Fólksfjölgun í Reykjanesbæ 26. júlí 2005 00:01
Íbúum í Reykjanesbæ hefur fjölgað um meira en 2,3 prósent frá áramótum og er íbúafjöldi bæjarins kominn yfir 11.200 manns. Þetta er þrátt fyrir að nýtt Tjarnarhverfi sé enn í byggingu og þangað séu fáir fluttir inn. Þegar Tjarnarhverfið verður fullbyggt verða þar 550 nýjar íbúðir sem gera má ráð fyrir að hýsi í kringum 1500 manns. Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar segist vera undrandi á þessari fjölgun og vart átta sig á því í hverju fjölgunin liggur. Hann segir þetta vera athyglisverðan árangur ekki síst í því ljósi að nær enginn er fluttur inn í nýju íbúðirnar í Tjarnarhverfinu. Í nýja hverfinu er nú unnið að byggingu nýs skóla og leikskóla og segir Árni áhersluna vera á að þær stofnanir verði komnar í gagnið áður en þorri fólks flytur inn í hverfið. Árni segist búast við því að skólastarf hefjist í hverfinu nú í haust og íbúarnir flytja inn á haustmánuðum og eitthvað fram yfir áramót. Fyrstu íbúðirnar í hverfinu, við Skólabraut, voru fullbúnar nú í júlí og er fólk flutt inn í hluta þeirra. Austan Tjarnarhverfis stendur svo til að byggja enn annað hverfi, Dalshverfi, sem fullbúið rúmar álíka margar íbúðir og Tjarnarhverfið og því ljóst að ef allt gengur eftir þá fjölgar íbúum Reykjanesbæjar um tvö til þrjú þúsund á allra næstu árum. Nú þegar hafa yfir hundrað umsóknir borist um byggingarlóðir í Dalshverfinu. Aðspurður hvort atvinnuástandið á svæðinu sé til þess fallið að taka við hinni miklu fjölgun segist Árni síður en svo hafa áhyggjur af því. Hann segir að nóg sé að gera, sérstaklega í byggingariðnaðinum. "Það þarf marga í verkin og sérstaklega vantar iðnaðarmenn jafnt sem óbreytta til að vinna við að reisa nýju hverfin," segir Árni. Eins segir Árni að fólk hafi vantað í margs konar störf í bænum undanfarið, bæði í iðnað, verslun og skrifstofustörf.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira