Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnarerindrekar myrtir í Írak Al Kaída samtökin í Írak segjast hafa myrt tvo alsírska stjórnarerindreka, sem rænt var fyrir nokkrum dögum. Fullyrðing um þetta var birt á vefsíðu samtakanna, í dag. 27.7.2005 00:01
Aukning lyfjaútgjalda hjá TR Lyfjaútgjöld Tryggingastofnunar námu tæplega 6,5 milljörðum króna á síðasta ári. Útgjöldin jukust um 8,1% milli ára sem fyrst og fremst má rekja til aukinnar lyfjanotkunar, að því er fram kemur í nýrri kostnaðargreiningu vegna lyfjaútgjalda sem lyfjadeild TR hefur tekið saman. Lyfjanotkun jókst um 5,5% milli ára. 27.7.2005 00:01
Aukin löggæsla um helgina Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að auka löggæslu um verslunarmannahelgina til þess að styrkja lögregluumdæmin við umferðareftirlit, almenna löggæslu og fíkniefnalöggæslu. Í öllum eða flestum umdæmum verður aukinn viðbúnaður af hálfu lögreglunnar og þá sérstaklega þar sem útisamkomur verða. 27.7.2005 00:01
Einn sprengjumanna sagður í haldi Breska lögreglan réðst til inngöngu í hús í Birmingham fyrir dögun í gærmorgun og beittu rafbyssu til að yfirbuga mann sem að sögn vitnis og fjölmiðla er sagður vera Yasin Hassan Omar, einn þeirra fjögurra sem reyndu að sprengja sprengjur í jarðlestum og strætisvagni í Lundúnum fyrir viku. 27.7.2005 00:01
Sagði íslam ekki siðmenningu Ummæli ráðherra í ítölsku ríkisstjórninni, þess efnis að íslam væri ekki siðmenning, hefur valdið mikilli hneykslan á Ítalíu. Hafa talsmenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka fordæmt ummælin og lagt áherslu á að samræður við hófsama múslima séu lykillinn að baráttunni gegn hryðjuverkum. 27.7.2005 00:01
Norður-Kóreumenn setja skilyrði Fulltrúar Norður-Kóreustjórnar sögðu í gær að hún myndi þá aðeins hætta við kjarnavopnaáætlun sína ef sú ógn sem hún telur Kóreuskaganum stafa af bandarískum kjarnavopnum er fjarlægð og samskipti við Bandaríkjastjórn færð í eðlilegt horf. Frá þessu greindi suður-kóreska fréttastofan Yonhap. 27.7.2005 00:01
Átti ekki að fá gild skírteini Flugvélin sem hrapaði í Skerjafirði um verslunarmannahelgina árið 2000 átti ekki að fá skráningar- og lofthæfisskírteini í því ástandi sem hún var, samkvæmt skýrslu sérskipaðrar rannsóknarnefndar undir forystu Sigurðar Líndals lagaprófessors, sem samgönguráðherra skipaði. 27.7.2005 00:01
Jeppi valt á Miklubraut Jeppi valt eftir árekstur við fólksbíl á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar laust eftir klukkan átta í gærmorgun. 27.7.2005 00:01
Karlar gegn nauðgunum "Tilgangur átaksins er að fá karla til þess að velta fyrir sér eðli og alvarleika nauðgana," segir Arnar Gíslason, meðlimur í Karlahóp Femínistafélagsins. Hópurinn ýtti átakinu "Karlmenn segja nei við nauðgunum" úr vör í gær. 27.7.2005 00:01
Mótmælendur ósáttir Frestur sem mótmælendur fengu hjá Prestsetrasjóði til að rýma tjaldsvæðið í landi Valþjófsstaðar á Kárahnjúkasvæðinu rann út á hádegi. Tiltækt lögreglulið á svæðinu fékk liðsauka níu sérsveitarmanna sem voru sendir austur af ríkislögreglustjóra í gærkvöld. Ekki voru þó nein átök á svæðinu. 27.7.2005 00:01
Í varðhaldi fram á haust Kona á þrítugsaldri sem segist vera frá Líberíu en framvísaði fölsuðu bresku vegabréfi við komu til landsins í maí hefur verið dæmd í gæsluvarðhald til 14. október. 27.7.2005 00:01
Impregilo kærir Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo hefur sent Sýslumanninum á Seyðisfirði ákæru vegna eignaspjalla af völdum mótmælenda Kárahnjúkavirkjunar að sögn Ómars R. Valdimarssonar, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins. 27.7.2005 00:01
Handtökur í Bretlandi Breska lögreglan handtók í morgun einn fjórmenninganna sem gerðu misheppnaða árás á London síðasta fimmtudag. Sex aðrir hafa verið handteknir í tengslum við árásirnar síðan í gærkvöld. 27.7.2005 00:01
Enduskoðun rekstrar varnarstöðvar Ef flugherinn tekur alfarið við rekstri varnarstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli er margt sem bendir til þess að hermönnum á stöðinni fækki um allt að helming. Talsmaður Bandaríkjahers segir að herinn sé ekki á förum frá Íslandi. 27.7.2005 00:01
Fækka hermönnum næsta vor Forsætisráðherra Íraks vill að Bandaríkjamenn hefji fljótlega brottfluttning herafla síns frá Írak. Æðsti hershöfðingi Bandaríkjamanna segir raunhæft að byrja að fækka hermönnum næsta vor. Ibrahim Al-Jafaari, forsætisráðherra Íraks fundaði með Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Baghdad í morgun. 27.7.2005 00:01
Kvikmyndun á Reykjanesi Það er mikil öryggisgæsla í kringum þau svæði þar sem unnið er að kvikmyndinni á Suðurnesjum og ekki fæst leyfi til að fara og skoða herlegheitin. Í rammahúsinu í Reykjanesbæ er unnið að gerð leikmyndar fyrir kvikmyndina, auk þess sem verið er að gera við herbíla og önnur stríðstól sem notuð verða. 27.7.2005 00:01
Ekk vitað hvað datt af Discovery Tvö stykki brotnuðu af geimferjunni Discovery þegar henni var skotið á loft í Flórída í gær. Atvikinu svipar til þess sem olli því að geimferjan Columbía fórst fyrir um tveimur og hálfu ári. Discovery var loks skotið á loft í gær, eftir hálfsmánaðar töf vegna bilunar í mæli í eldsneytistanki. Þangað til í morgun var talið að allt hefði gengið snurðulaust fyrir sig. 27.7.2005 00:01
Bílstjórar ekki sammála Mótmælaaðgerðir atvinnubílstjóra eru vafasamar og stuðla síður en svo að jafnrétti. Þetta segir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann segir ríkið ekki græða á nýja olíugjaldinu. 27.7.2005 00:01
Störf dómara Saddams í hættu Sautján af starfsmönnum réttarins, sem undirbýr nú réttarhöldin yfir Saddam Hussein, gætu misst störf sín þar sem þeir voru félagsmenn í Baath-flokki Saddams Hussein. Íraska þingið greiðir atkvæði um þetta um helgina, en einhver andstaða er þó við atkvæðagreiðsluna innan þingsins. 27.7.2005 00:01
Franskir barnaníðingar Franskur dómstóll sakfelldi í gær 62 einstaklinga fyrir þátttöku þeirra í hring þar sem börn voru með kerfisbundnum hætti misnotuð, þeim nauðgað og sett í vændi. Málið er það stærsta af þessu tagi sem hefur komið upp í Frakklandi. Tveir sakborninganna voru dæmdir í 28 ára fangelsi. 27.7.2005 00:01
Notkun gefðlyfja eykst enn Kostnaður Tryggingastofnunar vegna tauga- og geðlyfja jókst um 212 milljónir á síðasta ári og um 357 milljónir frá árinu 2002, en það er alls 23 prósenta hækkun á tveimur árum. Lyfjaútgjöldin jukust alls um 8,1 prósent eða um 481 milljón á síðasta ári meðan notkunin jókst um 5,5 prósent. 27.7.2005 00:01
Nýjar tjaldbúðir settar upp Um tuttugu lögregluþjónar voru staddir á Kárahnjúkum um hádegisbilið í gær en þá rann út fresturinn sem mótmælendur höfðu til þess að ganga frá og taka saman föggur sínar að sögn Helga Jenssonar, fulltrúa sýslumannsins á Seyðisfirði. Síðasta tjaldið féll hins vegar ekki fyrr en síðdegis án þess að til átaka kæmi milli mótmælenda og lögreglu. 27.7.2005 00:01
Þúsund manns komin til Eyja Verslunarmannahelgin er að bresta á. Víða um land verða skipulagðar hátíðir fyrir ferðalanga. Undirbúningur er vel á veg kominn víðast hvar og hefur veðurblíða auðveldað mótshöldurum lífið. Þegar er orðið uppselt í Herjólf nema í næturferðir. Húkkaraballið svokallaða hefst í Vestmannaeyjum í kvöld. Þegar eru um þúsund manns komin til Vestmannaeyja. 27.7.2005 00:01
15 milljarða aukning tekjuskatts Tekjur ríkisins vegna tekjuskatts einstaklinga hækka úr 130 milljörðum króna í 145 milljarða milli ára. Ríkisskattstjóri segir hækkunina einkum skýrast af mikilli grósku í þjóðlífinu. Laun hafi hækkað og þar með aukist tekjur ríkisins vegna tekjuskatts. 27.7.2005 00:01
2300 umsóknir um lóðir á Vatnsenda Bæjarráð Kópavogs úthlutar lóðum á Vatnsenda á fimmtudag en rúmlega 2300 umsóknir bárust. Þeir umsækjendur sem ekki fá lóð núna fá líklega annað tækifæri fljótlega því Kópavogsbær stefnir að því að úthluta rúmlega þrjátíu lóðum til viðbótar á Vatnsenda. 26.7.2005 00:01
Brunavörnum víða ábótavant Brunavörnum á hótelum og veitingastöðum er mjög víða ábótavant. Þetta segir Bjarni Árnason á Hóteli Óðinsvéum en Samtök ferðaþjónustunnar og öryggisfyrirtækið Meton hafa gefið út forvarnarit til að bæta þar úr. 26.7.2005 00:01
Átök við Kárahnjúka í nótt Til átaka kom á milli lögreglumanna og mótmælenda við Kárahnjúka í nótt og voru tveir útlendingar handteknir og færðir í fangageymslur á Egilsstöðum. Mótmælendur reyndu að tefja fyrir farartækjum verktaka og eftir því sem fréttastofan kemst næst unnu þeir skemmdarverk á farartæki. 26.7.2005 00:01
Mótmæla stefnu lögreglu Hópur mótmælenda gekk um Lundúnaborg í gær og hrópaði að lögreglunni að sú stefna hennar, að skjóta til að drepa, væri röng. Stefna lögreglunnar varð Brasilíumanninum Jean Charles de Menezes að bana en hann hljóp á brott þegar lögreglan kallaði á eftir honum að stoppa á Stockwell-lestarstöðinni í London á föstudag. 26.7.2005 00:01
Skarst illa á hálsi Til átaka kom um borð í skemmtiferðaskipinu Saga Rose í gærkvöld þar sem skipið var á siglingu djúpt norður af landinu og óskaði skipstjóri eftir aðstoð þyrlu til að sækja slasaðan mann um borð. Hafði sá skorist illa á hálsi og misst tvo lítra af blóði. 26.7.2005 00:01
17 ný tilfelli af sjúkdóminum Alls hafa nú 19 látist og 17 ný tilfelli greinst af dularfulla sjúkdóminum sem herjað hefur á bændur í suðurhluta Kína að undanförnu. Alls hafa 80 verið greindir með sjúkdóminn, sem hefur þó ekki fengið nafn, en allir virðast bændurnir hafa slátrað veikum svínum á undanförnum vikum. 26.7.2005 00:01
Íkveikjutilraun á Egilsstöðum Reynt var að kveikja í einbýlishúsi á Egilsstöðum í gær og er talið að barn eða börn hafi verið að verki. Nágranni við húsið sá hvar mikill eldur logaði við útidyr hússins og náði að slökkva hann með handslökkvitæki áður en slökkvilið kom á vettvang. 26.7.2005 00:01
Morðingi Gogh í lífstíðarfangelsi Lífstíðardómur var í morgun kveðinn upp yfir Mohammed Bouyeri sem játaði að hafa drepið hollenska kvikmyndagerðarmanninn Theo van Gogh. Hann kvaðst myndu gera slíkt hið sama á ný, hefði hann til þess tækifæri 26.7.2005 00:01
Felldu nýgerðan kjarasamning Flugumferðarstjórar felldu nýgerðan kjarasamning við ríkið í atkvæðagreiðslu. Fjörutíu og níu voru honum andvígir en fjörutíu og tveir fylgjandi. Ekki liggur fyrir hvort flugumferðarstjórar ætli að undirbúa verkfallsaðgerðir í ljósi þessara úrslita. 26.7.2005 00:01
Hinir raunverulegu hryðjuverkamenn Hundruð ættingja og vina mannsins sem lögreglan í Lundúnum skaut gengu um götur heimabæjar hans í Brasilíu í gær og mótmæltu afsökunarbeiðni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, sem þeir sögðu ekki vera nógu góða. Á spjöldum sem fólkið hélt á lofti stóð að breska lögreglan væru hinir raunverulegu hryðjuverkamenn. 26.7.2005 00:01
Álagningarseðlar sendir út Skattstjórar landsins leggja fram álagningarskrár á föstudag og sama dag verða 230 þúsund álagningarseðlar vegna síðasta árs sendir út. Mikill meirihluti framteljenda töldu fram rafrænt og geta þeir frá og með morgundeginum leitað upplýsinga um sína álagningu með rafrænum hætti. 26.7.2005 00:01
Sharm el-Sheik: Ekki Pakistanar Pakistanar voru ekki viðriðnir hryðjuverkin í Sharm el-Sheik. Þetta sögðu talsmenn egypskra yfirvalda í morgun og vísuðu þar með á bug fregnum um að hópur pakistanstra hryðjuverkamanna tengdist árásunum sem kostuðu nærri því níutíu manns lífið um helgina. 26.7.2005 00:01
Discovery skal í loftið Geimferjunni Discovery verður skotið á loft um hálfþrjú leytið í dag þó ekki hafi enn tekist að greina hvers vegna vandamál kom upp varðandi eldsneytistank þegar skjóta átti ferjunni á loft þann 13. júlí. Skynjari í eldsneytistanki bilaði þegar geimfararnir voru að ganga um borð og var þá hætt við geimskotið. 26.7.2005 00:01
2 handteknir vegna Madrídarárása Franska lögreglan handtók í morgun tvo menn sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkaárásunum í Madríd fyrir rúmu ári. Innanríkisleyniþjónustan handtók feðga í Norður-Frakklandi, skammt frá landamærunum að Belgíu, og voru þeir fluttir til Belgíu til yfirheyrslu. 26.7.2005 00:01
Lögreglumaður drap 2 og særði 4 Tveir féllu og fjórir eru sárir eftir að ríflega sextugur lögreglumaður á eftirlaunum gekk berserksgang í bænum Stade í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi í gærkvöldi. Svo virðist sem harkalegt rifrildi milli mannsins og unnustu hans á miðri götu hafi vakið athygli vegfarenda sem reyndu að skakka leikinn. Þá dró maðurinn upp byssu og skaut á fólkið. 26.7.2005 00:01
Tekinn á 208 km hraða Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann á Reykjanesbraut í nótt eftir að bíll hans hafði mælst á tvö hundruð og átta kílómetra hraða og próflausir guttar stútuðu meðal annars brunahana í Þorlákshöfn svo upp kom gosbrunnur. 26.7.2005 00:01
Engar skemmdir á brúnni Vatnsflóðið í Jöklu náði að seytla yfir brúargólfið yfir ána í gærkvöldi líkt og í fyrrakvöld og var hún lokuð allri umferð. Engar skemmdir urðu á brúnni og nú er spáð heldur kólnandi veðri og er frekari hætta talin vera liðin hjá. 26.7.2005 00:01
Bretum hugsanlega vísað úr landi Sýslumannsembættið á Seyðisfirði og Útlendingastofnun eru að kanna grundvöll þess að vísa þremur Bretum úr landi eftir að þeir tóku þátt í átökum við lögreglu inni á bannsvæði við Kárahnjúkavirkjun í nótt. 26.7.2005 00:01
Líkur á stórslysi 1/100 Eftir um tvo tíma tekur geimskutlan Discovery á loft, að öllu óbreyttu. Það verður fyrsta ferð geimskutlu frá því að skutlan Columbia splundraðist í aðflugi fyrir tveimur árum. Líkurnar á stórslysi af því tagi í þetta sinn eru einn á móti hundrað. 26.7.2005 00:01
8 ára drengur reyndi að kveikja í Talið er fullvíst að tiltekinn átta ára drengur hafi reynt að kveikja í einbýlishúsi á Egilsstöðum í gær og eru nú viðeigandi aðilar að ræða við forráðamenn hans, enda er hann að sjálfsögðu ekki sakhæfur. Nágranni við húsið sá hvar mikill eldur logaði við útidyr hússins og náði að slökkva hann með handslökkvitæki, áður en slökkvilið kom á vettvang. 26.7.2005 00:01
Skorið úr um hæð Hvannadalshnjúks Í dag verður byrjað að mæla hæð Hvannadalshnjúks með afgerandi hætti en síðasta opinbera mæling er meira en hundrað ára gömul. Tafir urðu á að flytja búnaðinn upp á jökul í morgun þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar var að sinna sjúkraflugi í nótt og svo var skýjaslæða lögst á jökulinn undir hádegi. 26.7.2005 00:01