Gamla Austurbæjarbíó gert upp 26. janúar 2006 08:00 MYND/stefan_karlsson
Gamla Austurbæjarbíóið gengur nú í endurnýjun lífdaga. Verið er að gera húsið upp og við þá vinnu hefur ýmislegt komið í ljós. Til stendur að nýta húsið til ýmissa menningar- og listaviðburða. Margir muna eflaust eftir því þegar Kinks hélt tónleika í Austurbæjarbíói, eftir böllunum í Silfurtunglinu eða þegar Flowers tróðu þar upp. Saga Austurbæjarbíós er samofin menningarsögu Íslands á tuttugustu öld og því fór um marga hrollur þegar ákveðið var að rífa húsið og reisa þar íbúðar- og verslunarhúsnæði. Miklar deilur risu um afdrif hússins og nú hefur verið ákveðið að koma því í eins upprunalegt horf og hægt er. Eigendi hússins, Nýsir hf. hefur þegar hafið breytingar á húsinu og Ísmedía mun halda þar úti rekstri. Þrátt fyrir að vera sé að endurgera húsið þá iðar allt af lífi í Austurbæ og þegar við litum inn var leikhópur Verslunarskóla Íslands við æfingar. Til stendur að halda úti starfssemi í húsinu þrátt fyrir framkvæmdirnar. Meðal þess sem á að breyta í húsinu er kjallari þess. Til að byrja með þurfti að hreinsa þar út og þegar niður í kjallara var komið kom ýmislegt forvitnilegt í ljós. Þar úir allt og grúir af alls kyns gömlum munum eins og Wrigleys tyggigúmmí frá árinu 1954 og þegar gengið er inn eftir löngum dimmum göngunum undir húsinu má sjá gamlar filmur, kolakyndiklefa, forláta loftræstikerfi og sýningarvél sem er komin vel til ára sinna. Það er arkitektstofan Henning Larsen Tegnastue sem hafa veg og vanda af breytingunum en hún er meðal annars þekkt fyrir teikningu tónlistar- og ráðstefnuhússins Portus í Reykjavík.
Fréttir Innlent Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíll hafnaði á ljósastaur Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíll hafnaði á ljósastaur Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Sjá meira