Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alcan fær orku frá Hellisheiðarvirkjun Alcan og Orkuveita Reykjavíkur skrifuðu í morgun undir sextíu milljarða króna samning sem tryggir stækkuðu álveri í Straumsvík 200 megawött á ári, -sem er tæplega helmingur þeirrar orku sem til þarf. 11.5.2006 18:55
Háskólinn þarf 4,9 milljarða til að verða meðal þeirra bestu Heildartekjur Háskóla Íslands þurfa að aukast um tæpa fimm milljarða til að skólinn geti náð í hóp hundrað bestu skóla í heimi. Fjármagnið yrði notað til eflingar doktorsnáms og rannsóknavinnu við skólann. Leiðin í hóp hinna bestu var mörkuð í háskólanum í dag. 11.5.2006 18:38
Sýknað af fimm milljóna bótakröfu Hæstiréttur sýknaði Olíufélagið í dag af skaðabótakröfu fyrrum starfsmanns vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Olíufélagið til að greiða starfsmanninum tæpar fimm milljónir króna í bætur. 11.5.2006 18:00
Fimmtán mánuðir fyrir nauðgun Hæstiréttur dæmdi karlmann í dag til fimmtán mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir nauðgun. Dómurinn er nokkuð mildari en dómur Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi manninn í eins og hálfs árs fangelsi. 11.5.2006 17:40
Kópavogur tilnefnir heiðurslistamann Erna Ómarsdóttir dansari og danshöfundur var nú rétt í þessu útnefnd heiðurslistamaður Kópavogs. Erna er yngsti listamaðurinn sem hlotið hefur þennan heiður í Kópavogi, en hún þykir hafa náð langt í listsköpun sinni og verið landi og þjóð til sóma. 11.5.2006 17:35
Vinstri grænir í Hveragerði kæra úrskurð kjörstjórnar Vinstrihreyfingin - grænt framboð í Hveragerði hefur kært úrskurð kjörstjórnar í bænum fyrir að hafna Kolbrúnu Ósk Guðmundsdóttur á lista og leggjast gegn því að nýr frambjóðandi yrði tilnefndur í hennar stað. 11.5.2006 17:01
Verðbólgan hefur þrefaldast á einu ári Verðbólga mælist nú þrefalt meiri en hún var á sama tíma í fyrra og hefur ekki mælst hærri síðan í mars 2002. Útlit er fyrir að verðbólga hækki enn og spá greiningardeildir bankanna því að hún verði sjö til níu prósent yfir árið. 11.5.2006 16:45
Hraðamyndavélum fjölgað í Reykjavík Borgarráð samþykkti í dag að setja upp hraðamyndavélar á helstu hraðakstursstöðum í Reykjavík. Lögreglan segir myndavélar hjálpa mikið við að stöðva þá sem liggur lífið á. Hraðamyndavélarnar verða staðsettar við helstu umferðaræðar borgarinnar, svo sem Sæbraut, Breiðholtsbraut og Ártúnsbrekku þar sem ökumenn hafa ítrekað virt hraðatakmarkanir að vettugi. 11.5.2006 16:37
Hreinar fjörur í Hafnarfirði Í sumar verða allar fjörur í eldri hluta Hafnarfjarðarbæjar hreinar. Í dag var tekin í notkun dælustöðin við Norðurgarð en með því lauk fyrri hluta áfanga stórframkvæmda Fráveitu Hafnarfjarðar. 11.5.2006 15:17
Eldsneyti aftur flutt á sjálfsstjórnarsvæðin Ísraelska orkufyrirtækið Dor Alon ætlar að hefja aftur flutning á eldsneyti til sjálfsstjórnarsvæða Palestínumanna á morgun. Fyrirtækið ákvað að hætta eldsneytisflutningum í gær vegna skulda heimastjórnar Palestínumanna. 11.5.2006 15:15
Kristín Guðmundsdóttir er elsti íbúi Hafnarfjarðar Kristín Guðmundsdóttir er elsti íbúi Hafnarfjarðar en hún varð 104 ára í dag. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar heimsótti afmælisbarnið í tilefni dagsins og færði henni blóm. Kristín hefur alla tíð verið heilsuhraust, heyrn er þó farin að daprast en hún hefur enn mjög góða sjón. 11.5.2006 13:46
208% aukning í sölu á MP3 hringitónum Sala á MP3 hringitónum hjá Og Vodafone hefur aukist um 208% á fyrsta ársfjórðungi ársins 2006 samanborið við fjórða ársfjórðung 2005. Ein helsta ástæðan fyrir aukinni sölu er að nú geta viðskiptavinir einnig sótt sér MP3 hringitóna í gegnum Vodafone live! farsíma. 11.5.2006 13:32
Þátttökumet á Hjólreiðardegi fjölskyldunnar Mikill áhugi á hjólreiðum virðist hafa vaknað með þjóðinni. Þessa ályktun má draga af því um það bil 5000 þátttakendur í 524 liðum hafa skráð sig til leiks á hjólreiðardegi fjölskyldunnar, Hjólalestinni, sem undirbúningshópur Hjólað í vinnuna stendur fyrir. Í fréttatilkynningu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands er greint frá því að þetta sé nýtt þátttökumet Hjólað í vinnuna. 11.5.2006 13:25
Stærsta seglskúta landsins á Ísafirði Fjölmennt var á Ísafjarðarhöfn á þriðjudagskvöld til að taka á móti stærstu seglskútu landsins sem var að koma til heima hafnar á Ísafirði. Skútan verður í eigu ferðaþjónustufyrirtækisins Borea Adventures , og verður gengið frá kaupunum þann 18. maí. Skútunni var siglt frá Bretlandi og reyndist mjög vel í alla staði, tók siglingin 5 daga. 11.5.2006 12:57
Undirbúningur byggingar nýs hátæknisjúkrahúss hafin Undirbúningur byggingar nýs hátæknisjúkrahúss við Hringbraut er kominn á fullan skrið og er stefnt að því að verklegar framkvæmdir hefjist eftir rúm tvö ár. Jafnframt eru komnar fram hugmyndir um að endurskoða staðsetninguna og grundvallarhugmynd að sjúkrahúsinu sjálfu. 11.5.2006 12:46
Viðskipti Íslands og Kanada má efla Tengsl Íslands og Kanada eru góð en þau má enn efla. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslensk-kanadíska viðskiptaráðsins sem haldin var hjá Útflutningsráði í morgun. Margt var um gesti, sem greinilega var umhugað um tengsl landanna. 11.5.2006 12:23
Vinnustaðir fatlaðra bjóða í heimsókn Opið hús er í dag á mörgum af vinnustöðum fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu og sýningar og uppákomur af því tilefni. Listahátíðinni List án landamæra lýkur á laugardag með stórráðstefnu Átaks, félags fólks með þroskahömlun. 11.5.2006 12:10
Sjávarútvegsráðherra viðstaddur sjávarútvegssýningu í Brussel Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra var viðstaddur sjávarútvegssýningu í Brussel sem haldin var 9. og 10. maí. Þetta er stærsta fagsýning í heimi á sviði sjávarútvegs og tóku meira en 1600 fyrirtæki frá hátt í 70 löndum þátt í henni. 11.5.2006 12:07
Vélarvana bátur dregin til hafnar Björgunarskipið Einar Sigurjónsson frá Hafnarfirði var kallaður út kl.23:14 í gærkvöldi. Bátur af gerðinni Shetland 535 var vélarvana við Syðrahraun. ES var farinn úr höfn kl.23:38. Komið var að bátnum kl. 00:30 og taug var komin á milli bátana 10 mín. seinna. 11.5.2006 11:56
Fyrirlestur um afleiðingar stríðsátaka Helsti sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna um afleiðingar stríðsátaka og flóttamenn í eigin landi, Dennis McNamara, heldur fyrirlestur í dag og fjallar um það hvernig á að standa að afvopnun, friðargæslu og uppbyggingu á þessum stríðssvæðum og velta upp þeirri spurningu hvort smáþjóðir eins og Ísland hafi eitthvað erindi í friðargæslu á átakasvæðum. 11.5.2006 10:25
Hækkun vísitölu neysluverðs Hækkun vísitölu neysluverðs síðastliðna þrjá mánuði jafngildir tæplega sextán prósenta verðbólgu á ári, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Hún hefur hækkað um eitt komma fjörutíu og átta prósent frá síðasta mánuði, sem er óvenju mikil hækkun í ljósi þess að síðastliðna tólf mánuði hefur hún hækkað um samtals rúmlega sjö og hálft prósent. 11.5.2006 09:27
Breskur tölvuhakkari á yfir höfði sér allt að sjötíu ára fangelsi Breskur tölvuhakkari, hinn fjörtíu ára Gary McKinnon, á yfir höfði sér langan fangelsisdóm vegna skemmdarverka á tölvukerfum Bandaríkjahers og NASA sem hann komst sig inn á. 11.5.2006 07:19
Sektaðir fyrir að aka enn á nagladekkjum Þónokkrir ökumenn voru sektaðir fyrir að aka enn á nagladekkjum, eftir að lögreglumenn á Suðvesturlandi hófu átak gegn akstri á nagladekkjum í gær. Fimm þúsund króna sekt liggur við slíku. 11.5.2006 07:17
50 manns drepnir í Bagdad Allt að 50 manns eru drepnir í Bagdad, höfuðborg Íraks á hverjum sólarhring. Þetta sagði Jalal Talabani, forseti Íraks, í gær og bað um að blóðbað landinu yrði stöðvað. Árásum hefur fjölgað mikið að undanförnu í Írak en hryðjuverkasamtökin Al Qaida hafa lýst því yfir að þannig verði það uns Bandaríkjamenn eru á bak og burt og samtökin hafa náð fullum völdum. 11.5.2006 07:05
Má ekki blóta á sviðinu Silvía Nótt heldur ásamt föruneyti til Grikklands í dag. Söngkonunni hefur verið tilkynnt að hún megi ekki blóta á sviðinu í Aþenu. Verði textanum ekki breytt frá því sem er í myndbandinu gæti farið svo að henni verði vikið úr keppninni. 11.5.2006 07:00
Börn á munaðarleysingjahælum í Rúmeníu vanrækt og misnotuð Bandarísk mannréttindasamtök segja börn á munaðarleysingjahælum í Rúmeníu, sem skipta þúsundum, vera vanrækt og misnotuð í miklum mæli. Rúmensk stjórnvöld viðurkenna að eiga í miklum vandræðum með allan þann fjölda barna sem skilin eru eftir við dyr munaðarleysingjahæla og þær aðstæður sem þau búa við en neita þó ásökunum um misnotkun. 11.5.2006 06:59
Kveikti í bíl föður síns í Kópavogi Hæstiréttur staðfesti í gær eins mánaðar gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem kveikti í bíl föður síns í Kópavogi fyrr í vikunni. Áður hafði maðurinn kveikt í blaðabunka í stofu foreldra sinna svo mikill eldur hlaust af. Maðurinn hefur átt við fíkniefnavanda að stríða og reiddist föður sínum sem reyndi að koma honum í meðferð 11.5.2006 06:56
Slapp lítið meiddur Ökumaður, sem var einn í bíl sínum, ók á ljósastaur við Hvammahverfi í Hafnarfirði laust fyrir klukkan sjö í gærkvöld. Þrátt fyrir að beita þyrfti klippum til að ná manninum út úr stór skemmdum bílnum, slapp hann ótrúlega lítið meiddur. 11.5.2006 06:53
Veita Palestínumönnum tímabundna neyðaraðstoð Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði á blaðamannafundi í gærkvöld að Bandaríkin, Evrópusambandið, Rússar og Sameinuðu þjóðirnar, kvartettinn svokallaði, hefði ákveðið að veita Palestínumönnum tímabundna neyðaraðstoð til að koma í veg fyrir að þeir fái það á tilfinninguna að verið sé að refsa þeim fyrir að kjósa Hamas-samtökin í lýðræðislegu kosningum. 11.5.2006 06:50
Eldflaugum skotið að uppreisnarmönnum á Gaza Ísraelar skutu tveimur eldflaugum á herbúðir uppreisnarmanna í suðurhluta Gaza seint í gærkvöldi. Ekki hafa borist neinar fréttir af mannfalli. Að sögn ísraelskra stjórnvalda var F16 þota send til að eyðileggja byggingu þar sem hryðjuverkamenn eru taldir vera þjálfaðir. 11.5.2006 06:47
Ökuníðingur á hundrað og sjötíu kílómetra hraða Minnstu munaði að ökuníðingur, sem hafði mælst á yfir hundrað og sjötíu kílómetra hraða á Reykjanesbraut á leið til Keflavíkur í nótt, æki á lögreglubíl, sem sendur var á móti honum. 11.5.2006 06:45
Goldsmith lávarður vill loka Guantanamo fangelsinu Guantanamo fangelsið á Kúbu kemur óorði á frelsishefð Bandaríkjamanna og ætti að loka. Þetta sagði Goldsmith lávarður, ríkislögmaður Breta í ræðu í gær. Hann sagði tilvist fangelsisins óásættanlega. 11.5.2006 06:43
Eflir GSM sambandið á Hvolsvelli og nágrenni Og Vodafone hefur eflt GSM kerfi sitt í Rangárþingi eystra með uppsetningu á nýjum búnaði sem tryggir viðskiptavinum á svæðinu enn betri þjónustu en áður. Bætt þjónusta nær einkum til Hvolsvallar og nágrenni. 11.5.2006 11:42
Íhuga málsókn vegna björgunar Við aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Jónasi Garðarssyni kom fram hjá Boga Sigvaldasyni, varðstjóra lögreglunnar í Reykavík, að bátar björgunarsveita hefðu verið komnir á vettvang meira en 20 mínútum áður en lögreglan ákvað að leita eftir bátnum á hafi úti. "Við heyrðum ekkert um alvarleika málsins fyrr en við komum að fólkinu á kili bátsins," sagði Bogi fyrir dómi. 11.5.2006 00:01
Minnisvarði veitir upplýsingar Fornleifafræðingar í Mexíkó hafa fundið minnisvarða höggvinn úr steindranga í norður hluta landsins. Hann gæti veitt nýjar upplýsingar um eina elstu þjóðmenningu álfunnar. 10.5.2006 22:45
Fasteignaverð hefur hækkað um 67% Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 67% frá því í ágúst 2004, eða þegar bankarnir fóru að bjóða upp á íbúðalán. Þetta kemur fram í hálf fimm fréttum KB banka en þar kemur einnig fram að fasteignaverðið hækkaði um fjórðung á síðasta ári. Af tuttugu og tveimur höfuðborgum í Evrópu er fasteignaverð á Íslandi það áttunda hæsta. 10.5.2006 22:25
Sirkusfílar á vappi í Svíþjóð Það voru sirkusfílar sem mættu þeim sem áttu leið um nálægt vænum Väsby í Svíþjóð í gærkvöldi. Verið var að ferja fílana með flutningbíl þegar ökumaður missti bílinn útaf veginum þar sem hann valt síðan. 10.5.2006 22:15
Hefja kjaraviðræður á ný Viðræður SFR og svæðisskrifstofa fatlaðra um kjör stuðningsfulltrúa hefjast aftur á morgun. Upp úr viðræðunum slitnaði fyrir nokkrum vikum en fram kemur á vef SFR að samningafundir hafa verið boðaðir á morgun og föstudag. 10.5.2006 22:01
Ríkislögmaður Breta vill að Guantanamo fangelsinu verði lokað Guantanamo fangelsið á Kúbu kemur óorði á frelsishefð Bandaríkjamanna og ætti að loka. Þetta sagði Goldsmith lávarður, ríkislögmaður Breta í ræðu í dag. Hann sagði tilvist fangelsisins óásættanlega. 10.5.2006 21:54
Meinuðu Dorrit að fara úr landi Ísraelskir landamæraverðir ætluðu að neita Dorrit Moussaief forsetafrú að fara úr landi í gær eftir stutta heimsókn. Hún fékk ekki að halda áfram för sinni fyrr en rætt hafði verið við ræðismann Íslands í Ísrael. 10.5.2006 21:28
Í gæsluvarðhald fyrir íkveikjur Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag eins mánaðar gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem kveikti í bíl föður síns í Kópavogi fyrr í vikunni. Áður hafði maðurinn kveikt í blaðabunka í stofu foreldra sinna svo mikill eldur hlaust af. 10.5.2006 20:45
Þjóðminjasafnið tilnefnt til verðlauna Þjóðminjasafnið hefur verið valið í úrslit í samkeppni um safn Evrópu árið 2006. Ástæða þess að Þjóðminjasafnið hlýtur þessa tilnefningu er vel heppnuð endurskipulagning og endurhönnun sýninga og starfsemi safnsins. Þrenn verðlaun eru í samkeppninni, verðlaun sem safn ársins, verðlaun á vegum Evrópuráðsins og ítölsku Micheletti verðlaunin sem eru bjartsýnisverðlaun til safns á sviði tækni eða iðnaðar. 10.5.2006 19:39
Loksins fullkomið fangelsi Meðal þess sem gert verður til að taka á fíkniefnavanda í fangelsum, verður að koma upp meðferðardeild, þannig að spurn eftir fíkniefnum minnki. Fangelsismálastjóri vonast til að áratugalangri byggingasögu nýs og fullkomins fangelsis, ljúki fljótlega. 10.5.2006 19:16
Helmingsmunur á kexpakka Helmingsmunur getur verið á verði sams konar kexpakka í matvörubúðum sem eru hlið við hlið. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ segir fákeppni ríkja á matvörumarkaði, en með skynsömum innkaupum geti neytendur haldið verðinu í skefjum. 10.5.2006 18:55
Mikið um hraðakstur Mikið hefur verið um hraðakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík síðasta sólarhring. Alls hafa 54 ökumenn verið stöðvaðir fyrir hraðakstur og þar af reyndust 38 þeirra hafa ekið á yfir 100 kílómetra hraða á stofnbrautum. Fíkniefni fundust auk þess í bíl hjá einum ökumanni og þá fannst talsvert magn af fíkniefnum á heimili mannsins. Þá voru níu ökumenn kærðir fyrir að tala í farsíma og nota ekki handfrjálsan búnað. 10.5.2006 18:31