Innlent

Vatnsleki í Amarohúsinu

Nokkurt vatnstjón varð á skrifstofu- og verslunarrými í eldri hluta Amarohússins á Akureyri um miðja vikuna þegar ofn á þriðju hæð gaf sig. Heitt vatn lak um þrjár hæðir og niður í kjallara en mest varð tjónið hjá fasteignasölunni Hvammi á jarðhæðinni. Þar flæddi vatn yfir tölvur og annan skrifstofubúnað. Slökkvilið Akureyrar dældi vatninu út úr húsinu og gekk það bærilega. Ekki er búið að meta tjónið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×