Fleiri fréttir

Össur vill R-lista, sama hvað

"Ég tel að undir öllum kringumstæðum eigi Samfylkingin að bjóða fram sem Reykjavíkurlisti, þó að annar eða báðir samstarfsflokkana vilji ekki vera með í slíkum lista," segir Össur Skarphéðinsson.

Vopnahléið í uppnámi

Ísraelskir hermenn réðust inn í bæi á vesturbakka Jórdanar í gærmorgun og handtóku tugi meintra palestínskra uppreisnarmanna.

Efnafræðingurinn ekki í al-Kaída

Innanríkisráðherra Egyptalands, Habib al-Adli, segir "efnafræðinginn" svokallaða ekki vera í neinum tengslum við hryðjuverkasamtökin al-Kaída. Hann sætir nú yfirheyrslum í Egyptalandi sem breskir lögreglumenn fylgjast grannt með.

Svindlaði út nautakjöti

Verslunarstjóri í matvöruverslun í Búdapest sætir nú lögreglurannsókn grunaður um svindl.

Með þýfi í farteskinu

Einn karl og tvær konur á þrítugsaldri voru á föstudagsmorgun handtekin við Litlu kaffistofuna í Svínahrauni, grunuð um að hafa brotist inn í raftækjaverslun á Selfossi.

Hringróður gengur vel

Kjartan Hauksson sem er að fara hringinn í kringum landið á árabát fór frá Neskaupsstað aðfaranótt föstudags og kom til Stöðvarfjarðar síðdegis á laugardag.

Flugvélin í Fljótavík hífð í þyrlu

Cessna einkaflugvélin sem hlekktist á í flugtaki í Fljótavík á Hornströndum á föstudaginn var hífð með þyrlu Landhelgisgæslunnar um borð í varðskipið Óðinn á laugardag.

Harry seldist vel á miðnæturopnun

Um sex hundruð manns keyptu nýju Harry Potter bókina í Mál og menningu á Laugarvegi aðfaranótt laugardags, segir Óttar Proppe vörustjóri erlendra bóka hjá Pennanum. "Fyrsta prentun bókarinnar fer að verða búin," segir Óttar.

Kári í ÍE leysir af á Landspítala

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar ætlar að eyða viku af sumarfríi sínu við lækningar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi.

20 látnir; 45 særðir

Að minnsta kosti tuttugu manns féllu og fjörutíu og fimm eru særðir eftir að sjálfsmorðsárás var gerð í mosku í úthverfi Bagdad, höfuðborgar Íraks, í dag. Engin samtök hafa lýst verknaðinum á hendur sér.

Tyrknesk rúta sprengd upp

Fimm manns dóu í sprengjutilræði í Tyrklandi í gær en þá var rútu með ferðamönnum grandað. Talið er að Kúrdar beri ábyrgð á tilræðinu.

Á sjötta tug beið bana

Sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi upp sprengjur sem hann bar utan á sér við bensínstöð nærri sjíamosku í borginni Musayyib suður af Bagdad í gær. Að minnsta kosti 54 létust í árásinni og á níunda tug særðist til viðbótar.

Fjölmenni hjá Arroyo

Stuðningsmenn Gloriu Arroyo Filippseyjaforseta héldu fjöldafund henni til stuðnings í Maníla, höfuðborg landsins, í gær.

Al-Kaída menn handsamaðir

Ali Yunesi, ráðherra öryggis- og upplýsingamála í Íran, lýsti því yfir í gær að 3.000 meintir liðsmenn al-Kaída hefðu verið handteknir, færðir fyrir dómara eða reknir úr landi undanfarin misseri.

Vatnsleki í Amarohúsinu

Nokkurt vatnstjón varð á skrifstofu- og verslunarrými í eldri hluta Amarohússins á Akureyri um miðja vikuna þegar ofn á þriðju hæð gaf sig.

Hitaveita Ólafsfjarðar seld

Þrjú veitufyrirtæki hafa sýnt áhuga á að kaupa Hitaveitu Ólafsfjarðar. Bæjaryfirvöld hafa ekki ákveðið hvort veitan verði seld en Stefanía Traustadóttir bæjarstjóri segir ákvörðun þess efnis væntanlega liggja fyrir í næstu viku.

Rove ræddi um Plame við blaðamenn

Hart er sótt að Karl Rove, helsta ráðgjafa George W. Bush Bandaríkjaforseta, þar sem grunur leikur á að hann hafi í pólitísku skyni afhjúpað útsendara leyniþjónustunnar CIA í samtali við blaðamenn.

Vilja opið prófkjör

Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi R-listans, segir hugmyndir Össurar Skarphéðinssonar um opið prófkjör Samfylkingarinnar sem fram koma á heimasíðu hans í dag ekki vera nýjar af nálinni. Slíkt hafi verið gert tvisvar áður á síðustu árum og hefur hann verið talsmaður þess að sem flestir komi að prófkjöri.

Gekk illa að hífa vélina í Óðin

Engin slys urðu á fólki í fjögurra sæta Cessna vél sem hlekktist á í flugtaki í Fljótavík á Hornströndum seinni partinn í gær. Illa gekk hjá Landhelgisgæslunni í gærkvöldi, þegar reynt var að hífa vélina yfir í varðskipið Óðinn, þar sem spaðar þyrlunnar komu flugvélinni á mikla hreyfingu.

Flugskeytum skotið á Gaza

Ísraelar skutu flugskeytum á svæði Palestínumanna á norðurhluta Gaza-svæðisins í gærkvöld. Árásin er gerð eftir að ísraelsk kona lét lífið í eldflaugaárás herskárra Palestínumanna sem skutu eldflaug inn í Ísrael frá Gaza-svæðinu.

Tilkynnt um skothríð við Grindavík

Lögreglunni í Keflavík var í gærkvöldi gert viðvart um skothríð í grennd við Grindavík og voru lögreglumenn þegar sendir á vettvang. Þar var hópur ungra manna að skjótast á með sjö litboltabyssum og var lagt hald á þær allar.

Sprenging í Madríd

Sprengja sprakk í Madríd, höfuðborg Spánar, í morgun. Ekki virðist sem nokkur hafi særst í sprengingunni, sem var ekki mikil, en rúður brotnuðu þó í nærliggjandi húsum. Málið er í rannsókn.

Heildaraflinn minni í ár

Heildarafli íslenskra fiskiskipa var tæplega 26 þúsund tonnum minni í júnímánuði síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Munurinn skýrist að mestu af mun minni loðnuafla núna og kolmunnaaflinn er líka talsvert minni.

Geimskot í fyrsta lagi á sunnudag

Bandaríska geimferðastofnunin NASA segir að geimferjunni Discovery muni í fyrsta lagi verða skotið á loft á sunnudag en ekki á morgun eins og haldið hefur verið fram. NASA hefur svigrúm til mánaðamóta til að senda ferjuna í fyrirhugaða tólf daga för að Alþjóðlegu geimstöðinni.

Töluvert magn fannst við húsleit

Töluvert magn af amfetamíni og e-töflum fanst við húsleit fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík í miðbænum síðastliðinn mánudag. Í framhaldinu var erlend kona handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald til 19. júlí. Á miðvikudag var síðan annar útlendingur handtekinn í tengslum við málið.

Bæta ímynd múslíma

Samtök múslíma í Bandaríkjunum hafa hafið einskonar markaðsherferð undir nafninu „Ekki í nafni íslam“. Markmiðið er að bæta ímynd múslíma í landinu en þeir hafa þar í landi, líkt og á Bretlandi, verið áreittir eftir sprengjuárásirnar í London.

Mafían grunuð um stuldinn

Íslenskur saltfiskur og skreið blandast nú inn í rannsókn ítölsku lögreglunnar á umfangsmiklum fiskþjófnaði ítölsku Camorra-mafíunnar sem lætur sér ekki lengur nægja að hagnast af vændi, eiturlyfjum og okurlánum. 

50 handteknir vegna barnakláms

Tæplega fimmtíu manns sem grunaðir eru um að hafa dreift barnaklámi á Netinu voru handteknir í Portúgal í gær. Þetta er stærsta aðgerð sem lögreglan þar í landi hefur ráðist í af þessu tagi.

Þúsundir minntust fórnarlambanna

Þúsundir manna komu saman við Trafalgar-torg í London í gærkvöld til að minnast þeirra sem létu lífið í sprengingunum í London í síðustu viku en tala látinna er nú komin í fimmtíu og fjóra. Lögreglan segir að enn megi búast við að tala látinna muni hækka.

Þrír bílar höfnuðu utan vegar

Þrír bílar höfnuðu utan vegar á Vestfjörðum í gær en enginn sem í þeim var slasaðist þó alvarlega. Einn fór út af í Bitrufirði, annar á Dynjandisheiði og sá þriðji valt út af veginum í Dýrafirði og hafnaði ofan í fjöru.

Hákarlar enn á ferð

Hákarl beit 14 ára gamla stúlku í fótinn undan ströndum Texas í gær. Stúlkan fékk svöðusár á fótinn og gekkst undir aðgerð í gærkvöld. Hákarlaárásir hafa verið tíðar að undanförnu við Mexíkóflóa, þannig varð hákarl annarri 14 ára stúlku að bana undan ströndum Flórída í lok júní en þá viku var að minnsta kosti tilkynnt um þrjár hákarlaárásir.

Talið að 136 hafi farist

Mörg hundruð þorpsbúa komu saman í morgun á vettvangi lestarslyssins sem varð í Pakistan á miðvikudag til að vera við jarðsetningu þeirra sem ekki hafa verið borin kennsl á en alls eru það 64. Talið er að 136 hafi farist í árekstri þriggja hraðlesta en ekki er var hryðjuverkum um að kenna að þessu sinni heldur var um mannleg mistök að ræða.

Rúta og strætisvagn skullu saman

Að minnsta kosti tveir slösuðust, en þó ekki alvarlega eftir því sem best er vitað, þegar rútubíll og strætisvagn skullu saman á gatnamótum Túngötu og Ægisgötu á tólfta tímanum.

Fuglaflensan komin til Indónesíu?

Sterkar vísbendingar eru um að fuglaflensan sé komin til Indónesíu sem er fjórða fjölmennasta ríki heims. Þrír úr sömu fjölskyldu hafa látist og hafa stjórnvöld nú þegar leitað aðstoðar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar við rannsókn málsins.

Enn merki um alþjóðlega starfsemi

Tveir útlendingar voru handteknir í Reykjavík í vikunni en þeir eru grunaðir um fíkniefnasölu. Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík gerði húsleit í miðborg Reykjavíkur þar sem töluvert magn af amfetamíni og e-pillum fannst. Rennir málið ennfrekari stoðum undir það að alþjóðleg glæpastarfsemi hafi skotið rótum á Íslandi.

Slösuðust við niðurrif húss

Fimm manns slösuðust þegar verslunarhúsnæði á Manhattan í New York, sem verið var að rífa niður, hrundi. Brak úr húsinu hrundi niður á gangstéttina og slasaði vegfarendur. Ekki er talið að fólkið hafi slasast alvarlega en einn fót- og handleggsbrotnaði.

Handtekinn vegna hryðjuverkanna

Maður sem eftirlýstur var vegna hryðjuverkanna í London í síðustu viku hefur verið handtekinn í Egyptalandi. Innanríkisráðuneyti Egyptalands staðfesti þetta nú síðdegis. Maðurinn, Magdy Elnasher að nafni, er þrjátíu og þriggja ára gamall og með egypskt ríkisfang en hefur stundað nám í efnafræði bæði í Bretelandi og Bandaríkjunum.

Ráðinn forstjóri Fjármálaeftirlits

Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur ráðið Jónas Fr. Jónsson forstjóra eftirlitsins frá og með 18. júlí. Jónas hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri innra markaðssviðs Eftirlitstofnunar EFTA í Brussel.

Dennis spillir Kúbuför barnakórs

22 hafnfirsk börn eru í öngum sínum þar sem fyrirhugað kórferðalag þeirra til Kúbu hefur verið slegið af. Egill Friðleifsson, kórstjóri til 40 ára, var á leið í sína síðustu kórferð. Í sárabætur fer hópurinn í helgarferð til Parísar og mun jafnvel syngja við Sigurbogann. </font /></b />

Vegurinn ófær vegna vatnavaxta

Vegagerðin vill vekja athygli á því að vegur F-88 Öskjuleið inn að Herðubreiðarlindum er ófær vegna vatnavaxta fyrir alla bíla nema allra stærstu jeppa. Þeim vegfarendum sem ætla að fara inn að Herðubreiðarlindum er bent á að fara veg F-905 frá Möðrudal og inn á veg F-910.

Fjórir Hamas-liðar drepnir

Fjórir Hamas-liðar í Palestínu voru skotnir til bana í dag þegar ísraelsk herþyrla skaut þremur flugskeytum nálægt landnemabyggð gyðinga á Vesturbakkanum. Skotárásin er sögð liður ísraelska hersins í hefndaraðgerðum gagnvart herskáum Palestínumönnum en þeir eru taldir hafa skotið ísraelska konu til bana í gær og fimm manns á þriðjudag.

Flutningabíll fór út af í Kömbunum

Bílstjóri flutningabíls slasaðist nokkuð þegar bíllinn fór út af veginum í Kömbunum síðdegis. Talið er að bilun hafi valdið óhappinu. Bíllinn fór út af ofarlega í Kömbunum, rann um 150 metra niður mosabala, þaðan hann fór yfir Suðurlandsveginn og að lokum um 100 metra niður hlíð þar sem hann að lokum stöðvaðist.

Ódæðin halda áfram

Stjórnvöld í Keníu hafa sent 2.000 hermenn til norðurhluta landsins til að hafa upp á þeim sem frömdu fjöldamorð í bænum Turbi á þriðjudaginn. 76 biðu bana, þar af 22 börn.

Efnafræðingurinn handtekinn

Lögreglan í Kaíró handtók í gær egypskan efnafræðinema sem grunaður er um að hafa átt aðild að hryðjuverkunum í Lundúnum í síðustu viku. Leiðtogar múslima í Bretlandi heimsóttu Leeds í gær og hétu því að taka öfgamenn í sínum röðum fastari tökum.

Ólgan á Gaza fer vaxandi

Í odda skarst á milli palestínskra öryggissveita og skæruliða Hamas-samtakanna í Gazaborg í gær og féllu tveir unglingar í bardögunum. Þetta eru verstu átök á milli Palestínumanna í áraraðir.

Sjá næstu 50 fréttir