Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannskæðasta námuslys ársins Að minnsta kosti 59 eru sagðir hafa látist í gassprengingu í kolanámu í Kína í morgun. Fyrst var talið að 22 hafi látist en kínverskir fjölmiðlar greindu frá því nú síðdegis að 37 lík til viðbótar hafi fundist ofan í námunni. 11.7.2005 00:01
Strandblakvellir á Þingeyri Unnið er að gerð tveggja strandblakvalla við íþróttamiðstöðina á Þingeyri að því er fram kemur á Þingeyrarvefnum. 11.7.2005 00:01
Londonárás: 52 látnir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði á breska þinginu í dag að allt benti til þess að hryðjuverkaárásunum í London í síðustu viku hefðu verið skipulagðar af íslömskum öfgamönnum. Staðfest hefur verið að 52 létust í árásunum og eru 56 enn á spítala. 11.7.2005 00:01
Eftirlýstur í 182 löndum Norskur kaupsýslumaður, sem farið hefur huldu höfði í tæpt ár, fannst látinn í bíl sínum í Svíþjóð að því er fram kemur á netmiðlinum Nettavisen. Maðurinn hét Ole Christian Bach og hafði verið ákærður af efnahagsbrotadeild norsku lögreglunnar og var eftirlýstur í 182 löndum. 11.7.2005 00:01
Í lopapeysu með grænan hatt Lögreglan í Reykjavík leitar enn manns sem framdi vopnað rán í verslun Lyf og heilsu í Domus Medica í hádeginu í dag. Maðurinn, sem er lágvaxinn og grannur, var klæddur í rauðleita lopapeysu með röndum á ermum og með grænan hatt. Hann er talinn vera á aldrinum 20 til 30 ára. 11.7.2005 00:01
Vendipunktur hjá R-listanum Ákveðinn vendipunktur varð á fundi fulltrúa aðildarflokka R-listans í dag að því er segir í tilkynningu frá fundarmönnum. Hvað þar var um að ræða er ekki útskýrt nánar. 11.7.2005 00:01
Þarfnast brýnnar endurskoðunar Neyðarskipulag almannavarna þarfnast brýnnar endurskipulagningar. Liðin eru þrettán til fimmtán ár síðan skipulagið var síðast endurskoðað en upphaflega var gengið út frá því að endurskoðun færi fram á fimm ára fresti að sögn Björns Halldórssonar, deildarstjóra almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. 11.7.2005 00:01
Rændi lyfjum vopnaður hnífi Ungur maður vopnaður hnífi réðst inn í verslun Lyf og heilsu í Domus Medica við Eiríksgötu í hádeginu í gær. Maðurinn var með klút fyrir andlitinu er hann hljóp inn í búðina, ógnaði starfsfólki með hnífnum og stökk yfir búðarborðið þar sem hann rótaði í lyfjaskúffum. Maðurinn hafði lyf á brott með sér en ekki er talið að um verulegt magn hafi verið að ræða. 11.7.2005 00:01
Harður árekstur tveggja vörubíla Vörubílstjóri var fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur eftir mjög harðan árekstur tveggja vörubifreiða og fólksbíls við Vatnshorn í Húnaþingi vestra eftir hádegi í gær. Annar vörubílstjórinn slasaðist minna og tveir sem í fólksbílnum voru sluppu nær ómeiddir. 11.7.2005 00:01
Ekki sá usli sem búist var við Fellibylurinn Dennis olli ekki eins miklum usla og búist var við á suðausturströnd Bandaríkjanna í nótt og í morgun. Fjöldi heimila skemmdist í Flórída og Alabama þegar bylurinn gekk yfir á 190 kílómetra hraða á klukkustund þegar mest var en um tvær milljónir manna voru hvattar til að yfirgefa heimili sín. 11.7.2005 00:01
R-listi: Viðræðum haldið áfram Flokkarnir þrír sem standa að R-listanum ákváðu rétt fyrir klukkan sex að halda áfram viðræðum um samstarf. Fyrr í dag hótuðu framsóknarmenn í samninganefnd fyrir R-listann að hætta samstarfinu ef Samfylkingin kæmi ekki með nýtt útspil á fundi flokkanna sem haldinn var síðdegis. 11.7.2005 00:01
Koizumi ræddi hvalveiðimál Halldór Ásgrímsson átti í gær fund með Junichiro Koizumi, starfsbróður sínum í Japan. Samstarf ríkjanna í hvalveiðimálum bar á góma að frumkvæði Koizumi og samkvæmt frétt Associated Press mun Halldór hafa sagt við Koizumi að ef Íslendingar hæfu atvinnuveiðar á hval myndu finnast leiðir til að starfa með Japönum. 11.7.2005 00:01
Félagsþjónusta á síðasta ári Alls fengu 14.475 heimili í Reykjavík þjónustu hjá Félagsþjónustunni á síðasta ári. Algengasta þjónustan sem var veitt eru húsaleigubætur og nokkra athygli vekur að fjöldi þiggjenda var mun meiri á síðasta ári en árið 2003, en það var á síðari hluta síðasta árs sem bankarnir komu inn á íbúðalánamarkaðinn. 11.7.2005 00:01
Davíð skoðar Aðmírálinn Davíð Oddson forsætisráðherra heimsótti um tvöleytið í gær rússneska kafbátaskipið Aðmíral Levchenko, sem liggur við Reykjavíkurhöfn. Í samræmi við alþjóðlegar hefðir var skotið sautján sinnum úr fallbyssum skipsins við komu hans í það. 11.7.2005 00:01
Ætlar ekki að svara Helga Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, sagðist í bréfi sem hann sendi Helga Hjörvar alþingismanni ekki telja í sínum verkahring að leita svara við einstökum spurningum, sem kunna að vakna í huga nefndarmanna um sölu ríkisbankanna. 11.7.2005 00:01
Ríkisendurskoðun svarar Helga Ríkisendurskoðandi sendi formanni fjárlaganefndar í gær bréf þar sem hann svarar í rauninni spurningum sem Helgi beindi í síðustu viku til formannsins. Þar áréttar ríkisendurskoðandi að hann hafi alls ekki verið að fjalla um hækkun á markaðsvirði hlutabréfa þegar hann sagði í minnisblaði sínu að enginn söluhagnaður hefði orðið hjá Skinney-Þinganesi við sölu á bréfum sínum í Hesteyri. 11.7.2005 00:01
Taugatitringur enn í London Gríðarlegur taugatitringur er enn í London þótt lífið í borginni sé um það bil að komast í eðlilegt horf eftir hryðjuverkaárásirnar í síðustu viku. Öryggisgæsla hefur verið hert enn frekar. 11.7.2005 00:01
Íbúum létt þrátt fyrir mikið tjón Tjón af völdum fellibylsins Dennis hleypur á hundruðum milljarða. Íbúar telja sig hafa sloppið við það versta enda dró mátt úr fellibylnum rétt áður en hann gekk á land. 11.7.2005 00:01
Kennsl borin á fyrstu líkin Kennsl voru í gær borin á fyrstu lík fórnarlamba hryðjuverkanna í London á fimmtudag. Susan Levy 53 ára, tveggja barna móðir, lést í mannskæðustu árásinni, á Piccadilly-leiðinni þar sem 21 lét lífið. Eiginmaður hennar og sonur höfðu leitað hennar öllum stundum þar til þeim var tilkynnt um lát hennar. 11.7.2005 00:01
Fjöldamorðanna í Srebrenica minnst Um 50 þúsund manns tóku þátt í minningarathöfn um þá sem fórust í fjöldamorðum Bosníu-Serba á bosnískum múslimum í og við Srebrenica fyrir tíu árum. 11.7.2005 00:01
Fékk mánuð fyrir að aka á stúlku Tæplega tvítugur piltur var dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir að aka niður 15 ára gamla stúlku við Bíldudal um miðjan júlí í fyrra með þeim afleiðingum að hún lést. 11.7.2005 00:01
Fréttablaðið bætir sig á landsvísu Lestur Fréttablaðsins eykst á milli fjölmiðlakannanna Gallups meðan dregur úr lestri Morgunblaðsins og DV. Blaðið kemur nýtt inn með 44 % lestur á höfuðborgarsvæðinu. Sjónvarpsþátturinn Út og suður með Gísla Einarssyni er langvinsælastur. 11.7.2005 00:01
Kynferðisbrotadómi áfrýjað Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar máli þar sem Héraðsdómur Norðurlands vestra sýknaði mann af kynferðisbroti gegn 10 ára gamalli systurdóttur hans. 11.7.2005 00:01
Skipun að ofan um áframhald Viðræðunefnd flokkanna sem að Reykjavíkurlistanum standa hefur fengið skipun að ofan um að hætta karpi í fjölmiðlum. Forysta flokkanna í borginni vill áframhaldandi samstarf. Nefndin boðaði í gær breytt vinnulag og "farsæla" niðurstöðu í framhaldinu. 11.7.2005 00:01
Vanbúin á leið inn í Þórsmörk Lögreglan á Hvolsvelli hafði í gær afskipti af þýskri konu með barn sem ætlaði á puttanum inn í Þórsmörk vanbúin til slíkra ferða. 11.7.2005 00:01
Lögreglan aðhafðist ekki Lögreglan sá ekki ástæðu til að aðhafast þegar barnslát á Kvennadeild Landspítalans var kært þangað en spítalinn og læknirinn sem kom að málinu hafa verið dæmdir til skaðabótagreiðslu fyrir stórfellt gáleysi. Allir læknar kvennadeildarinnar gáfu út yfirlýsingu í fyrra þar sem fullu trausti er lýst á viðkomandi lækni. 11.7.2005 00:01
Árni segist aldrei hafa sagt ósatt Árni Magnússon félagsmálaráðherra segist aldrei hafa sagt Alþingi ósatt. Hann segir Íbúðalánasjóð ekki fara út fyrir lánaheimildir sínar og að sjóðurinn sé ekki að lána eftir tveimur leiðum, beint til lántakenda og til lántakenda í gegnum banka og sparisjóði. 11.7.2005 00:01
Námskeið í uppeldi á Suðurnesjum Fjögur sveitarfélög á Reykjanesi hafa, fyrst allra í heimi, boðið upp á námskeið í barnauppeldi og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Sem dæmi má nefna að sú mikla aukning sem orðið hefur á notkun rítalíns á landinu, hefur ekki orðið á því svæði. 11.7.2005 00:01
Tveimur skotum færra en forsetinn Davíð Oddsson utanríkisráðherra fór í opinbera heimsókn í rússneska herskipið Levsjenkó aðmírál í dag. Sautján fallbyssuskotum var hleypt af, Davíð til heiðurs. Hann ræddi við skipstjórnendur, skoðaði fleyið og fræddist um Íslandsheimsóknina. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fer um borð á morgun og verður þá nítján heiðursskotum hleypt af. 11.7.2005 00:01
Tíu ár frá fjöldamorðunum Tugþúsundir minntust þess í Srebrenica í Bosníu í dag að tíu ár eru liðin frá því að átta þúsund íslamskir karlar og drengir voru myrtir á hrottalegan hátt af Bosníu-Serbum í Bosníustríðinu. 11.7.2005 00:01
Veiði mun betri en í fyrra Það er rífandi gangur í laxveiðinni og víða er veiði mun betri en í fyrra. Veiðin í Norðurá er nærri helmingi meiri en á sama tíma í fyrra og Laxá í Kjós er að taka við sér eftir slaka byrjun. 11.7.2005 00:01
Ræddi hvalveiðarnar við Koizumi Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra átti í dag fund í Tókýó með Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans. Á fundinum ræddu ráðherrarnir m.a. stuðning Íslands við tillögu Japans og fleiri ríkja um fjölgun sæta í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þá undirstrikaði Halldór mikilvægi Japansmarkaðar fyrir áframhaldandi hvalveiðar í vísindaskyni við Ísland. 11.7.2005 00:01
Erlendum ferðamanni bjargað Björgunarsveitir fundu erlendan ferðamann á Langjökli í gærkvöld en hann treysti sér ekki til að ganga lengra vegna eymsla í baki og hafði sett neyðarsendi í gang. Þyrla Landhelgisgæslunnar nam sendinguna og fór á staðinn til að reyna að miða út staðsetningu. 10.7.2005 00:01
Birmingham rýmd Tuttugu þúsund manns voru flutt úr miðborg Birmingham á Englandi í nótt eftir að öryggisviðvörun var gefin þar, aðeins þremur dögum eftir að fimmtíu manns voru ráðin af dögum í hryðjuverkaárásum í Lundúnum. 10.7.2005 00:01
Árásarmennirnir breskir? Leitin að þeim sem gerðu árásirnar í Lundúnum heldur áfram. Fyrrverandi lögreglustjóri Lundúnaborgar, John Stevens, skrifar grein í dagblað í dag þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni að yfirgnæfandi líkur séu á að árásarmennirnir séu breskir, en ekki útlendingar. Hann segir jafnframt að lögreglan hafi komið í veg fyrir átta árásir af sama tagi á undanförnum fimm árum. Þrjár hreyfingar íslamskra öfgamanna hafa gengist við tilræðunum í Lundúnum. 10.7.2005 00:01
Sjálfsmorðsárás í Bagdad Átján fórust og yfir fjörutíu særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Bagdad í morgun. Árásin var gerð á skráningarstöð nýliða fyrir írakska herinn. Þetta er mannskæðasta árásin í Írak í þessari viku, en vikan þykir raunar hafa verið hlutfallslega róleg. 10.7.2005 00:01
Fellibylurinn Dennis í hámarki Nærri einni og hálfri milljón hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín við Mexíkó-flóa í Bandaríkjunum, en hann hefur dýpkað mjög og er óttast að hann geti valdið gríðarlegri eyðileggingu. 10.7.2005 00:01
Tvær kenningar um árásina Margar kenningar eru á lofti varðandi árásirnar á Lundúni og ein er sú að hvítir málaliðar kunni að hafa framið hryðjuverkin fyrir al-Qaeda og að sami hópur sé að verki og í Madríd. Í gær bárust fregnir af því að Bretar hefðu beðið um að leitað yrði eftir Mohamed Guerbouzi, íslömskum fræðimanni með breskan og marokkóskan ríkisborgararétt, um alla Evrópu. Nú virðist sem hann hafi verið útilokaður sem leiðtogi hryðjuverkahópsins. 10.7.2005 00:01
Breskir fjölmiðlar um Baugsmálið Breskir fjölmiðlar virðast ganga út frá þeirri staðreynd að hefndarhugur og pólitísk óvild hafi verið kveikjan að rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á hendur Baugsmönnum. Mikið hefur verið fjallað um málið að undanförnu í Bretlandi og hafa margir blaðamenn líkt viðskiptaháttum Íslands við Rússland. 10.7.2005 00:01
Rússneskt herskip í heimsókn Vináttuheimsókn tveggja rússneskra herskipa hefst í Reykjavík í dag. Stórt kafbátavarnaskip, Admirall Levchencko kemur til hafnar í Reykjavík um hádegi og klukkan eitt verður 21 fallbyssuskoti skotið frá borði skipsins í virðingarskyni við Íslands, móttökulandið. Íslenskum almenningi verður boðið að skoða skipið á þriðjudag og miðvikudag. 10.7.2005 00:01
Ummæli múslímaprests olía á eld Í viðtali við danska blaðið Politiken í gærkvöldi segir Troels Lund Poulsen, talsmaður utanríkismála annars stjórnarflokkanna í Danmörku, að með ummælum sínum hafi trúarleiðtoginn verið að réttlæta hryðjuverk. Að mati Poulsens er það ekki lögmætt viðhorf, eins og hann orðar það, að kenna Bandaríkjamönnum um, þannig bæti leiðtoginn olíu á eld öfgafullra múslima. 10.7.2005 00:01
Viðbúnaðarstig í London hækkað Leitin að þeim sem gerðu árásirnar í Lundúnum heldur áfram, en fyrrverandi lögreglustjóri Lundúna telur hryðjuverkamennina innlenda. Enn er reynt að bjarga líkum úr lestargöngum við King's Cross, við erfiðar aðstæður. 10.7.2005 00:01
Órói á Sæluhelgi Grunur leikur á að karlmaður hafi verið skallaður í andlitið á Suðureyri í nótt, en áverkar virðast ekki alvarlegir við fyrstu sýn að sögn lögreglu. Enginn var handtekinn og árásin hefur ekki verið kærð. Nú stendur yfir hátíðin Sæluhelgi á Suðureyri og er þar talsverður fjöldi gesta. Sérstakt eftirlit hefur verið með ungmennum og hefur verið lagt hald á áfengi í fórum nokkurra unglinga undir lögaldri. 10.7.2005 00:01
Fækkun í herliðum á næsta ári Bandaríkjamenn og Bretar ætla að fækka um helming í herliði sínu fyrir mitt næsta ár, samkvæmt leyniskýrslu breska varnarmálaráðuneytisins, sem lekið hefur verið í fjölmiðla. 10.7.2005 00:01
Þjófar gómaðir í Grafarvogi Tveir menn ruddust inn í Lyfju Austurveri og reyndu að komast á brott með lyf en hurfu á brott tómhentir. Fóru því næst í Dómínós Pizza í Spönginni, vopnaði hnífi sem þeir eru þó ekki taldir hafa ógnað með. Þaðan komust þeir undan með eitthvað af fé en náðust fljótlega í Brekkuhúsum í Grafarvogi. Þessa stundina er verið að flytja þá niður á lögreglustöð til yfirheyrslu. 10.7.2005 00:01