Innlent

Með þýfi í farteskinu

Einn karl og tvær konur á þrítugsaldri voru á föstudagsmorgun handtekin við Litlu kaffistofuna í Svínahrauni, grunuð um að hafa brotist inn í raftækjaverslun á Selfossi. Í bíl fólksins fannst nokkuð af þýfi, aðallega raftæki, en einnig varningur úr öðrum verslunum sem þremenningarnir eru grunaðir um að hafa stolið. Í framhaldi af handtökunni var gerð húsleit í íbúð á Selfossi síðdegis á föstudag og fundust þar tíu grömm af amfetamíni. Kona og karl sem búa í íbúðinni voru handtekin og viðurkenndu þau að eiga efnið. Fólkinu hefur nú verið sleppt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×