Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Brúðarkjóll úr bollum Konur leggja yfirleitt mikið upp úr brúðarkjólnum sem þær klæðast á brúðkaupsdaginn. Úkraínski bakarinn Valentín Stefanjo ákvað að konan sín tilvonandi skyldi sko klæðast algerlega einstæðum kjól þegar þau gengju í það heilaga. Hann bakaði því tvö þúsund litlar bollur, fyllti þær með rjóma og bjó til brúðarkjólinn úr þeim. Það tók hann tvo mánuði að koma kjólnum saman. 15.10.2006 13:09
Sími Árna Páls hleraður Árni Páll Árnason fyrrverandi starfsmaður varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins fullyrti í þættinum Silfri Egils í dag að sími hans hefði verið hleraður. Hann hafi verið varaður við á sínum tíma að fylgst væri með honum. Árni Páll sagði að það hefði í sjálfu sér ekki komið honum á óvart vegna eðli starfa hans. 15.10.2006 13:00
Stofnandi hryðjuverkasamtaka fær lífstíðardóm Abimael Guzman, stofnandi hryðjuverkasamtakanna Skínandi stígs í Perú, var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi. Guzman stýrði byltingartilraun Skínandi stígs, sem stóð í tólf ár, frá 1980 og fram á tíunda áratuginn. Átökin kostuðu um sjötíu þúsund manns lífið. Guzman sagði sjálfur að blóðbað væri nauðsynlegt til að knýja byltinguna áfram. 15.10.2006 12:36
Ráðningu fagstjóra mótmælt Kona sem unnið hefur í sjö ár hjá Umhverfisstofnun fékk ekki starf fagstjóra hjá stofnuninni heldur karlmaður sem aðeins hafði starfað þar í um þrjár vikur. Þessu hefur nokkur fjöldi starfsmanna stofnunarinnar mótmælt með undirskriftalista. Davíð Egilsson forstjóri Umhverfisstofnunar fékk afhentan undirskriftarlista með nöfnum 35 til 40 starfsmanna. 15.10.2006 12:15
Rjúpnaveiðitímabilið hófst í dag Rjúpnaveiðitímabilið hófst í dag og hefur umhverfisráðuneytið sett takmarkanir sem gilda munu um veiðina. Ekki er heimilt að veiða mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga og sölubann á rjúpu og rjúpnaafurðum er áfram í gildi. Svæðið á Reykjanesskaga verður áfram friðað og hvatningarátaki meðal veiðimanna um hófsamar og ábyrgar veiðar verður haldið áfram. Veiðitímabilinu lýkur 30. nóvember. 15.10.2006 12:06
Borelius á rétt á árslaunum Maria Borelius viðskiptaráðherra Svíþjóðar sem sagði af sér í gær á rétt á árslaunum frá ríkinu þrátt fyrir að hafa aðeins setið átta daga í embætti. Þau nema um tíu milljónum íslenskra króna. Það á þó eftir að koma í ljós hvort Borelius þiggi launin, en hún þurfti að segja af sér eftir að upp komst að hún hafði greitt barnfóstrum sínum laun án þess að gefa þau upp til skatts. 15.10.2006 11:55
Forsetakosningar í Ekvador Íbúar Ekvador kjósa sér nýjan forseta í dag, en þremur síðustu forsetum hefur verið steypt af stóli. Skoðanakannanir bentu til þess að hagfræðingurinn Rafael Correa nyti mestrar hylli, en hann er vinstri maður og mikill stuðningsmaður Hugos Chavez, hins umdeilda forseta Venesúela. 15.10.2006 11:02
Jeppi valt við Sævarhöfða Jeppi á leið vestur Sævarhöfða valt í gærkvöldi eftir að ökumaður missti stjórn á bílnum í aflíðandi beygju. Jeppinn snerist á götunni og valt á toppinn utan vegar. Ökumaðurinn sem var kona festist í bílnum og var dælubíll slökkviliðsins kallaður til. Konan náðist þó fljótlega út úr bílnum og var flutt með minniháttar meiðsl á slysadeild. Jeppin er mikið skemmdur. 15.10.2006 10:46
Segir öryggisráðið eins og glæpagengi Sendiherra Norður-Kóreu En Pak Gil Yon hjá Sameinuðu þjóðunum sagði öryggisráð samtakanna hafa hagað sér eins og glæpagengi, eftir að ályktun um refsiaðgerðir gegn landi hans var samþykkt einróma í ráðinu í gærkvöld. Hann sagði stjórn sín myndi líta á allan frekari þrýsting frá Bandaríkjunum sem stríðsyfirlýsingu og rauk út af fundinum. 15.10.2006 10:03
Fljúgandi trampolín vaxandi vandamál Trampolín eru vaxandi vandamál í slæmum veðrum þar sem eigendur þeirra binda þau sjaldnast niður. Á Selfossi var lögreglu tilkynnt um fimm fljúgandi trampolín í gær, eitt þeirra skemmdi tvo bíla, fyrst þegar það lenti á þaki bíls, en síðan þegar það tók aftur á loft og endaði í gegnum framrúðu á öðrum bíl þar sem það olli talsverðu tjóni. 15.10.2006 09:47
Lögsókn út af krossi Starfsmaður innritunarborðs Breska flugfélagsins British Airways hefur kært fyrirtækið eftir að það bannaði starfsmönnum að bera kross við einkennisfatnað þess. Nadia Eweida segir að hún hafi verið þvinguð til að fara í launalaust leyfi eftir að hún neitaði að taka krossinn af sér. 14.10.2006 21:00
Þrír létust í hríðarbyl í New York Þrír létust og þúsundir eru án rafmagns í Buffalo eftir að hríðarbylur gekk yfir New York ríki í gær. Rúmlega 60 sm snjór féll í miklu þrumuveðri á fimmtudag og föstudag, en það eru mestu snjóar í október síðan veðurstofan byrjaði mælingar fyrir 137 árum. Rafmagnsfyrirtæki áttu í miklum erfiðleikum að bæta úr rafmagsleysinu þar sem starfsmenn þeirra festust í snjónum eins og aðrir. 14.10.2006 20:45
Kidman rödd kvenna í Kosovo Kvikmyndaleikkonan og óskarsverðlaunahafinn Nicole Kidman hóf ferð um Kosovo í dag til að styrkja málefni kvenna í landinu og auka skilning á réttindum þeirra. Þetta er fyrsta embættisverk hennar sem velgjörðarsendiherra Sameinuðu Þjóðanna. Hún flaug frá Ítalíu til Pristinu, höfuðborgar Kosovo, eftir að hafa kynnt nýjust kvikmynd sína “Fur” á kvikmyndahátíð Rómaborgar. 14.10.2006 20:30
Ropandi beljur auka gróðurhúsaáhrif Vísindamenn í Bretlandi vinna nú að rannsóknum á áhrifum metangass sem kýr hleypa út í andrúsloftið þegar þær ropa, á hlýnandi loftslagi. Þar í landi reiknast vísindamönnununum til að í breskar kýr framleiði 3% af gróðurhúsaáhrifum í Bretlandi. Kýr auki þess vegna á hlýnun loftslags. 14.10.2006 20:15
Veiðisvæði rjúpu í Borgarfjarðarsýslu kortlögð Helstu veiðisvæði rjúpunnar í uppsveitum Borgarfjarðarsýslu hafa verið kortlögð þar sem hægt er að sjá hvar er leyfilegt að skjóta og hvar ekki. Kortið er gefið út af Hlunnindafélagi Borgarfjarðarsýslu sem var stofnað um nýtingu skotveiðihlunninda. Á kortinu er tilgreind landnýting, hvort viðkomandi svæði eða jörð sé friðuð og hvort landeigendur sjálfir nýta það til skotveiði eða leigi út. 14.10.2006 19:45
Lúðvík opnar kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi opnaði kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ í dag. Skrifstofan er til húsa að Hafnargötu 86, í sal gömlu Aðalstöðvarinnar. Lúðvík er einn fjögurra frambjóðenda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem sækist eftir að leiða listann. 14.10.2006 19:30
Hneyksli að svínað hafi verið á Mjólku Framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna segir vonbrigði að í tillögum ríkisstjórnarinnar til lækkunar matvælarverðs sé ekki tekið á mjólkuriðnaðinum. Hann segir hneyksli að fyrirtæki í einokunarstöðu, eins og Osta- og smjörsalan, hafi svínað á fyrirtæki eins og Mjólku sem reyni að virkja samkeppni. 14.10.2006 19:15
Samkeppni nauðsynleg Framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna segir vonbrigði að í tillögum ríkisstjórnarinnar, til lækkunar matvælarverðs, sé ekki tekið á mjólkuriðnaðinum. Hann segir hneyksli að fyrirtæki í einokunarstöðu, eins og Osta- og smjörsalan, hafi svínað á fyrirtæki eins og Mjólku sem reyni að virkja samkeppni. 14.10.2006 18:45
Nýtur ekki sömu virðingar og áður Nýtt fjögur þúsund manna verkalýðsfélag var stofnað í dag þegar Félag járniðnaðarmanna og Vélstjórafélag Íslands sameinuðust. Formaður félagsins, segir iðn- og tæknimenntun ekki njóta sömu virðingar og áður 14.10.2006 18:45
Öryggisráð SÞ samþykkir refsiaðgerðir gegn N-Kóreu Bandaríkin, Bretland og Frakkland komust hjá ágreiningi við Rússland og Kína um refsiaðgerðir gegn Norður Kóreu og samþykktu öll 15 aðildarríki öryggisráðsins nýja ályktun. Hún felur í sér að Norður Kórea eyðileggi öll kjarnorkuvopn, gjöreyðingarvopn og langdrægar flaugar, en útilokar hernaðaraðgerðir gegn landinu. 14.10.2006 18:38
Vörugjöldin eru úrelt Samtök atvinnulífsins vilja fara aðrar leiðir en ríkisstjórnin ætlar til að lækka verð á matvælum og segja verðlag á Íslandi geta orðið svipað og í Finnlandi og Svíþjóð með því að afnema vörugjöld og lækka tolla. Samtökin segja ekki þurfa lækkun virðisaukaskatts til að ná fram lægra vöruverði. 14.10.2006 18:30
Samfylkingin vill meira fé í velferðarkerfið Það er ömurlegt að aldraðir og öryrkjar búi ekki við sómasamleg lífskjör á sama tíma og ríkissjóður hefur aldrei tekið til sín stærri hluta af þjóðarkökunni, segir formaður Samfylkingarinnar en Íslendingar eiga heimsmet í aukningu á skattbyrði, samkvæmt úttekt OECD. 14.10.2006 18:20
American Graffiti á Höfn Hornfirska skemmtifélagið frumsýnir í kvöld tónlistarsýninguna "American Graffiti" á Hótel Höfn. Tuttugu og sjö manns taka þátt í sýningunni. Allt eru það áhugaleikarar og tónlistarmenn frá Hornafirði. Kristín Geirsdóttir leikstjóri segir tækifæri á landsbyggðinni ekki mörg fyrir ungt fólk. "Mitt áhugamál er að gefa þessu unga fólki tækifæri til að þróa sig áfram í listinni." 14.10.2006 18:06
Sjálfsmorð eftir ímyndað morð unnustu Pakistanskur maður framdi sjálfsmorð fyrir utan hús unnustu sinnar í Karachi þegar hann hélt að hann hefði ráðið henni bana af gáleysi. Maðurinn var vopnaður byssu og skaut í sífellu af henni í loftið fyrir utan hús hennar í þeirri von að fá athygli unnustunnar og fá hana til að giftast sér tveim mánuðum fyrr en áætlað hafði verið. 14.10.2006 17:37
Skjóta Tíbeta á flótta Rúmenskir kvikmyndatökumenn náðu því á mynd þegar kínverskir landamæraverðir skutu á hóp Tíbeta sem var fótgangandi á leið yfir til Nepals. Tveir létu lífið. Kínversk stjórnvöld viðurkenna að átök hafi átt sér stað, en halda því fram að fólkið hafi ráðist á landamæraverðina. 14.10.2006 17:29
Helgi Laxdal formaður nýs verkalýðsfélags Helgi Laxdal, fráfarandi formaður Vélstjórafélags Íslands, verður fyrsti formaður nýs sameiginlegs verkalýðsfélags vélstjóra og járniðnaðarmanna sem stofnað var á Grand hóteli í dag. Hið nýja félag heitir Félag vélstjóra og málmiðnaðarmanna og hefur um 4.000 félagsmenn. 14.10.2006 17:06
Jón G. Snædal forseti Alþjóðafélags lækna Jón G. Snædal, læknir og sérfræðingur í öldrunarlækningum við Landsspítala Háskólasjúkrahús, var í dag kjörinn forseti Alþjóðafélags lækna á aðalfundi félagsins í Pilanesberg í Suður-Afríku. Jón er kosinn fyrir starfsárið 2007-2008, en kosningin er bæði viðurkenning fyrir íslenska lækna og mikill persónulegur heiður. 14.10.2006 15:58
Titringur í ríkisstjórn Reinfeldts Viðskiptaráðherra Svíþjóðar Maria Borelius hefur sagt af sér eftir einungis eina viku í embætti. Hún hefur viðurkennt að hafa ráðið barnfóstrur án þess að borga skatta og önnur launatengd gjöld. Forsætisráðherrann Fredrik Reinfeldt greindi frá því í útvarpsviðtali að þau hefðu komist að samkomulagi um afsögnina. 14.10.2006 15:22
Rússneskt diskó og messa í Reykjavík Rússnesk menningarhátíð hófst í Neskirkju í Reykjavík í dag. Upphaf hátíðarinnar var messa að hætti rétttrúnaðarkirkjunnar, á verndardegi Maríu meyjar. Hátíðinni verður framhaldið í næstu viku og verður meðal annars boðið upp á rússneskt diskótek um komandi helgi. 14.10.2006 15:00
Kanadísk menningarhátíð í Gerðasafni Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, setti kanadíska menningarhátíð í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni í dag að viðstöddum forseta Íslands. Anna Blauveldt, sendiherra Kanada á Íslandi, flutti ávarp. Forseti Íslands opnaði þrjár myndlistarsýningar í Gerðarsafni, þar sem teflt er saman list kanadísku frumbyggjanna, indíána og inúíta, og hinni vestrænu hefð. 14.10.2006 14:40
200 börn á biðlista eftir frístundaheimili Sextíu og þrjú börn eru á biðlista eftir frístundaheimili í Grafarvogi einum en 200 börn í höfuðborginni allri. Nú er þörf fyrir athafnastjórnmál, segir fulltrúi Samfylkingar í Hverfisráði Grafarvogs sem furðar sig á því sinnuleysi sem borgaryfirvöld sýna börnum og foreldrum. 14.10.2006 14:15
Lögreglan á Hvolsvelli varar við Emstruleið Lögreglan á Hvolsvelli varar fólk við að fara í Emstrur, en leiðin er lokuð innan við Fljótsdal í Fljótshlíð vegna vatnavaxta í Markarfljóti. Bíll valt í fljótið í morgun, en mennirnir þrír sluppu án meiðsla. Syðri fjallabaksleið er opin, en lögreglan biður fólk að fara varlega. 14.10.2006 13:39
Mikill fjöldi í áheyrnarprufur Mikill fjöldi fólks á öllum aldri var mættur í áheyrnarprufur fyrir X-factor á Hótel Nordica snemma í morgun. X-factor er hæfileika- og söngkeppni fyrir einstaklinga og sönghópa sem verður á dagskrá Stöðvar2 í vetur. Dómarar keppninnar, þau Einar Bárðarson, Páll Óskar og Ellý í Q4U velja þátttakendur úr hópnum og þeir sem þykja standa sig best verða að líkindum orðnir heimilisvinir með vorinu. 14.10.2006 13:19
Háskalegur dauðdagi flottur Stjórnvöld í Suður-Afríku reyna nú að koma böndum á nýjasta æðið hjá ungmennum í landinu. Það er svokölluð lestareið þar sem unglingar standa ofaná hraðlestum og reyna að forðast að lenda á rafmagnslínum. Fjölmargir hafa þegar látist eða stórslasast. Það eru einkum ungir karlmenn sem stunda þennan stórhættulega leik. 14.10.2006 13:01
Fundað á Bessastöðum um loftslagsbreytingar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segir tækifæri fólgin í baráttu gegn loftslagsbreytingum og að hún þurfi ekki að vinna gegn efnahagi. Þetta sagði hann á fundi um aðgerðir gegn þróuninni á Bessastöðum skömmu fyrir hádegi. Forystumenn úr alþjóðlegu viðskiptalífi eru komir hingað til lands til að funda um aðgerðir gegn loftlagsbreytingum. 14.10.2006 13:00
Sprengju líklega komið fyrir í farangri Spænsk kona sem handtekin var í Mexíkó um síðustu helgi, hefur verið ákærð fyrir að ætla að flytja sprengiefni til Spánar. Spænski konsúllinn í Cancún segir næsta víst að sprengiefnunum hafi verið komið fyrir í farangri hennar. Um sé að ræða unga stúlku sem var með eiginmanninum í brúðkaupsferð í Cancun, hún komi frá litlu þorpi í Galisíu og reki eigin hárgreiðslustofu. 14.10.2006 12:45
Ódýrari leið til lækkunar matarverðs Matarverð á Íslandi gæti orðið það sama og í Finnlandi og Svíþjóð með því að afnema vörugjaldakerfið og lækka tolla, segja Samtök atvinnulífsins. Lækkun virðisaukaskatts hefði ekki þurft að koma til. Samtökin telja að önnur leið en sú sem stjórnvöld hafa valið til lækkunar matvælaverðs, hefði verið vænlegri til árangurs. 14.10.2006 12:09
Veður tefur innanlandsflug Slæmt veður hefur tafið flugumferð í morgun. Flogið var til Akureyrar og Egilstaða, en flug til Ísafjarðar liggur niðri og verður athugað klukkan rúmlega tvö. Þá á að athuga flug til Færeyja og Akureyrar nú um hádegið. 14.10.2006 12:04
Kortavelta dregst saman Kortavelta hefur dregist saman um rúmlega 3% frá því í ágústmánuði. Þetta kemur fram í hálffimm fréttum KB banka. Samdráttinn má aðallega rekja til minnkandi veltu í debetkortum, en hún dróst saman um 9% milli mánaða. Velta þeirra í septembermánuði nam rúmlega 33 milljörðum króna. 14.10.2006 11:45
Sönnun á kjarnorkutilraun N-Kóreu Bandaríkin hafa tilkynnt að geislavirkni hafi mælst í loftsýnum sem tekin voru úr sérhannaðri flugvél bandaríkjahers daginn eftir kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna. Sýnin voru tekin nálægt staðnum sem neðanjarðarsprengingin átti sér stað. Þetta staðfestir að kjarnorkutilraunin fór fram, en getgátur voru uppi um það síðustu daga að einungis hefði verið um dýnamítsprengingu að ræða. 14.10.2006 10:15
Stofnun stærsta verkalýðsfélags landsins Í dag klukkan þrjú verður eitt stærsta verkalýðsfélag landsins stofnað þegar Vélstjórafélag Íslands og Félag járniðnaðarmanna sameinast undir einum hatti. Á stofnfundinum sem verður klukkan þrjú á Grand Hótel, verður rætt hvort iðn og tækninám hafi orðið utanveltu í menntamálum á Íslandi og velt upp stöðu verknáms. Þá verða mál tengd erlendum starfsmönnum í brennidepli. 14.10.2006 10:04
Funda um aðgerðir gegn loftslagsbreytingu Forystumenn úr alþjóðlegu viðskiptalífi funda um aðgerðir gegn loftlagsbreytingum á Bessastöðum í dag. Fundurinn er í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, en frumkvæði að fundinum eiga Young Global Leaders sem starfa á vettvangi hinnar árlegu Davos-ráðstefnu. Um sjötíu manns eru komin hingað til lands til funda en samráðsfundurinn hófst á fimmtudag og lýkur á morgun. Þeir koma úr alþjóðlegu viðskiptalífi, fjölmiðlum og frjálsum félagasamtökum sem eiga það sameiginlegt að beita sér í umhverfismálum. Auk forseta Íslands taka tveir Íslendingar þátt í fundinum, þeir Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður og Ólafur Elíasson myndlistarmaður. 14.10.2006 09:58
Ban kjörinn nýr aðalritari SÞ Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna kaus í gær Ban Ki-Moon nýjan aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Ban tekur við af Kofi Annan um áramótin, en Annan hefur gengt starfinu í áratug. Ban er fyrrverandi utanríkisráðherra Suður Kóreu. Á fyrsta blaðamannafundi Ban eftir kjörið sagðist hann styðja þær refsiaðgerðir sem Bandaríkjamann hafa lagt fyrir öryggisráðið. 14.10.2006 09:49
Geislavirk efni nærri tilraunastað Frumrannsóknir bandarískra sérfræðinga sýna að geislavirk efni hafi fundist nærri þeim stað þar sem Norður-kóreumenn segjast hafa sprengt kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á mánudaginn. Heimildarmaður í bandaríska stjórnkerfinu hefur staðfest þetta bæði við Reuters-fréttastofuna og CNN í kvöld. 13.10.2006 23:49
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að koma sök á vinkonu sína Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag konu á þrítugsaldri í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að gefa upp nafn vinkonu sinnar í þrígang þegar lögregla hafði afskipti af ferðum hennar á bifreið í febrúar og mars 2002. 13.10.2006 23:36