrirliggjandi verkefnum og fara síðan heim að því loknu en verða viðbúnar útköllum. Þær hafa í dag aðstoðað hestaeigendur við að bjarga hrossum úr úthaga. 20.12.2006 17:06
Verulegt tjón á Djúpadalsvirkjun Franz Árnason, framkvæmdastjóri Fallorku ehf. sem rekur Djúpadalsvirkjun í Eyjafjarðarsveit ,segir að verulegt tjón hafi orðið á virkjuninni í dag þegar efri stíflan í virkjuninni brast eftir mikið úrhelli í Eyjafirði á síðasta sólarhring. 20.12.2006 16:56
Reyndist ölvaður undir stýri í banaslysi Annar mannanna, sem yfirheyrðir hafa verið vegna umferðarslyss sem varð á Reykjanesbraut nærri nýju IKEA-versluninni í Garðabæ í nóvember, hefur viðurkennt að hafa ekið bifreiðinni. Komið hefur í ljós að hann og tveir aðrir sem voru í bílnum hafi verið undir áhrifum áfengis en einn mannanna lést þegar bílnum var ekið á steypustólpa. 20.12.2006 16:36
Abramovich segir af sér Roman Abramovich hefur sagt af sér sem ríkisstjóri hins strjálbýla Chukotka héraðs í austur Rússlandi. Abramovich er ríkasti maður Rússlands og eigandi fótboltaklúbbsins Chelsea. Hann hefur varið hundruðum milljóna dollara í að byggja upp héraðið, og notað náið samband sitt við Pútín forseta í baráttunni við fátækt þar. 20.12.2006 16:27
Fjórðungur þróunarfjár ÞSSÍ til Malaví á næsta ári Þróunarsamvinnustofnun Íslands ætlar að verja um fjórðungi þess fjár sem stofnunin hefur þegar fengið samþykkt fyrir fyrir næsta ár til þróunarverkefna í Malaví, alls um 280 milljónum króna. 20.12.2006 16:26
Tengivagn valt á Suðureyrarvegi Vegurinn til Suðureyrar er lokaður vegna umferðaróhapps sem varð nú í eftirmiðdaginn. Þá valt tengivagn flutningabíls með þeim afleiðingum að hann lokar nú veginum. Óhappið varð til móts við eyðibýlið Laugar á veginum milli Suðureyrar og Botns í Súgandafirði en að sögn lögreglu á Ísafirði urðu engin slys á fólki. 20.12.2006 16:14
Tugir mafíósa handteknir Ítalska lögreglan hefur í dag handtekið tugi manna í borginni Bari, í suðurhluta landsins, vegna tengsla þess við Mafíu fjölskyldu sem þar ræður lögum og lofum. Yfir 100 manns eru á handtökulista lögreglunnar. Átta konur eru meðal hinna handteknu. 20.12.2006 16:07
16 ára piltur dæmdur fyrir hættulega líkamsárás Sextán ára piltur var dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Keflavík í desember í fyrra. 20.12.2006 15:59