Innlent

Heildaraflinn minni í ár

Heildarafli íslenskra fiskiskipa var tæplega 26 þúsund tonnum minni í júnímánuði síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Munurinn skýrist að mestu af mun minni loðnuafla núna og kolmunnaaflinn er líka talsvert minni. Afli fyrstu sex mánuði ársins er hins vegar talsvert meiri í ár en í fyrra og því eru sumir langt komnir með kvóta sína eða alveg búnir og hættir veiðum. Nýtt fiskveiðiár gengur í garð 1. september.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×