Fleiri fréttir

Deila um endurgreiðslu kauphækkana

Sjúkraliðar hafa vísað deilu sinni við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu til Ríkissáttasemjara. Félögin gengu frá kjarasamningi í sumar en deila nú um framkvæmd hans. Einkum fer það fyrir brjóstið á sjúkraliðum að þeir voru rukkaðir um endurgreiðslu þeirrar hækkunar sem þeir höfðu þegar fengið þegar nýi samningurinn tók gildi. >

Skoða kaup á Júmbó

Eigandi samlokugerðarinnar Sóma skoðar nú möguleika á að kaupa keppinautinn Júmbó-samlokur. Með kaupunum yrði til fyrirtæki sem réði yfir stærstum hluta samlokumarkaðarins á Íslandi. >

Snjóar fyrr en síðustu ár

Vetur konungur heilsar fyrr upp á landsmenn nú en nokkur síðustu ár. Um það ber snjóamagn víða um land merki. Þrjátíu og eins sentímetra snjór var á Ólafsfirði í morgun og sautján sentímetrar á Kirkjubæjarklaustri. >

Þrjátíu létust í sprengjuárás

Í það minnsta 30 manns létu lífið í sjálfsmorðssprengjuárás við nýliðaskráningu hersins í borginni Tal Afar í norðurhluta Íraks, 35 að særðust í árásinni. Þetta er önnur sjálfsmorðssprengjuárásin í borginni á tveim dögum þrátt fyrir fullyrðingar íraskra og bandaríska yfirvalda í síðasta mánuði um að þau hefðu upprætt sveitir vígamanna í borginni. >

Hjálparstarf reynist erfitt

Hjálparsveitum hefur reynst erfitt að koma matvælum og öðrum hjálpargögnum til bágstaddra á hamfarasvæðum í Pakistan eftir jarðskjálftan sem reið þar yfir á laugardag. >

Ætla að sniðganga þingkosningar

Morgan Tsvangirai, leiðtogi helsta stjórnarandstöðuflokks Simbabve hefur boðað að flokkur hans muni sniðganga þingkosningar þar í landi sem halda á í næsta mánuði. >

Selskersviti kominn í gagnið

Landhelgisgæslan sinnir margvíslegum verkefnum og þeirra á meðal er viðhald vita fyrir Siglingastofnun. Vart varð við að Selskersviti væri hættur að lýsa og við athugun varðskipsmanna kom í ljós að ljósnemi í vitanum var bilaður. >

Sláturfé sett á gjöf

Tíðarfarið í haust gerir það að verkum að sunnlenskir bændur hafa neyðst til að setja sláturlömb sín á gjöf, en óvenju mörg lömb bíða slátrunar á Suðurlandinu. Bændur eru orðnir uggandi um hvort Sláturfélag Suðurlands á Selfossi nái að anna öllum hrútslömbunum fyrir 31. október, en eftir þann tíma er þeim ekki slátrað því þau verða orðin kynþroska. >

Sinnaskipti í flugvallarmáli?

Í drögum að ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins er gert ráð fyrir því að innanlandsflug verði flutt úr Vatnsmýrinni að lokinni hagkvæmni- og kostnaðarúttekt. Flutningi innanlandsflugsins til Keflavíkur er hins vegar hafnað. >

Tveir saksóknarar

Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannesarsonar, efast um það að það standist lög um meðferð opinbera mála, að sú staða geti komið upp í Baugsmálinu, að tvö mál verði rekin af tveimur saksóknurum. >

Hafró kannar áhrif flottrolls

Einar K Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segist ekki vilja banna sumarveiðar á loðnu, þrátt fyrir þær gagnrýnisraddir sem segja að sumarveiðin sé að ganga of nærri loðnustofninum. >

Sturla gagnrýnir ummæli FlugKef

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, gagnrýnir ummæli áhugamanna um flutning innanlandsflugsins til Keflavíkurflugvallar, og segir fullyrðingar þeirra um niðurstöður könnunnar rangar. Hann segir gagnrýni FlugKef hópsins vera útspil Suðurnesjamanna þar sem eiginhagsmunasemi sé á ferðinni. >

Prófsteinn á lýðræði og frið

Þjóðaratkvæðagreiðslan um drög að stjórnarskrá Íraks á laugardaginn getur ráðið úrslitum um hvort hægt verði að koma á friði og réttlæti í þessu stríðshrjáða landi. Þjóðfélagsleg sundrung gefur hins vegar ekki tilefni til mikillar bjartsýni.>

Sagður hafa stytt sér aldur

Ghazi Kanaan, innanríkisráðherra Sýrlands og yfirmaður leyniþjónustu landsins í Líbanon, fannst látinn á skrifstofu sinni í gær, að sögn sýrlenskra stjórnvalda. Tvær vikur eru þangað til skýrsla rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, liggur fyrir og því leikur grunur á að valdamenn í Damaskus hafi látið ráða hann af dögum til að forða sjálfum sér frá alþjóðlegum refsiaðgerðum. >

Þrjátíu biðu bana í Tal Afar

Þrjátíu verðandi hermenn biðu bana í sjálfsmorðsprengjuárás í borginni Tal Afar í Írak í gær. Sátt virðist vera að skapast á milli stjórnmálamanna um stjórnarskrárdrög landsins.>

Sakaður um mútuþægni

Innanríkisráðherra Sýrlands framdi sjálfsmorð í dag. Innanríkisráðherrann, Ghazi Kanaan var yfirmaður leyniþjónustu Sýrlands í Líbanon í tuttugu ár. >

Kínverjar á sporbraut

Geimflaug með tvo kínverska geimfara innanborðs var skotið á loft frá herstöð í Norðvestur-Kína í fyrrinótt. Þetta er í annað sinn í sögunni sem geimferðaáætlun Kínverja skilar mönnuðu fari út í geim. Fyrsta slíka geimskotið átti sér stað fyrir tveimur árum. >

Impregilo byggir Sikileyjarbrú

Ítölsk stjórnvöld gengu frá samningi við verktakafyrirtækið Impregilo í dag um byggingu brúar frá Sikiley til meginlands Ítalíu. Þetta er fyrsta eiginlega landtenging Sikileyjar við meginlandið en brúin verður lengsta hengibrú í heimi. >

Efnahagsumbætur lykilatriði

Viðræður um myndun samsteypustjórnar tveggja stærstu flokka Þýskalands munu fara út um þúfur takist ekki að samkomulag um víðtækar efnahagsumbætur. Þetta sagði samherji Angelu Merkel, leiðtoga kristilegra demókrata og væntanlegs kanslara, í gær. Gerhard Schröder, fráfarandi kanslari, staðfesti að hann yrði ekki í nýju ríkisstjórninni. >

Thatcher áttræð

Haldið verður upp á áttræðisafmæli Margaret Thatcher með miklu hófi í Lundúnum í dag. Á gestalistanum eru 680 manns, þar á meðal Elísabet Englandsdrottning og Tony Blair forsætisráðherra. >

Stúlku bjargað úr jarðskjálftarúst

Björgunarliðsmönnum tókst í gær að bjarga fimm ára gamalli stúlku úr rústum heimilis hennar, sem hrundi í jarðskjálftanum í Pakistan síðastliðinn laugardag. Stúlkan var með meðvitund og bað um vatn að drekka. >

Tónleikahaldið er tekjulind

Borgarleikhúsið hefur ákveðið að gefa ágóða einnar sýningar af Sölku Völku til MND-félagsins, en það er félag fólks með hreyfitaugahrörnun. Leikstjóri verksins, Edda Heiðrún Backman, er sem kunnugt er haldin MND hrörnunarsjúkdómnum. >

Dæmd fyrir vegabréfafals

Par á fertugsaldri frá Sri Lanka hefur verið dæmt í 45 daga fangelsi fyrir að hafa framvísað á Keflavíkurflugvelli fölsuðum vegabréfum á leið sinni vestur um haf. Með fólkinu í för var piltur sem talinn er vera 17 ára, einnig með fölsuð skilríki, en sökum aldurs sætti hann ekki ákæru. >

Bestu lögin koma á plötu

Sjónvarpið hefur falið fyrirtækinu BaseCamp að sjá um framkvæmd forkeppni Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva hér heima á næsta ári. Frestur til að skila inn lögum rennur út 18. næsta mánaðar, en skilyrði er að texti sé á íslensku, auk þess sem lagið má ekki vera lengra en þrjá mínútur. >

Breytt neysluhegðan skaðar veltu

Verulegar breytingar hafa orðið á því hvaða augum fólk lítur raftækin sín og hvort það lætur gera við þau ef þau bila. "Við sjáum stórfelldar breytingar, sérstaklega síðasta árið," segir Þórir Georgsson hjá Radíóverkstæðinu Sóni. >

Norrænn hópur vann

Árin 2009 til 2018 rísa á lóð Landspítalans við Hringbraut 85 þúsund fermetrar af nýbyggingum samkvæmt vinningstillögu um deiliskipulag. >

Bogi efast ekki um nýjar ákærur

Verður ákært að nýju í Baugsmálinu í þeim liðum sem Hæstiréttur hefur vísað frá? Bogi Nilsson ríkissaksóknari vonast til þess að niðurstaða liggi fyrir á þessu ári.  Hann telur engan vafa leika á að lögin leyfi að ný ákæra verði gefin út. Hann segir skiptingu málsins ekki brjóta gegn lögum um meðferð opinberra mála. >

Almenningur sleginn

Síminn hjá Stígamótum hefur verið rauðglóandi í dag og sem dæmi gáfu ónefnd hjón samtökunum fimmhundruð þúsund krónur í dag. Almenningur er sleginn yfir því kynferðisofbeldi sem sum börn búa við. Allt má þetta rekja til umfjöllunar um bókina Mynd af pabba sem kom út um síðustu helgi. >

Dularfull námsstefna

Grunur leikur á að enn einn svindlpósturinn sé í umferð hér á landi. Fjöldi fólks hefur undanfarna daga fengið boð um að sækja ókeypis námsstefnu á Grand Hótel í nóvember, en hótelstjórinn segir hana hins vegar ekki á dagskrá. Lögreglan telur að taka beri boðinu með fyrirvara. >

Hét Pakistönum langtímaaðstoð

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hét Pakistönum langtímaaðstoð vegna jarðskjálftans á laugardag sem kostaði tugþúsundir lífið, en Rice kom til Islamabad í dag. Hjálparstarf gengur erfiðlega á skjálftasvæðinu. >

Ódýrara til Alicante en Þórshafnar

Er eðlilegt að það sé dýrara að fljúga til Bíldudals frá Reykjavík en til Berlínar og Búdapest? Að það sé dýrara að keyra 700 kílómetra til Egilsstaða en fljúga þrjú þúsund og tvö hundruð kílómetra leið til Alicante? Íslendingar munu geta valið milli þrjátíu og fimm áfangastaða í beinu flugi næsta sumar og á þeim markaði geisar verðstríð. >

Svikarar bjóða milljónir

Fjársvikamenn um allan heim beita sífellt lævísari leiðum til að lokka fólk til að láta fé af hendi gegn loforði um ofsagróða. Bréf með tilboðum um háar fjárhæðir gegn því að viðkomandi gefi upp persónuupplýsingar og jafnvel kreditkortanúmer eru ein leiðin sem svikararnir nota. >

Fyrstu blindramerkingar í HÍ

Það getur verið erfitt að rata menntaveginn og ekki bætir úr skák ef erfitt er að rata um skólahúsið. Tvær stúlkur, önnur blind og hin sjónskert, hjálpuðu til við að merkja stofur Háskóla Íslands með blindraletri í dag. >

Landsfundur hefst á morgun

Framtíð Reykjavíkurflugvallar og málefni aldraðra verða líklega helstu átakamálin á þrítugasta og sjötta landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem hefst á morgun. Sem kunnugt er verður nýr formaður kosinn á fundinum sem og varaformaður. >

Margir bíða hælis

Tuttugu og átta útlendingar bíða þessa stundina á gistiheimili í Reykjanesbæ eftir svari um það hvort þeir fá hæli hér á landi. Margir hafa beðið mánuðum saman, sumir í á annað ár. >

Breytingar á stjórnarskrá

Að minnsta kosti þrjátíu týndu lífi þegar uppreisnarmenn gerður sjálfsmorðsárás í norðurhluta Íraks í morgun. Þetta gerðist skömmu áður en írakska þingið kom saman í Bagdad í dag til að gera breytingar á stjórnarskrá landsins. >

Uppbygging LHS

Norænn hópur skipaður fimm arkitekta- og verkfræðistofum mun skipuleggja uppbyggingu Landspítala-háskólasjúkrahúss við Hringbraut, sem hefst árið 2008. Hópurinn sigraði í samkeppni um deiliskipulag á svæðinu en tillaga hans var heildstæðari en aðrar sem bárust að mati dómnefndar. >

Tilnefning til Glerlykilsins

Skáldsagan Svartur á leik eftir Stefán Mána hefur verið valin í samkeppnina um Glerlykilinn. Glerlykillinn er veittur fyrir bestu norrænu glæpasöguna en verðlaunin verða veitt í maí á næsta ári. Hið íslenska glæpafélag valdi bók Stefáns Mána sem framlag Íslendinga.>

Að rætast úr starfsmannamálum

Mörg fyrirtæki hafa ekki farið varhluta af því að erfiðara hefur verið að fá starfsfólk í vinnu en fyrri ár. Þannig segir rekstarstjóri verslunarkeðju á höfuðborgarsvæðinu ástandið ekki hafa verið eins slæmt síðustu fjögur eða fimm árin. >

Kjarasamningar samþykktir

Kjarasamningar sem forsvarsmenn Starfsmannafélags Akraness og launanefndar sveitafélaganna skrifuðu undir síðastliðinn laugardag var naumlega samþykktur af félagsmönnum í gærkvöldi. >

Meira af listum og menningu

Krsitín Loftsdóttir hélt í vikunni fyrirlestur í Reykjavíkur-akademíunni þar sem hún fjallaði um þá ímynd Afríku í samtímanum. Hún bjó í tvö ár í Níger þar sem hún aflaði sér gagna fyrir doktorsverkefni sitt.>

Verkfalli aflýst

Verkfalli Stéttafélags Akranes hefur verið aflýst, kjarasamningurinn var samþykktur með naumum mun. Atkvæðagreiðsla fór fram fyrr í kvöld um samning Stéttafélags Akranes og Launanefndar sveitafélaganna. >

Smalað á fund Framsóknar

Yfir hundrað nýir framsóknarmenn hafa nýverið skráð sig í Framsóknarfélagið Reykjavík suður fyrir aðalfund í kvöld. Flestir eru sagðir stuðningsmenn Björns Inga Hrafnssonar. Talið er að Björn Ingi muni sækjast eftir fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. >

Ákæruvaldið ekki tilraunstofa

Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann gagnrýnir ákæruvaldið harðlega og segir dóm Hæstaréttar fela í sér efnislega niðurstöðu. Yfirlýsingin birtist hér í heild sinni: "Eftir dóm Hæstaréttar í svonefndu „Baugsmáli“ sl. mánudag hafa talsmenn ákæruvaldsins sagt, að nauðsynlegt sé fyrir sakborninga að „efnisleg“ niðurstaða fáist í málinu.">

Vonin um að finna slasaða dvínar

Björgunaraðgerðir í Pakistan stóðu yfir í alla nótt en þrír dagar eru síðan jarðskjálfti upp á 7,6 á Richter reið yfir landið. Höfuðborg landsins, Islamabad, er svo gott sem rústir einar og eru menn vonlitlir um að finna mikið fleira fólk á lífi. Þó fundust kona og barn í gær í rústum eins hússins þar sem þau höfðu verið föst í yfir 60 klukkustundir.

Sjá næstu 50 fréttir