Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hættulegt tannkrem Norskir og sænskir sérfræðingar hafa varað fólk við að nota tannkrem með efninu tríklósan, þar sem það getur verið skaðlegt. Efnið er í tannkremstegundum sem eru merktar Total og er bakteríudrepandi. Börnum og þunguðum konum er sérstaklega ráðlagt að nota annars konar tannkrem. 13.10.2005 00:01
Erfitt bú mætti Sjálfstæðismönnum Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hófst í Laugardalshöllinn í kvöld. Fjölmenni er á fundinum eins og venja er en vel á annað þúsund manns hvaðan af á landinu er á fundinum. Dagskráin hófst á því að Sinfoníuhljómsveit Íslands tók nokkur lög og svo hófst setningarræða Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins 13.10.2005 00:01
Féflettur á Goldfinger Karlmaður telur að sér hafi verið byrluð ólyfjan á nektardansstaðnum Goldfinger og þar hafi menn nýtt sér ástandið og hreinsað út af kortareikningi hans. Lögreglan segir sönnunarfærslu í slíkum málum afar erfiða. 13.10.2005 00:01
Tusk eykur forskotið á Kaczynski Frjálshyggjumaðurinn Donald Tusk hefur aukið forskot sitt á keppinautinn um pólska forsetaembættið, íhaldsmanninn Lech Kaczynski, upp í tólf prósentustig, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem birtar voru í gær. Úrslitaumferð forsetakosninganna, þar sem valið stendur á milli þeirra tveggja, fer fram 23. þessa mánaðar. 13.10.2005 00:01
SMÍ og FF takast á Stjórn Skólameistarafélags Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í dag, þar yfirlýsing sem Félag framhaldsskólakennara birti á heimasíðu Kennarasambands Íslands, er fordæmd og sögð óvægin árás á skólameistara Menntaskólans á Ísafirði. 13.10.2005 00:01
Vinnur Hómer Simpson í Sellafield? Lekinn í endurvinnslustöðinni í Sellafield síðastliðið vor er mörgum áhyggjuefni hér á landi. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, spurði umhverfisráðherra í vikunni um það hvort hann hefði fengið einhver svör frá kollega sínum í Bretlandi en hún hafði óskað eftir skýrslu frá bretum vegna lekans. 13.10.2005 00:01
Hjólastígur til Straumsvíkur Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði og Rannveig Rist, forstjóri Alcan, tvímenntu á hjóli eftir nýjum hjólreiðastíg milli Hafnarfjarðar og Straumsvíkur sem opnaður var formlega í gær.Lagning stígsins var samstarfsverkefni Alcan og Hafnarfjarðarbæjar sem deildu með sér kostnaði við framkvæmdina. 13.10.2005 00:01
Munurinn er hálf milljón „Þetta getur litið svolítið undarlega út en það er skýring á þessu," segir Helgi Þór Ingason dósent en hann er forstöðumaður náms í verkefnastjórnun við Háskóla Íslands. Meistaranemendur í verkefnastjórnun vöktu á því athygli að nemendur í verkefnastjónun og leiðtogaþjálfun við Endurmenntun sitja með þeim námskeiðin á fyrsta ári þótt lesefni og próf séu ekki alveg hin sömu. 13.10.2005 00:01
Steinmeier í þýsku utanríkismálin Frank Walter Steinmeier, starfsmannastjóri Gerhards Schröder fráfarandi kanslara, verður næsti utanríkisráðherra Þýskalands. Þetta kom í ljós er forusta þýska jafnaðarmannaflokksins SPD staðfesti hverjir úr þeirra röðum tækju sæti í væntanlegri samsteypustjórn með kristilegum demókrötum. 13.10.2005 00:01
Tugir falla í árás uppreisnarmanna Téténskir uppreisnarmenn lýstu ábyrgð á árásinni, en með henni færðist vettvangur stríðs íslamska uppreisnarmanna á Kákasussvæðinu gegn Rússum enn frekar út, en það hefur nú staðið í á annan áratug. 13.10.2005 00:01
Stúdentaráð sendir frá sér ályktun Stúdentaráð Háskóla Íslands sendi frá sér álytkun í dag þar sem þeirri ósk var beint til ráðamanna þjóðarinnar, að það fjármagn sem var ætlað til sameingar sveitafélaga, verði notað til að byggja upp Háskóla Íslands. 13.10.2005 00:01
Maður brást hjálparskyldu Maður var dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar í hæstarétti í gær fyrir að bregðast hjálparskyldu. Hann lét farast fyrir að koma ungri stúlku undir læknishendur þar sem hún hafði veikst lífshættulega af völdum of stórra skammta af e-töflum og kókaíni. 13.10.2005 00:01
Eins og biturt fórnarlamb „Því er enn dapurlegra að að ekki aðeins formaður Samfylkingarinnar, heldur einnig sumir þingmenn hennar, eins og ömurlegt uppistand í þinginu síðastliðinn þriðjudag sýndi, virðast naumast líta á Samfylkinguna sem flokk en fremur sem tiltölulega léttvægt dótturfélag auðhrings,“ sagði Davíð Oddsson, fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins í ræðu sinni við setningu landsfundar í gærkvöldi. 13.10.2005 00:01
Ofbeldishrotti áfram í haldi „Árásin var mjög hrottaleg og hending virðist hafa ráðið því að ekki fór verr,“ segir í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness yfir ofbeldismanninum unga sem réðst á jafnaldra sinn, átján ára gamlan, með sveðju í samkvæmi í Garðabæ, 2. október síðastliðinn. 13.10.2005 00:01
Ár liðið frá rannsókn Skattrannsóknarstjóri lauk rannsókn sinni á Baugi og tengdum fyrirtækjum fyrir tæpu einu ári. Að rannsókn lokinni var málið sent annars vegar til ríkisskattstjóra sem tekur ákvörðun um endurálagningu opinberra gjalda og hins vegar til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, en þangað rata umfangsmikil brot samkvæmt reglugerð. 13.10.2005 00:01
Dæmdur fyrir ítrekuð brot Hæstiréttur dæmdi í gær tæplega þrítugan mann í tveggja ára fangelsi fyrir samtals 35 brot. Brot mannsins eru margvísleg, þar á meðal hefur hann ekið tíu sinnum án réttinda og tvisvar ekið undir áhrifum. 13.10.2005 00:01
Samfylkingin dótturfélag auðhrings <font size="1"> </font>Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins var harðorður í garð 365 fjölmiðlasamsteypunnar í setningarræðu sinni á 36. landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær og sagði hana misnotaða af eigendum sínum. > 13.10.2005 00:01
Stal nítján milljónum Fasteignasali var dæmdur í tólf mánaða fangelsi í Hæstarétti í gær fyrir að hafa á tímabilinu mars 2001 til desember 2002 dregið sér rúmar nítján milljónir króna af fé sem hann tók við frá viðskiptavinum vegna sölu á fasteignum. 13.10.2005 00:01
Fjárhagur til endurskoðunar <strong><font size="1"> </font></strong>Starfshópur á vegum menntamálaráðherra vinnur að því að endurskoða reiknilíkan fyrir rekstur og fjárhag Háskólans á Akureyri. Þetta kom fram í utandagskrárumræðum um málefni háskólans á Alþingi í gær.> 13.10.2005 00:01
Leyniskýrsla um slóðaskap Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, spurði umhverfisráðherra á Alþingi á miðvikudag um viðbrögð við leka síðastliðið vor á geislavirkum efnum í kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield á Englandi. Hann sagði að blaðið The Independent hefði birt gögn nýverið um endurtekin mistök í Sellafield, meðal annars við gæðaeftirlit. 13.10.2005 00:01
Ráðherralisti í Noregi Ráðherralisti nýrrar ríkisstjórnar í Noregi verður kynntur á ríkisráðsfundi í norsku konungshöllinni í Osló á mánudag. Viðræðum forystumanna rauðgræna bandalagsins svonefnda, sem hlaut meirihluta þingsæta í þingkosningunum 12. septemer síðastliðinn, lauk í ráðstefnumiðstöðinni Soria Moria í gær. 13.10.2005 00:01
Átta sækjast eftir fyrsta sætinu Spennandi prófkjör er framundan vegna lista Framsóknarflokks í sveitarstjórnarkosningum í Kópavogi og sækjast átta eftir fyrsta sæti. Kosið verður um sex efstu sætin. Þar verða þrír af hvoru kyni samkvæmt reglum flokksins. 13.10.2005 00:01
Hlutfallslega mesti vaskurinn hér Samkvæmt skýrslu OECD er hlutfall virðisaukaskatts af þjóðarframleiðslu hvergi hærra en á Íslandi þar sem það jókst mest á milli áranna 2003 og 2004. Þá er skattur á fyrirtæki sem hlutfall af skatttekjum næstlægstur á Íslandi. 13.10.2005 00:01
Presti greint frá kynferðisofbeldi Þeim einstaklingum hefur farið fjölgandi á síðustu fimm árum sem segja presti sínum frá því að þeir hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi sem börn. Þetta segir séra Gunnþór Ingason sóknarprestur í Hafnarfirði. 13.10.2005 00:01
Hagnaður Apple fjórfaldast Hagnaður Apple fjórfaldaðist á síðasta ársfjórðungi í samanburði við sama tímabil í fyrra en hagnaður fyrirtækisins nam 26 milljörðum íslenskra króna. Ástæða góðs gengis er án efa góð sala á iPodinum svokallaða en fyrirtækið seldi 6,5 milljónir tækja af þessu tagi á tímabilinu. Tekjur Apple voru samt sem áður minni en sérfræðingar á Wall Street höfðu búist við og gengi hlutabréfa félagsins lækkaði um 10% eftir að hagnaðartölur birtust. > 12.10.2005 00:01
Rúmlega 500 leiðbeinendur í fyrra 527 leiðbeinendur fengu undanþágu til að vinna við kennslu í grunnskólum á síðasta skólaári. Það er fimmtungsfækkun frá árinu á undan samkvæmt nýútkominni ársskýrslu undanþágunefndar. > 12.10.2005 00:01
Ákvörðun felld úr gildi <font size="2">Félagsmálaráðuneytið hefur fellt úr gildi ákvörðun sveitarstjórnar Dalabyggðar um að víkja Guðrúnu Jónu Gunnarsdóttur úr sveitarstjórn Dalabyggðar. </font>> 12.10.2005 00:01
Ósáttir við að fá ekki fatapeninga Stuðningsfulltrúar og félagsliðar innan SFR - stéttarfélags í almannaþágu eru ósáttir við að vinnuveitendur séu ekki enn farnir að greiða fatapeninga. Meðal þess sem samið var um síðasta vor var að starfsmenn fengju fimmtán hundruð krónur á mánuði í fatapeninga. > 12.10.2005 00:01
Vilja sameina samlokurisa Eitt fyrirtæki verður með 95% prósenta markaðshlutdeild á samlokumarkaði ef áform stjórnenda Sóma á að kaupa Júmbó samlokur ganga eftir. Frá þessu er greint í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins í dag. > 12.10.2005 00:01
Magn botnfiskafla eykst Magn og verðmæti botnfiskafla sem seldur er á erlendum ísfiskmörkuðum eykst stöðugt. Samkvæmt bráðabirgðatölum voru flutt út 55.507 tonn 2004 til 2005 að verðmæti 9,3 milljarðar segir í fréttum frá Fiskistofu. Er það er 24,7 % meira magn en flutt var út á fiskveiðiárinu árið áður. Verðmæti útflutts botnfiskafla óx meira, eða um 26,7%, þrátt fyrir öflugri krónu. > 12.10.2005 00:01
Elsti togarinn á söluskrá Einn elsti togari flotans, Jón Kjartansson SU frá Eskifirði, sem nú er fjölveiðiskip, er komið á söluskrá eftir 45 ára dyggja þjónustu við útgerðir hér á landi. Eigandi Jóns er Eskja, sem ætlar að selja hann þar sem fyrirtækið er búið að festa kaup á nýlegu fjölveiðiskipi í útlöndum. Jón Kjartansson var alveg endurbyggður fyrir sjö árum og er nánast ekkert eftir af upphaflega skipinu nema skrokkurinn.> 12.10.2005 00:01
Græðgi ógnar fótboltanum Forseti alþjóðaknattspyrnusambandsins segir græðgina í fótboltanum vera farna að ógna leiknum sjálfum. Launagreiðslur leikmanna séu orðnar óeðlilega háar og fótboltann orðinn aukaatriði. Eigendur knattspyrnufélaganna hugsi aðeins um peninga og líti ekki á fótbotann sem íþrótt heldur viðskipti og það eingöngu.> 12.10.2005 00:01
Skortur á vinnuafli í New Orleans Skortur er á vinnuafli á veitingastöðum í New Orleans og eru skilti í glugga á nánast hverjum einasta veitingastað í borginni þar sem stendur á hjálp óskast. Stjórnendur veitingastaðanna hafa neyðst til að bera matinn fram á plastdiskum og drykkina sömuleiðis í plastglösum þar sem enginn er á staðnum til að þvo upp. > 12.10.2005 00:01
Schröder tvístígandi Gerard Schröder, kanslari Þýskalands, gaf það í skyn á fundi sem haldinn var í gær að hann myndi kannski ekki verða með í ríkisstjórn sem leidd verður áfram af Angelu Merkel formanni Kristilegra. Schröder hefur samþykkt að láta embættið af hendi til Merkel. > 12.10.2005 00:01
Greiða atkvæði öðru sinni Félagar í Starfsmannafélagi Akraness greiða í dag atkvæði um kjarasamning við Akranesbæ. Samningar náðust seint á laugardag, sólarhring áður en verkfall átti að hefjast sem haft hefði mikil áhrif á stofnanir bæjarins. > 12.10.2005 00:01
Sjö og hálft tonn haldlögð Kólumbíski sjóherinn lagði í gær hald á sjö og hálft tonn af kókaíni sem talið er hafa verið í eigu uppreisnarmanna í landinu. Talið er að andvirði efnisins sé um 188 milljónir dollara, eða um 11,5 milljarðar íslenskra króna. Yfirvöld í Kólumbíu hafa lagt hald á um 90 tonn af kókaíni það sem af er ári en hvergi í heiminum er framleitt jafn mikið magn af kókaíni og í Kólumbíu.> 12.10.2005 00:01
Fanginn skilaði lyklakippunni Fangavörður í Kumla-fangelsinu í Svíþjóð gleymdi lyklakippunni sinni í einni skránni. Þegar einn fanganna kom að henni greip hann þó ekki tækifærið til að flýja eins og margir hefðu kannski búist við heldur skilaði hann lyklakippunni til starfsmanna.> 12.10.2005 00:01
Sprengt við sendiráð BNA í Kabúl Tveir særðust þegar sprengja sprakk við bandaríska sendiráðið í Kabúl, höfuðborg Afghanistan í morgun. Enginn hópur hefur lýst verknaðinum á hendur. Árásum hefur fjölgað mikið í borginni að undanförnu en yfir 1400 manns hafa fallið vegna þeirra á síðustu sex mánuðum.> 12.10.2005 00:01
Bjartsýnn á samþykki Félagar í Starfsmannafélagi Akraness greiða í dag atkvæði um kjarasamning við Akranesbæ. Valdimar Þorvaldsson, formaður félagsins, segist bjartsýnn á að samningurinn verði samþykktur en 240 manns eru á kjörskrá. > 12.10.2005 00:01
4,6 prósenta verðbólga Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,61 prósent milli september og október. Verðbólga á ársgrundvelli er því 4,6 prósent, litlu minni en í síðasta mánuði þegar hún mældist 4,8 prósent. Verðbólga án húsnæðis hefur hins vegar hækkað um 1,2 prósent síðasta árið. > 12.10.2005 00:01
Bílslys við Eyrarhlíð Ökumaður fólksbíls missti stjórn á bílnum þegar hann var á leið um Eyrarhlíð á milli Ísafjarðar og Hnífsdals í gærkvöldi, með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og hafnaði niðri í fjöru. Svo vel vildi þó til að hann lenti ekki alveg ofan í sjó. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, slasaðist og var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði, þar sem hann er enn. Hann er þó ekki talinn alvarlega slasaður. > 12.10.2005 00:01
Blindramerkingar í Háskólanum Jafnréttis -og öryggisnefnd Stúdentaráðs stendur fyrir blindraletursmerkingum á öllum stofum, salernum og skrifstofum í Aðalbyggingu Háskóla Íslands í dag. Merkingin hefst klukkan 11.00 við aðalinngang Aðalbyggingarinnar og eru það tvær fjórtán og fimmtán ára blindar stúlkur sjá um merkingarnar. Með þeim er einn kennari og einn starfsmaður frá sjóntækjastöðinni.> 12.10.2005 00:01
Annar jarðskjálfti í Pakistan Jarðskjálfti sem ældist fimm á Richter reið yfir suðvesturhluta Pakistan í gær, fjórum dögum eftir jarðskjálftann á laugardag. > 12.10.2005 00:01
Fimm hjálparstarfsmenn skotnir Talibanar skutu fimm afganska hjálparstarfsmenn til bana í suðurhluta Kandaharhéraðs í morgun. Hjálparstarfsmennirnir, tveir læknar, tvær hjúkrunarkonur og ökumaður þeirra, voru á leið frá þorpi þar sem þeir höfðu sinnt hjálparstarfi þegar ráðist var á þá.> 12.10.2005 00:01
Ójöfnuður eykst á Íslandi Tekjuskipting á Íslandi er orðin mun ójafnari en á hinum Norðurlöndunum og ójöfnuðurinn virðist enn fara vaxandi. Þennan ójöfnuð má að hluta til útskýra með tilkomu kvótakerfisins.> 12.10.2005 00:01