Innlent

Hringróður gengur vel

Kjartan Hauksson sem er að fara hringinn í kringum landið á árabát fór frá Neskaupsstað aðfaranótt föstudags og kom til Stöðvarfjarðar síðdegis á laugardag. "Ég tek rosalegar skorpur þegar það er gott í sjóinn. Ég legg af stað til Djúpavogs í fyrramálið. Það brotnaði hjá mér smá fótspyrna í bátnum þannig að ég þarf að sjóða hana áður en ég fer aftur af stað," segir Kjartan. Kjartan lagði af stað í hringróðurinn árið 2003 en gerði svo á honum hlé. Ferðin er farin til styrktar Sjálfsbjörgu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×