Fleiri fréttir

Á góðum batavegi

Maðurinn, sem féll um 150 metra niður skriður við Hvalvatnsfjörð á föstudag, var meðvitundarlaus í fallinu og man ekki eftir neinum sársauka. Hann er á góðum batavegi og var þakklátur og sprækur þegar Stöð 2 leit til hans á sjúkrahúsið í dag.

Fornleifarannsóknir á Skriðu

Munir, sem fundist hafa við fornleifarannsóknina á Skriðuklaustri, verða til sýnis  þar eystra næstu vikur. Sýningin var opnuð á föstudag.

Páfi hittir múslima í Þýskalandi

Benedikt XVI páfi fordæmdi í gær aftur hryðjuverk sem framin voru nýlega í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Þá bað hann guð um að taka fyrir hendur hryðjuverkamanna. Í næsta mánuði fundar páfi með fulltrúum múslima í Köln í Þýskalandi og segir talsmaður páfa hann telja að fundurinn verði afar mikilvægur.

Rann niður bratta brekku

Karlmaður og kona sluppu nær ómeidd þegar húsbíll þeirra hafnaði utan vegar og rann um fjörutíu metra niður bratta brekku á móts við bæinn Breiðavað skammt ofan Blönduóss um klukkan hálfsjö í gærkvöldi.

Yfir 70 manns í haldi lögreglu

Lögreglan í Egyptalandi hefur tekið yfir 70 manns til yfirheyrslu vegna sprenginganna á föstudagskvöld. Einn ódæðismanna mun hafa látið lífið í sprengingunni en þriggja er enn leitað. Ódæðin valda búsifjum í ferðaþjónustu landsins.

Sprengja slasar tvo í Tyrklandi

Að minnsta kosti tveir slösuðust í sprengingu á kaffihúsi í Istanbul seint á laugardagskvöld. Lögreglan telur að sprengjan hafi annað hvort verið sprengd með fjarstýringu eða búin tímastilli. Sprengt var á vinsælum ferðamannastað við Galata-brúna.

Kóreska konungsættin öll

Yu-Ki, sonur síðasta ríkisarfa kóresku konungsættarinnar, sem ríkti í á tímavilinu 1392 til 1910, var borinn til grafar í gær og markar það endalok Chosun-konungsættarinnar. Þúsundir Suður-Kóreubúa fylgdu Yu-Ki þegar hann var borinn til hinstu hvílu.

Kærður fyrir afneitun þjóðarmorðs

Tyrkneskur stjórnmálamaður sætir nú sakarannsókn í Sviss vegna ummæla sinna um að þjóðarmorð Tyrkja á Armenum á tímum fyrri heimsstyrjaldar væri "lygi". Dogu Perincek, sem á tímabili var formaður Verkamannafloks Tyrklands, er grunaður um að hafa brotið gegn svissneskum lögum sem banna hatursáróður og kynþáttamisrétti.

Stóð út á miðri akbraut

Lögreglunni í Hafnarfirði barst laust eftir klukkan sex síðdegis í gær tilkynning um að maður gengi eftir miðri akbraut á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ.

Bílsprengja banar tugum í Bagdad

Sjálfsmorðssprengjumaður ók vörubíl hlöðnum sprengiefni á lögreglustöð í Bagdad í gær, með þeim afleiðingum að 22 menn að minnsta kosti létu lífið og þrír tugir til viðbótar særðust, að því er írösk lögregluyfirvöld greindu frá. Talsmenn Bandaríkjahers sögðu að minnsta kosti 40 hafa farist.

Lundúnalögreglan biðst afsökunar

Lögreglustjórinn í Lundúnum, Ian Blair, baðst í gær opinberlega afsökunar á því að lögregla skyldi hafa skotið til bana brasilískan rafvirkja, sem ekki tengdist hryðjuverkaárásunum í borginni á nokkurn hátt. Blair varði engu að síður þá stefnu lögreglunnar að hika ekki við að skjóta menn ef ástæða væri til að gruna þá um að bera á sér sprengju.

Sterkur skjálfti í Indlandshafi

Jarðskjálfti að styrkleikanum sjö á Richter-kvarða skók Nicobar-eyjar í austanverðu Indlandshafi í gær. Skjálftinn olli mikilli skelfingu meðal fólks á eyjunum og flóðbylgjuviðvörun var gefin út í Taílandi, en Taílandsströnd er í um 250 km fjarlægð frá eyjunum. Eftir því sem næst varð komist varð þó ekki teljandi tjón af völdum skjálftans.

Sharon hótar hertum aðgerðum

Ísraelsher mun grípa til "fordæmislausra aðgerða" efni herskáir Palestínumenn til árása á ísraelska hermenn og landtökumenn er byggðir gyðinga á Gazaströndinni verða rýmdar í næsta mánuði. Þessu hótaði Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, eftir að tveir Ísraelar voru drepnir í bíl er skotið var á þá úr launsátri á Gazasvæðinu í gær.

Lögreglan fann leynigöng

Bandaríska og kanadíska lögreglan hafa fundið 110 metra löng göng sem ætluð voru til að smygla eiturlyfjum milli Kanada og Bandaríkjanna. Göngin lágu frá kofa í Kanada og inn í stofu íbúðarhúss í Bandaríkjunum.

Sterling hyggst ná þrefaldri stærð

Skandinavíska flugfélagið Sterling stefnir að því að þrefalda stærð sína á næstu þremur til fjórum árum. Þetta hefur norska dagblaðið Aftenposten eftir Almari Erni Hilmarssyni, nýráðnum forstjóra Sterling.

Ekki í lífshættu

Maðurinn sem slasaðist þegar hann féll um það bil 150 metra niður skriðu í gær við Hvalvatnsfjörð fékk töluverða andlitsáverka og skrámur en er ekki í talinn í lífshættu.

Brenndist á fótum

Ferðamaðurinn sem brenndist þegar hann féll í hver í Reykjadal í gær, er með annars til þriðja stigs bruna að sögn læknis á Landspítalanum. Maðurinn þarf líklega að fara í aðgerð en hann brenndist upp að hnjám og þarf að liggja á spítalanum í nokkra daga.

Meirhluti þings vill Roberts

Meirihluti Bandaríkjamanna er fylgjandi því að Öldungadeild þingsins staðfesti skipun Johns Roberts, í embætti hæstaréttardómara. Fólk vill þó vita um afstöðu hans til fóstureyðinga, áður en til þess kemur.

Sprengjuárásir í Egyptalandi

Að minnsta kosti sjötíu og fimm manns létu lífið í röð sprengjuárása í Egypska strandbænum Sharm El Sheik, við Rauðahafið, í morgun. Tvöhundruð til viðbótar eru særðir.

Slys í Skorradal

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gærkvöld til að sækja slasaðan mann í Skorradal. Maðurinn hafði orðið undir gröfu sem féll af kerru þegar verið var að flytja gröfuna niður af kerrunni.

Tekinn með hass í Keflavík

Tvítugur piltur var hantekinn í nótt af lögreglunni í Keflavík vegna gruns um vörslu og neyslu fíkniefna. Við leit á honum fundust tveir hassmolar, samtals um tvö  grömm. Pilturinn var látinn laus eftir yfirheyrslu.

Fimm teknir grunaðir um ölvun

Fimm voru teknir grunaðir um ölvun við akstur á Selfossi og við sumarhúsabyggðir í umdæmi lögreglunnar þar. Lögrelgan í Borgarnesi stöðvaði mann á 128 kílómetra hraða undir Hafnarfjalli um miðnætti og reyndist sá vera töluvert ölvaður. Honum var komið til síns heima eftir skýrslutöku hjá lögreglu.

Vatnavextir í Jöklu

Brúnni yfir Jöklu var lokað í gærkvöldi vegna vatnavaxta í nokkra klukkutíma af öryggisástæðum. Búist við að hún fari undir vatn næstu daga. Að sögn verkefnisstjóra Landsvirkjunar á Kárahnjúkum hafa menn ekki miklar áhyggjur af vextinum því eins og kom í ljós í fyrrasumar þoldi hún straumþunga árinnar eftir að hafa farið undir vatn.

Arna Schram nýr formaður BÍ

Arna Schram, blaðamaður á Morgunblaðinu, tók við formennsku í Blaðamannafélagi Íslands á stjórnarfundi í gær eftir að formaðurinn, Róbert Marshall, sagði sig úr stjórn í kjölfar þess að hann tók við starfi yfirmanns fréttasviðs hjá 365 ljósvakamiðlum. Arna Schram hefur verið varaformaður BÍ síðastliðin rúm tvö ár.

Strætó býður til opnunar

Strætó bs. býður íbúum höfðuborgarsvæðisins að vera við formlega opnun á nýju leiðarkerfi á Hlemmi klukkan eitt í dag. Þar verða stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Strætós bs. sem munu kynna nýtt kerfi. Þá taka borgarstjóri og bæjarstjórar aðildarsveitarfélaga Strætós kerfið formlega í notkun.

83 látnir og hundruðir særðir

Að minnsta kosti áttatíu og þrír létu lífið í röð sprengjuárása í Egypsku hafnarborginni Sharm el-Sheik, við Rauðahafið, í morgun. Mörghundruð til viðbótar eru særðir. Fjölmargir erlendir ferðamenn eru meðal hinna myrtu og slösuðu.

Annar handtekinn í Lundúnum

Breska lögreglan handtók í dag annan mann vegna sprengjutilræðanna í Lundúnum, á fimmtudag. Ekki hefur verið upplýst hvort hann er einn af fjórum mönnum sem lýst er eftir vegna ódæðisins.

Ókeypis skoðun á aftanívögnum

VÍS og Frumherji bjóða næstu daga ókeypis úttekt á fellihýsum, hjólhýsum, tjaldvögnum og hestakerrum til að fólk geti gengið úr skugga um að tengi- og öryggisbúnaður þeirra sé í lagi áður en lagt er upp í ferðalag um verslunarmannahelgina.

Íslendingar í Sharm el-Sheik

Jón Diðrik Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka er staddur í Sharm el-Sheik ásamt fjölskyldu sinni og nokkrum öðrum Íslendingum. Fjölskyldan var úti á svölum þegar ósköpin dundu yfir.

Sprengja á Spáni

Sprengja sprakk í Santiago de Compostela á Spáni fyrr í dag. Engin slys urðu á fólki því áður en sprengjan sprakk hafði lögreglunni borist aðvörun og gat því bæði rýmt svæðið og haldið vegfarendum frá. Santiago de Compostela er vinsæll ferðamannabær og þangað streyma þúsundir kristinna pílagríma á hverju ári.

Öflugur jarðskjáflti í Tókýó

Öflugur jarðskjálfti sem mældist 6,0 á Richter skók Tókýó snemma í morgun. Þetta er öflugasti jarðskjáflti sem mælst hefur í borginni frá 1992. Enginn lést en talið er að 27 hafi slasast. Lestarkerfið og flugsamgöngur lágu niðri í nokkurn tíma og fjöldi manns festist í lyftum. Upptök skjálftans voru í Chiba héraði sem er í um 90 kílómetra austur af Tókýó.

Tengdist ekki árásunum

Breska lögreglan hefur staðfest að maðurinn sem skotinn var á Stockwell lestarstöð í gær tengdist ekki hryðjuverkunum á fimmtudag. Í yfirlýsingu frá lögreglunni er atburðurinn harmaður og beðist afsökunar.

Discovery í loftið á þriðjudag

Bandaríska geimferðastofnunin NASA áætlar að skjóta Discovery á loft næstkomandi þriðjudag klukkan 14:39 að íslenskum tíma. Áhöfnin kom til Flórída í gær til lokaæfinga sem standa munu yfir þar til og ef af flugtaki verður í þetta sinn.

Breska lögregla bæði harmar og ver

Breska lögreglan hefur upplýst að maðurinn sem var skotinn til bana í gær, hafi ekki tengst sprengjutilræðunum síðastliðinn fimmtudag. Ekki var hins vegar sagt hver maðurinn var, eða hvers vegna hann var undir eftirliti. Breska lögreglan ver eftir sem áður þá stefnu að það skuli skotið til að drepa, þegar fengist er við hugsanlegan sjálfsmorðssprengjumann.

Óhugnanleg lífsreynsla

Íslendingur, sem ásamt fjölskyldu sinni varð vitni að fjöldamorðum í Egyptalandi í morgun, segir að það hafi verið óhugnanleg lífsreynsla. Að minnsta kosti áttatíu og átta manns biðu bana í árásunumHver sprengingin af annarri skók Sharm El Sheik snemma í morgun, og aðkoman var skelfileg.

Ölvaður á 128 km hraða

Ökumaður fólksbifreiðar var stöðvaður af lögreglunni í Borgarnesi þar sem hann ók yfir leyfilegum hámarkshraða undir Hafnarfjalli í Borgarfirði skömmu eftir miðnætti í gær.

Frönskum dögum lýkur í dag

Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði lýkur í dag en lögregla telur að um þrjú til fjögur hundruð manns hafi lagt leið sína í bæinn til að fagna með heimamönnum. Hátíðin hefur gengið stórslysalaust fyrir utan nokkur minni háttar viðvik sem lögregla rekur til ölvunar en hún hefur verið töluvert mikil og var talsverður erill hjá lögreglu.

R-listinn hangir á bláþræði

Ekkert bendir til annars en að dagar Reykjavíkurlistans séu senn taldir ef marka má viðbrögð forystumanna flokkanna þriggja sem listann skipa við ályktun Framsóknarflokksins í Reykjavík norður um framboðsmál flokksins.

Framsókn ruggar bátnum

"Það hafa verið uppi raddir um að við séum skelkaðir og að við þorum ekki að fara einir fram. Þetta eru skilaboð til hinna flokkanna um hið gagnstæða," segir Þorlákur Björnsson, formaður kjördæmisráðs Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Nýtt leiðakerfi tekið í notkun

Borgarstjóri og bæjarstjórar nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur klipptu í gær á borða til merkis um að nýtt leiðakerfi Strætó hefði tekið gildi.

88 látnir í sprengjuárás

Á annað hundrað manns slösuðust og 88 létust í sprengjuárás í Egypska ferðamannabænum Sharm el-Sheik á aðfararnótt laugardags. Sjö Íslendingar sem eru á staðnum sluppu allir ómeiddir. Íslamskir öfgahópar tengdir al-Kaída hafa lýst yfir ábyrgð á árásunum. </font /><font face="Helv" color="#000080" size="2"></font></b />

Sjö Íslendingar á svæðinu

Sjö Íslendingar, tvær fjölskykldur, eru staddir á svæðinu þar sem sprengjuárásirnar í Egyptalandi urðu á aðfararnótt laugardags. Engan sakaði en hópurinn varð verulega óttasleginn.

Öflugur jarðskjálfti í Japan

Á þriðja tug slösuðust í jarðskjálfta í Tókýó í gær sem mældist 6 á Richter-kvarða. Japanska veðurstofan sagði að ekki væri hætta á flóðbylgjum í kjölfar skjálftans.

Hinn skotni ótengdur árásum

Maðurinn sem lögreglan í London skaut til bana í neðanjarðarlestarstöð á föstudaginn var ótengdur sprengjuárásunum í borginni. Þetta kom fram í yfirlýsingu Scotland Yard í gær. Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við árásirnar </font /></b />

Erlendir fangar kosta sitt

Kostnaður samfélagsins vegna erlendra fanga í íslenskum fangelsum eykst ár frá ári. Um fimmtán prósent þeirra fanga sem nú sitja inni eru útlendingar.

Sjá næstu 50 fréttir