Innlent

Högnuðust um 27 milljarða króna

Þórður Már Jóhannesson, forstjóri Straums-Burðaráss, segir sameiningu félaganna hafa gengið mjög vel.
Þórður Már Jóhannesson, forstjóri Straums-Burðaráss, segir sameiningu félaganna hafa gengið mjög vel. MYND/GVA

Straumur-Burðarás hagnaðist um nær 27 milljarða króna á síðasta ári, þar af er nær helmingur hagnaðarins tilkomin af síðustu þremur mánuðum síðasta árs.

Helsta ástæðan fyrir hagnaðinum er hækkun hlutabréfa í eigu félagsins auk þess sem vaxta- og þjónustutekjur bankans jukust um 60 prósent milli ára. Öll rekstrarsvið fjárfestingabankans voru rekin með hagnaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×