Fleiri fréttir

Stórsigur Hamas-fylkingarinnar

Hamas-fylkingin vann stórsigur í þingkosningum Palestínumanna í gær og hlaut 76 þingsæti. Fatah-flokkur Mahmouds Abbas, forseta, fékk aðeins 43 sæti. Þetta sýna fyrstu tölur frá kjörstjórn sem birtar voru nú síðdegis. Stjórnmálaskýrendur segja þessa niðurstöðu veikja vonir um að hægt verði að hefja friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs að nýju á næstunni.

Þuklaði á tíu ára stúlku

Hæstiréttur dæmdi karlmann í dag í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tíu ára gamalli stúlku. Maðurinn þuklaði á brjóstum hennar og kynfærum þar sem þau dvöldu á heimili bróður mannsins.

Skipbrotsmönnum bjargað undan Sporades-eyjum

Það krafðist ofurmannlegra átaka að bjarga 14 skipbrotsmönnum af 16 úr sjó eftir að flutningaskip þeirra sökk norður af ströndum Sprades-eyja sem liggja milli Grikklands og Tyrklands. Vont var í sjó á svæðinu þegar flutningaskipið rak á land og það sökk.

Palestínumenn vilja ekki óbreytt ástand

Bush Bandaríkjaforseti segir úrslit þingkosninga Palestínumanna í gær vísbendingu um að Palestínumenn séu óánægðir með ástand mála í heimastjórninni. Hann telur þó rétt að Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, verði áfram við völd.

Hágæsluaðstaða fyrir börn til skoðunar

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sagði í dag, í svari við fyrirspurn Gunnars Örlygssonar, að fjöldi bráðveikra barna hefði aukist, að þörf þeirra fyrir þjónustu færi vaxandi og að börnin sem lægju á Barnaspítala Hringsins væru veikari en áður. Sagði hann hágæsluaðstöðu fyrir börn vera til skoðunar.

Jakob hættir í bæjarmálunum

Jakob Björnsson, forseti bæjarstjórnar og oddviti framsóknarmanna á Akureyri, hættir í afskiptum af stjórnmálum að loknu þessu kjörtímabili í vor.

Bandaríkjamenn aðvara Hamas-liða

Ekki verður haldið áfram með friðarviðræður vegna deilu Ísraela og Palestínumanna ef Hamas-samtökin, sigurvegarar í palestínsku þingkosningunum í gær, viðurkenna ekki tilverurétt Ísraelsríkis. Þetta sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hún ávarpaði Heimsviðskiptaráðstefnuna í Davos í Sviss í dag.

Sprenging í Rúmeníu

Að minnsta kosti einn lét lífið og 3 slösuðust þegar sprenging varð í verksmiðju í Suður-Rúmeníu í dag. 1000 íbúðir í nálægum byggingum eyðilögðust og fjölmargir bílar einnig sem lagt hafði verið í næsta nágrenni. Ekki liggur fyrir hvað olli sprengingunni.

Högnuðust um 27 milljarða króna

Straumur-Burðarás hagnaðist um nær 27 milljarða króna á síðasta ári, þar af er nær helmingur hagnaðarins tilkomin af síðustu þremur mánuðum síðasta árs.

Aldrei fleiri farþegar

Farþegar Icelandair hafa aldrei verið fleiri en á síðasta ári. Þeir voru rúmlega ein og hálf milljón talsins og fjölgaði um fimmtán prósent milli ára.

Gengu of hart fram gegn starfsmönnum

Fasteignamati ríkisins er ekki heimilt að fara með tölvupóst starfsmanna stofnunarinnar eins og hann sé eign stofnunarinnar. Þetta segir í áliti Persónuverndar á reglum sem Fasteignamat ríkisins setti um tölvupóst- og netnotkun starfsmanna.

Hamasliðar kokhraustir

Forsætisráðherra Palestínu hefur sagt af sér en í þingkosningunum í gær náðu hin herskáu Hamas-samtök það góðum árangri að þau hljóta að teljast sigurvegarar kosninganna. Hamas-liðar eru kokhraustir og hafa lýst yfir fullnaðarsigri í þingkosningunum.

Frítt í sund fyrir börn í Reykjanesbæ

Börn í Reykjanesbæ munu framvegis fá frítt í sund samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, sem tók gildi um síðustu áramót. Börn í Reykjanesbæ hafa tekið þessum breytingum vel en í fyrstu viku janúarmánaðar höfðu tæplega þrefalt fleiri börn komið í sund en á sama tíma árið á undan. Er þetta liður í stefnu bæjaryfirvalda að stuðla að fjölskylduvænu samfélagi. Fréttavefurinn Víkurfréttir greinir svo frá.

L-listinn í Skeiða og Gnúpverjahreppi leysist upp

L-listinn í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, listi áhugafólks um farsæla sameiningu, býður ekki fram í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta kemur fram á fréttavefnum sudurland.net. L-listinn fékk hreinan meirihluta í síðustu sveitarstjórnarkosningum, fékk fjóra fulltrúa en A-listi framfarasinna 3. Langvinn deila um skólamál í hreppnum er ein aðalskýring þessarar ákvörðunar fulltrúa L-listans.

Börnin á Sólhlíð halda upp á Ljósahátíð

Börnin á leikskólanum Sólhlíð í Engihlíð héldu sína árlegu Ljósahátíð í morgun. Krakkarnir voru að vonum spenntir enda ekki á hverjum degi sem þau mæta með vasaljós í leikskólann.

Neitar að hafa ætlað að nota búnaðinn

Búlgarinn, sem handtekinn var fyrir að flytja til landsins búnað til að afrita greiðslukort og misnota reikninga, gengur laus þar sem búnaðurinn er ekki ólöglegur fyrr en hann er notaður ólöglega og maðurinn neitar að hafa ætlað að gera það.

Skýrsla um gengismál

Ný skýrsla um íslensku krónuna segir að fleiri gallar en kostir fylgi því að taka upp Evruna á Íslandi. Skýrslan var kynnt á ráðstefnu sem haldin var á Nordica Hótel í morgun sem bar yfirskriftina "horft til framtíðar".

Forsætisráðherra Palestínu segir af sér

Ahmed Qurie, forsætisráðherra Palestínu hefur sagt af sér og ríkisstjórnin öll. Þá hafa Hamas-samtökin lýst því yfir að þau hafi sigrað þingkosningarnar í Palestínu.

KB-banki skilar methagnaði

Hagnaður KB banka á síðasta ári eftir skatta, nam tæpum fimmtíu milljörðum króna og jókst um rúm hundrað áttatíu og tvö prósent á milli ára.

Stýrivextir hækka í 10,75 prósent

Seðlabanki Íslands mun hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentustig frá og með 1. janúar. Stýrivextir verða því 10,75 prósent.

Gamla Austurbæjarbíó gert upp

Gamla Austurbæjarbíóið gengur nú í endurnýjun lífdaga. Verið er að gera húsið upp og við þá vinnu hefur ýmislegt komið í ljós. Til stendur að nýta húsið til ýmissa menningar- og listaviðburða.

Sjálfstæðisflokkurinn með mesta fylgið

Tæp 44% Reykvíkinga segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn yrði boðað til Alþingiskosninga núna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, en kjörfylgi flokksins í Reykjavík var 37% í síðustu kosningum.

Nýtt móðurfélag VÍS

Stjórn Vátryggingafélag Íslands hefur samþykkt nýtt stjórnskipulag fyrir félagið í samræmi við stóraukin umsvif þess og framtíðaráherslur. VÍS eignarhaldsfélag er heiti á nýju móðurfélagi sem Finnur Ingólfsson mun veita forstöðu. Undir hið nýja félag heyra sjö sjálfstæð dótturfélög á sviði trygginga-, öryggis- og fjármálaþjónustu.

Hæstiréttur staðfestir farbannsúrskurð héraðsdóms

Hæstiréttur staðfesti í gær farbannsúrskurð Héraðsdóms yfir manni, sem er grunaður um að hafa smyglað fjórum kílóum af hassi og einu kílóii af anfetamíni með Norrænu hingað til lands fyrr í mánuðinum. Hann var handtekinn tveimur dögum eftir komuna og úrskurðaður í gæsluvarðhald, sem er runnið út, en sætir nú farbanni.

Vinnuslys í Sandgerði

Starfsmaður í fiskvinnslufyrirtæki í Sandgerði, sem var einn við vinnu í gærkvöldi, slasaðist alvarlega á fæti, en gat af eigin rammleik leitað aðstoðar. Honum skrikaði fótur og og lenti ofan í snigli, með þeim afleiðingum að hann missti nokkrar tær áður en hann náði að rífa sig lausan úr sniglinum og leita hjálplar í næsta fyrirtæki.

Loðnunnar leitað

Dauðaleit er að hefjast að loðnu við landið þar sem leit hafrannsóknaskips og nokkurra loðnuskipa um hríð, hefur ekki borið meiri árangur en svo, að ekki er enn hægt að gefa út kvóta, eða veiðiheimildir fyrir vertíðina. Vertíðin er oft komin í fullan gang um þetta leiti.

Tæki til kortalesturs gerð upptæk á Seyðisfirði

Tollgæslan á Seyðisfirði fann fjögur sér smíðuð tæki til að setja framan á hraðbanka til að geta lesið kortanúmer og misnotað síðan viðkomandi reikninga. Tækin fundust þegar tollverðir gerðu leit á manni með búlgarskt vegabréf, eftir að hann kom með Norrænu til Seyðisfjarðar á þriðjudaginn.

Símaráðgjöf fyrir barnaníðinga

Barnaníðingar geta nú leitað sér aðstoðar í Danmörku, nafnlaust. Heilbrigðisráðuneyti hefur ákveðið að koma á fót símaráðgjöf fyrir barnaníðinga á danska ríkissjúkrahúsinu. Þjónustusíminn er hugsaður fyrir barnaníðinga sem vilja leita sér aðstoðar en hann verður opinn í einn til fjóra tíma á viku.

Ríkisborgarar frá A-Evrópu sækja til Danmerkur

Sífellt fleiri ríkisborgarar Austur-Evrópulanda sækja um dvalar- og atvinnuleyfi í Danmörku. Á síðasta ári fengu um fimm þúsund manns frá nýju Evrópusambandslöndunum dvalar- og atvinnuleyfi en það er tvölfalt fleiri en árið áður.

Æ fleiri ungar konur gera tilraunir til sjálfsvígs

Æ fleiri ungar konur í Danmörku reyna að taka eigið líf. Frá árinu 1990 hefur tilraunum til sjálfsvígs meðal kvenna á aldrinum 20-29 ára aukist um 66% en aukningin hefur verið sérlega mikil á síðustu árum.

Hamas og Fatah með yfir 40% atkvæða

Hamas-fylkingin hlaut 42% atkvæða í þingkosningum Palestínumanna í dag en Fatah-flokkur Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, fékk 45% ef marka má fyrstu útgöguspá vegna kosninganna. Þetta er nokkuð á skjön við niðurstöður kannana í aðdraganda kosninganna þegar Hamas var spáð um 30% atkvæða og Fatah um 40%

Emiliana og Sigur Rós með þrenn verðlaun

Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Flest verðlaut hlutu Emiliana Torrini og Sigur Rós eða þrenn verðlaun hvor. Bestu hljómplötu ársins átti Benni Hemm Hemm og var hann líka valinn bjartasta vonin. Þá var Mugison valin vinsælasti flytjandinn á visir.is og vinsælasta lagið valið af notendum tonlist.is var My Delusions með Ampop.

Styttist í prófkjör Framsóknarflokksins

Ekki hefur verið boðinn fram B listi Framsóknarflokksins í borginni síðan árið 1990. Prófkjör flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor verður um helgina og hefur utankjörfundarkosning gengið vel.

Ágreiningur um stækkun álvers í bæjarstjórn Hafnarfjarðar

Djúpstæður ágreiningur er í bæjarstjórn Hafnarfjarðar um stækkun álversins í Straumsvík og meirihluti Samfylkingarinnar er klofinn. Þrátt fyrir andstöðu er þó líklegast að framkvæmdaleyfið verði veitt, fyrir tilstilli minnihluta sjálfstæðismanna í bæjarstjórn.

Krónan helsta útflutningsvaran

Krónan er orðin helsta útflutningsvara Íslands, segir Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, sem óttast að frekari vaxtahækkanir Seðlabankans á morgun geri stöðu útflutningsatvinnugreina enn erfiðari en hún er þegar orðin.

Starfsmönnum fækkað um hátt í 60

Starfsmönnum HB Granda á Akranesi hefur fækkað um hátt í sextíu á rúmu ári frá því fyrirtækið varð til við sameiningu Haralds Böðvarssonar á Akranesi og Granda í Reykjavík.

Google ritskoðað í Kína

Kínverjar geta senn farið að notfæra sér Google-leitarvélina á Netinu, en böggull fylgir skammrifi. Leitarvélin verður stillt þannig að tiltekin leitarorð sem tengjast pólitísku andófi skila engum niðurstöðum.

Íranar fagna tilboði Rússa

Íranar fagna tilboði stjórnvalda í Moskvu um að Rússar auðgi úran fyrir þá en segja nauðsynlegt að útfæra tilboðið betur. Stjórnvöld í Teheran hóta því að hefja auðgun úrans af fullum krafti ef kjarnorkudeilu þeirra við Vesturveldin verði vísað til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Leynd yfir ofurkjörum og starfslokasamningum

Fyrirtæki sem ekki eru skráð í Kauphöllinni þurfa ekki að upplýsa í ársreikningum um ofurkjör eða starfslokasamninga stjórnenda sinna. Þau falla undir reglur Fjármálaeftirlitsins um upplýsingaskyldu sem ganga ekki jafn langt. Viðskiptaráðherra segir ekki á dagskrá að gera Lífeyrissjóðum skylt að birta slíkar upplýsingar í ársreikningi.

Ísraelar hindruðu kosningar í Austur-Jerúsalem

Mikil spenna ríkti á herteknu svæðunum í Palestínu enda hafa þingkosningar ekki farið þar fram í áratug. Í Austur-Jerúsalem fékk aðeins brot kjósenda að neyta atkvæðisréttar.

Spár benda til að Fatah fái flest atkvæði

Fyrstu útgönguspár benda til að Fatah-hreyfing Mahmouds Abbas hafi fengið um 46 prósent atkvæða í palestínsku þingkosningunum sem fram fóru í dag. Að því er Reuters-fréttastofan hermir fengu hin herskáu Hamas-samtök rétt rúmlega þrjátíu prósent.

Sjá næstu 50 fréttir