Fleiri fréttir

Leyfi mótmælenda afturkallað

Prestseturssjóður hefur afturkallað leyfi mótmælenda við Kárahnjúka til að hafa lengur tjaldbúðir en sjóðurinn hefur yfirráð með landinu á þeim slóðum. Er þetta gert að beiðni Sýslumanns á Seyðisfirði í ljósi þess að mótmælendurnir hafi ekki farið fram með friðsamlegum hætti.

Fjölmennt lið gerði húsleit

Átta manna lögreglulið frá Hvolsvelli og Selfossi og tveir úr sérsveit Ríkislögreglustjóra, ásamt fíkniefnahundi, gerðu húsleit á bæ í Rangárþingi ytra í gærkvöldi vegna gruns um fikniefnamisferli.Tveir íbúanna voru heima og voru þeir báðir handteknir eftir að fíkniefni af ýmsum gerðum fundust, ásamt bruggtækjum og slatta af landa. Auk þess var kannabisrækt í gangi.

Ítalir óttast hryðjuverk

Mikill meirihluti ítölsku þjóðarinnar á von á að hryðjuverkaárás verði gerð í landinu í nánustu framtíð. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var í kjölfar hryðjuverkaárásanna í London á dögunum.

Veitingasala ekki niðurgreidd

"Reykjavíkurborg hefur aldrei niðurgreitt veitingahúsarekstur í Viðey," segir Steinar Davíðsson, sem rak veitingasölu í Viðeyjarstofu frá 1997 þar til í vor. "Við borguðum árlega þrjár til fimm milljónir í húsaleigu til Reykjavíkurborgar og fengum ekki krónu þaðan inn í reksturinn, hvorki með beinum né óbeinum hætti."

Vargur lifir víða óáreittur

"Ég hef verið að fá fleiri minka í vor en dæmi eru um án þess að hafa aukið sóknina," segir Guðbrandur Sverrisson, sem eyðir dýrum fyrir þrjú sveitarfélög á Vestfjörðum. Hann segist lengst af hafa verið að fá um hundrað dýr á ári en hafi fengið 170 í fyrra og ef fram heldur sem horfir nær hann yfir tvö hundruð dýrum í ár.

Yngsta eyja í heimi

Fjölmargir fræðingar telja lífríki á Surtsey einstakt rannsóknarefni vegna sérstöðu eyjarinnar og nú fyrir skemmstu lauk leiðangri lífræðinga á vegum Náttúrufræðistofnunar í eyjunni. En hvað er svona sérstakt við þessa eyju?</font />

Flugherinn taki yfir varnarstöðina

Bandaríski sjóherinn og flugherinn eiga í viðræðum um að yfirráð yfir varnarstöðinni á Miðnesheiði verði færð frá sjóhernum til flughersins. Chris Usselman hjá varnarliðinu staðfesti þetta síðdegis.

Enginn strætó í Fossvogsspítala

"Nú er búið að slípa þá fáu hnökra sem komu upp í gær," segir Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri Strætó, nú þegar nokkur reynsla er komin á nýja leiðarkerfið. Fjölmargir hafa haft samband við Fréttablaðið og lýst skoðunum sínum á því og sýnist sitt hverjum.

Surtsey ferðamannaperla

Deilt hefur verið um það hvort hleypa eigi ferðamönnum til Surtseyjar en Steingrímur Hermannsson, formaður Surtseyjarfélagsins, er því andvígur. Hjálmar Árnason þingmaður hefur látið þetta mál til sín taka.

Samningur undirritaður við Breta

Forstjóri Landhelgisgæslunnar, Georg Lárusson, skrifaði nýlega undir endurnýjun á tvíhliða samningi við Bresku sjómælingarnar (UKHO). Þar var m.a. bætt við samþykkt um að Ísland gangi til liðs við IC-ENC (International Centre for ENCs) og að IC-ENC sjái um dreifingu á rafrænum sjókortum fyrir Sjómælingar Íslands sem eru deild innan Landhelgisgæslunnar.

Enginn kannast við laxinn

Gunnar Steinn Gunnarsson framkvæmdastjóri laxeldisfyrirtækisins Salar Islandica á Djúpavogi segir ólíklegt að lax hafi sloppið úr kvíum fyrirtækisins í Berufirði. "Við erum með fjórtán kvíar og við könnuðum ástand þeirra um daginn. Allt reyndist vera í stakasta lagi," segir Gunnar Steinn.

Hafa ekki enn séð skýrsluna

Samgönguráðuneytið lofaði aðstandendum fórnarlamba flugslyssins í Skerjafirði að þeir fengju að veita formlega umsögn um skýrslu sérskipaðrar rannsóknarnefndar um slysið. Skýrslan verður kynnt á föstudag en aðstandendur hafa enn ekki séð skýrsluna.

Mikill taugatitringur fyrir skotið

Mikill taugatitringur var á Canaveral-höfða á Flórída í dag þegar niðurtalning fyrir flugtak geimskutlunnar Discovery hófst. Á þriðja tímanum síðdegis átti hún að taka á loft í fyrsta sinn frá því að geimskutlan Columbia fórst 2003 en líkurnar á stórslysi nú eru taldar einn á móti hundrað.

Morðingi van Gogh dæmdur

Dómstóll í Amsterdam dæmdi í gær Mohammed Bouyeri, sem játaði á sig morðið á kvikmyndagerðarmanninum Theo van Gogh, í lífstíðarfangelsi - það er hámarksrefsingu. Hið hrottalega morð á van Gogh, sem var framið um hábjartan dag í byrjun nóvember, olli mikilli reiði í Hollandi og jók áhyggjur af "heimaöldum" íslömskum öfgamönnum.

Blair segir Breta hvergi hvika

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að bresk stjórnvöld myndu ekki "hvika svo mikið sem þumlung" fyrir hryðjuverkamönnum. Lögregla upplýstu að tveir mannanna sem eftirlýstir eru fyrir misheppnuðu tilræðin í síðustu viku séu löglegir innflytjendur sem fluttu á barnsaldri til Bretlands frá Sómalíu og Erítreu.

Einn árásarmanna var Egypti

Rannsóknarlögregla í Egyptalandi hefur borið kennsl á einn sjálfsmorðssprengjumannanna sem frömdu hryðjuverkaárásina í ferðamannabænum Sharm-el-Sheik við Rauðahaf í lok síðustu viku. Kvað hann vera Egypti að nafni Youssef Badran sem hafi verið í slagtogi við íslamskan öfgahóp. Egypska lögreglan tók í gær tugi manna til viðbótar til yfirheyrslu.

Fólksfjölgun í Reykjanesbæ

Íbúum í Reykjanesbæ hefur fjölgað um meira en 2,3 prósent frá áramótum og er íbúafjöldi bæjarins kominn yfir 11.200 manns. Þetta er þrátt fyrir að nýtt Tjarnarhverfi sé enn í byggingu og þangað séu fáir fluttir inn.

Ellefu sóttu um

Ellefu sóttu um stöðu forstjóra ÁTVR en umsóknarfrestur rann út á mánudag. Höskuldur Jónsson núverandi forstjóri lætur af störfum 1. september næstkomandi.

Ný flugstöð á Bakka

Ný flugstöð var í gær vígð við flugvöllinn á Bakka að viðstöddum samgönguráðherra og flugmálastjóra. Nýja flugstöðin er 250 fermetrar og leysir af hólmi fimm sinnum minni flugstöð sem byggð var árið 1997.

Skorinn á háls í skemmtiferðaskipi

TF-LIF þyrla Landhelgisgæslunnar var í fyrrinótt kölluð að skemmtiferðaskipinu Sea Rose sem var á siglingu norður af landinu. Þyrlan var kölluð út til að sækja mann sem misst hafði mikið blóð eftir að hafa verið skorinn á háls í ryskingum um borð.

Verður að efna ólöglega samninga?

Verður að efna ólöglega samninga og sleppa þeir sem þá gera við öll viðurlög ef þeim tekst að fela brotið nógu lengi? Að því spyr Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður og vísar í niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins í máli fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Sá fær tugi milljóna í vasann, þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið hafi úrskurðað samning þess efnis ólögmætan.

Allt á suðupunkti við Kárahnjúka

Prestsetrasjóður hefur afturkallað leyfi fyrir tjaldbúðum mótmælenda við Kárahnjúka. Þrír voru handteknir í nótt og eru þeir nú í yfirheyrslum. Útlendingastofnun getur ekki vísað fólkinu úr landi eins og sýslumannsembættið á Seyðisfirði fór fram á að yrði kannað.

Mótmælendur reknir úr tjaldbúðum

Mótmælendum við Kárahnjúka hefur verið gert að yfirgefa tjaldbúðir sínar fyrir hádegi í kjölfar harðra átaka við lögreglu í fyrrinótt. Mótmælendur eru mjög ósáttir við framgöngu lögreglu í átökunum þegar þrír Bretar voru handteknir. Ekki eru lagaheimildir fyrir því að vísa mönnunum þremur úr landi.

Tengsl milli hryðjuverka og Íraks

Kokhraustur Tony Blair blæs á kannanir sem sýna að almenningur telur tengsl á milli hryðjuverka í borginni og stríðsins í Írak. Rannsókn á árásunum heldur áfram og virðist lögreglan á hælum tilræðismannanna.

Mótmælendur verða kærðir

Þrír Bretar voru handteknir við Kárahnjúka eftir að átök brutust út milli mótmælenda og lögregluþjóna í fyrrinótt. Mótmælendurnir hlekkjuðu sig við vinnuvélar, unnu spjöll á bifreiðum og veittust að lögreglu að sögn sýslufulltrúa á Egilsstöðum.

Meirihlutinn tapar fylgi

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn á Akureyri tapa umtalsverðu fylgi samkvæmt könnun IMG Gallup en halda þó meirihlutanum í bæjarstjórn. Listi fólksins á Akureyri missir báða bæjarfulltrúa sína en Samfylkingin og Vinstri grænir sækja verulega á.

Klikkaður í rúminu eða nauðgari?

Ertu klikkaður í rúminu eða bara ósköp venjulegur nauðgari? Farin er af stað herferð gegn nauðgunum vegna verslunarmannahelgarinnar sem óðum nálgast en aldrei er of varlega farið.

Dregur úr innbrotum á Nesinu

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni í Reykjavík hefur dregið verulega úr innbrotum á Seltjarnarnesi undanfarið, hvort sem litið er til fyrri ára eða hverfa í Reykjavík.

Hæfustu lifa af í Surtsey

Fjölmargar lífverur hafa numið land eða skotið upp kolli í Surtsey frá því eyjan reis úr hafi fyrir fjörutíu og einu ári. Sumar dafna vel meðan aðrar verða að hörfa og enn aðrar deyja drottni sínum.</font />

Dularfullur sjúkdómur í Kína

Að minnsta kosti nítján manns hafa nú látist úr dularfullum sjúkdómi í Kína og yfir fjörutíu eru veikir. Allir hinna látnu eru bændur og koma úr tugum þorpa í suðurhluta landsins.

Brúnni yfir Jöklu lokað aftur

Brúnni yfir Jöklu við Kárahnjúka var aftur lokað í gærkvöld vegna vatnavaxta í ánni. Fréttastofunni er ekki kunnugt um hvort vatnið flæddi yfir hana en síðdegis í gær var útlit fyrir að svo yrði þar sem vatnið var orðið talsvert meira en á sama tíma í fyrradag.

Flóðbylgjuviðvörun afturkölluð

Yfirvöld í Indónesíu og á Taílandi segja enga hættu vera á flóðbylgju og hafa afturkallað flóðbylgjuviðvörun eftir að jarðskjálfti upp á 7,2 á Richter skók Nicobar-eyjurnar í Indlandshafi í gærkvöld. Mikil skelfing greip um sig á eyjunum en engar fréttir hafa þó borist af mannfalli.

Enn ein árásin í Írak

Að minnsta kosti fimm féllu og tólf særðust er sjálfsmorðssprengjuárás var gerð í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Árásarmaðurinn sprengdi upp litla rútu nálægt hótelinu Sadeer en allir þeir sem létust voru írakskir öryggisverðir sem eru taldir hafa unnið hjá hótelinu.

Þyrlan sótti veikan sjómann

Sjómaður veiktist skyndilega um borð í togaranum Mánabergi þar sem skipið var að veiðum djúpt út af Vestfjörðum í gær. Talið var að maðurinn þyrfti hið bráðasta að komast undir læknishendur og því var óskað eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar kæmi til móts við skipið og sækti sjómanninn.

Mótmæltu hryðjuverkaárásunum

Þúsundir manna, bæði heimamenn og ferðamenn, söfnuðust saman á ferðamannastaðnum Sharm el-Sheik í Egyptalandi í gær til að mótmæla hryðjuverkaárásunum á laugardag sem urðu 88 manns að bana og særðu yfir 120.

Ölvaður ökumaður velti bíl sínum

Bíll valt út af Reykjanesbraut laust fyrir kukkan eitt í nótt og reyndist ökumaðurinn ölvaður. Hann var einn í bílnum og meiddist lítilsháttar en bíllinn er stórskemmdur. Við leit í bílnum fundu lögreglumenn lítilræði af fíkniefnum.

Discovery skotið á loft á morgun

NASA hefur ákveðið að Discovery verði skotið á loft á morgun en förin verður sú fyrsta í tvö og hálft ár eða frá því Columbia fórst þegar hún undirbjó lendingu á jörðinni eftir tveggja vikna för úti í geimnum árið 2003. För Discovery er heitið að Alþjóðlegu geimstöðinni og mun ferðin taka tólf daga. 

Áætlunarflug til og frá Grænlandi

Flugfélag Íslands hefur náð samkomulagi við heimastjórnina í Grænlandi um áætlunarflug á milli Íslands og Grænlands. Samningurinn er til fimm ára og þarf flugfélagið að kaupa tvær flugvélar til verksins. Þær verða af gerðinni Dash-8 og taka 39 farþega.

Lestarstöð í New York rýmd

Lestarstöð í Pennsylvaníu í New York í Bandaríkjunum var lokuð og stöðin rýmd í um klukkustund í gær eftir að pakka var hent í starfsmann stöðvarinnar og sagt að í væri sprengja.

Verkamenn til leigu

Nokkur mál erlendra verkamanna hér á landi hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu og atvinnuveitendur þá verið sakaðir um að borga þeim ómannsæmandi laun og veita óviðunandi aðbúnað. Í flestum tilfellum hafa starfsmennirinir verið á svokölluðum þjónustusamningum.</font />

Mæta öllum skilyrðum súnníta

Írakska þingið hefur mætt öllum skilyrðum súnnítaleiðtoga fyrir þátttöku í stjórnarskrárnefnd Íraks. Súnnítar hafa neitað að taka þátt í starfi nefndarinnar eftir að þeir ruku út af fundi hennar í síðustu viku.

Frelsi eða lok velferðarkerfisins

Frá því framkvæmdir hófust við Kárahnjúka hafa málefni erlendra starfsmanna hér á landi mikið verið til umræðu enda ýmiss átök gefið tilefni til. Mál af þessu tagi einskorðast þó ekki við Kárahnjúka því fyrir skemmstu kærði Verkalýðsfélag Akraness atvinnurekanda í bænum sem var með fimm pólska verkamenn í vinnu.

Dulbúnir samningar

Mikið hefur verið deilt um þjónustusamninga starfsmannaleiga hér á landi og hafa tvö slík mál farið fyrir dómstóla og í síðustu viku var annað slíkt mál kært til sýslumanns á Akranesi. Margir hafa gangrýnt íslensk stjórvöld fyrir að vera of sein og treg til að veita erlendu verkafólki atvinnu- og dvalarleyfi.

56 létust í rútuslysi í Nígeríu

Fimmtíu og sex manns létu lífið og sex slösuðust þegar rúta ók út í á í Nígeríu í gær. Einungis náðist að bjarga sex manns úr rútunni en þeir voru allir fluttir á sjúkrahús með alvarleg meiðsl.

Sjá næstu 50 fréttir