Mótmælendur ósáttir 27. júlí 2005 00:01
Frestur sem mótmælendur fengu hjá Prestsetrasjóði til að rýma tjaldsvæðið í landi Valþjófsstaðar á Kárahnjúkasvæðinu rann út á hádegi. Tiltækt lögreglulið á svæðinu fékk liðsauka níu sérsveitarmanna sem voru sendir austur af ríkislögreglustjóra í gærkvöld. Ekki voru þó nein átök á svæðinu. Athygli vekur að sýslumaður skyldi biðja landeigendur um að rýma tjaldsvæðið en áður hefur komið fram að lögregla fékk aðstoð Landsvirkjunar og öryggisvarða Impregilo við að handtaka mótmælendur í fyrrinótt. Tveir erlendir karlmenn og ein kona, sem voru handtekin voru látin laus í gærkvöldi, en fyrr um kvöldið lá fyrir að Útlendingastofnun teldi ekki tilefni til að vísa fólkinu úr landi. Rúta flutti þá mótmælendur sem vildu fara af svæðinu en aðrir urðu eftir og ætluðu að tjalda annars staðar. Í yfirlýsingu mótmælenda kom fram að þau teldu sig hafa mætt hrottaskap af hálfu íslensku lögreglunnar með öryggi að yfirvarpi. Þau telja að brottreksturinn sé eingöngu afsökun fyrir árás. Þau sögðust ætla að pakka saman og halda áfram að mótmæla annars staðar í friði og spekt. Þrír landeigendur hafa boðið mótmælendum að tjalda. Meðal þeirra er Guðmundur Ármannsson bóndi á Vaði í Skriðdal en þar fengust þau svör að dyrunum yrði ekki lokað á pólitíska flóttamenn. Ásakanir um ofbeldi ganga á víxl og Impregilo hefur kært eignaspjöll og líkamsárás á einn yfirmanna sinna til sýslumannsins á Seyðisfirði. Benóný Ægisson sem samdi um afnot af landi Valþjófstaða fyrir hönd mótmælenda segir tjaldbúa hafa lofað að ganga vel um landið. Hann viti ekki til að það hafi verið svikið. Hann skrifaði harðort bréf í gærkvöld til Prestseturssjóðs og segir kirkjuna nú sýna sitt rétta andlit. Hann líkti framkomu Prestsetursjóðs við háttalag í lélegum Vestra og gefa þeim einungis 24 tíma til að yfirgefa svæðið. Honum fannst einnig að kirkjan hefði átt að bregðast öðruvísi við og hefðu átt að byrja að því að kynna sér afstöðu mótmælenda en ekki hlusta bara á sýslumann. Höskuldur Jónsson forstöðumaður Prestsetursjóðs segist hafa leyft mótmælendum að tjalda í góðri trú. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði hafi svo óskað eftir því að leyfið yrði afturkallað Margir telja aðkomu Prestsetrasjóðs óskiljanlega með öllu enda hafi tjaldbúar ekki brotið samninga við landeigendur. Hann sagði að of mikil átök hefðu verið á svæðinu. Hann sagðist jafnframt hafa orðið við óskum sýslumanns.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Margrét fær ekki að áfrýja dómnum til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Sjá meira