Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Persónuvernd krefst skýringa Persónuvernd hefur krafið Landspítalann um skýringar á rafrænu sjúkraskrárkerfi spítalans og þeirri ákvörðun að hætta að takmarka aðgang að gagnagrunni spítalans, við ákveðnar sérgreinar. Allir læknar hafa nú aðgang að öllum sjúkráskrám á rafrænu formi, fyrir utan nokkra sjúkdómaflokka sem gætu fallið undir feimnismál. 10.7.2005 00:01
Ráðherra fer með rangt mál Formaður efnahags og viðskiptanefndar segir félagsmálaráðherra hafa farið með rangt mál um lánastarfsemi Íbúðalánasjóðs á þinginu í mars. Hann segir ráðherrann annaðhvort ekki vita betur, eða að veruleikinn sé allur annar en komið hafi fram í umræðum síðustu daga. Nema ráðherrann hafi vísvitandi sagt þinginu ósatt en það sé mjög alvarlegt mál. 10.7.2005 00:01
London í dag Hryðjuverk og viðvaranir komu ekki í veg fyrir að um tvöhundruð þúsund Lundúnabúar þyrptust út á götur borgarinnar til að minnast endaloka seinni heimsstyrjaldarinnar. Á sama tíma bárust fregnir af handtöku meintra hryðjuverkamanna. 10.7.2005 00:01
Múslimar í Danmörku Trúarleiðtogi múslima í Kaupmannahöfn sagði í ræðu á föstudaginn að hann fordæmdi hryðjuverkin í London. Hann kenndi jafnframt Bandaríkjamönnum um slíkar árásir, þar sem þeir træðu hugmyndafræði sinni uppá aðra menningarheima. 10.7.2005 00:01
Baugur með augum Breta Breskir fjölmiðlar halda því fram í umfangsmikilli umfjöllun sinni um Baugsmálið að sambandsslit, afbrýðisemi og pólitísk óvild séu kveikjan að rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglusjóra á hendur Baugsmönnum. Óhætt er að segja að breskir blaðamenn dragi upp all sérstaka mynd af íslensku þjóðfélagi í skrifum sínum í dag. 10.7.2005 00:01
Rændu apótek og pítsustað "Auðvitað var okkur brugðið enda alveg fáránlegt að ræna pítsustað á þessum tíma," segir Ingólfur Kristinsson, starfsmaður á Domino´s pítsustaðnum í Spönginni í Reykjavík, þar sem vopnaður maður framdi rán í gær. 10.7.2005 00:01
Fannst á Langjökli Þýski ferðamaðurinn sem leitað var á Langjökli á laugardag fannst á hábungi jökulsins tuttugu mínútur í tíu í fyrrakvöld. Hann fann til eymsla í baki og fennt hafði yfir tjald hans og annan búnað og sendi því út neyðarboð. 10.7.2005 00:01
Vatn Eyjabakka virkjað Upphaflega stóð til að sökkva Eyjabökkum og gera þar stórt miðlunarlón. Þau áform mættu harðri andstöðu náttúruverndarsamtaka og var fallið frá þeim fyrir fimm árum þegar erlendir samningsaðilar vildu stærra álver sem kallaði á meiri orku. Það var þó aldrei hætt við að virkja vatnið af Eyjabökkum, það verður í staðinn gert með með litlu lóni. 10.7.2005 00:01
Mávar til vandræða Mávar virðast hafa hertekið Seltjörnina á Seltjarnaresi. Þar hefur vanalega verið að finna litríkt fuglalíf en þessa dagana er litadýrðin lítil og fátt annað en svartir og hvítir mávar sjást þar á sveimi. 10.7.2005 00:01
R-listinn gæti sprungið í dag Það getur ráðið úrslitum um framtíð Reykjavíkurlistans hvaða tillögur Samfylkingin leggur fram á viðræðufundi aðildarflokkanna í dag. Fari fulltrúar hennar fram á fleiri sæti en boðið hefur verið getur það þýtt endalok listans. </font /> 10.7.2005 00:01
Hættið í nafni almættisins "Við skulum biðja fyrir þeim sem létust, þeim sem særðust og þeim sem standa þeim nærri. En við skulum líka biðja fyrir árásarmönnunum: Látum Guð snerta hjörtu þeirra," sagði Benedikt XVI páfi þegar hann ávarpaði fólk af svölum sínum við Péturstorg. 10.7.2005 00:01
Óvissa um uppruna tilræðismanna Þrír menn voru handteknir á Heathrow flugvelli í gær á grundvelli heimilda laga um hryðjuverkastarfsemi. Yfirvöld neituðu því þó að handtakan stæði í tengslum við hryðjuverkaárásirnar á fimmtudag. "Þessar handtökur eru ekki á grundvelli upplýsinga um sprengingarnar í Lundúnum," sagði Brian Paddick hjá lögreglunni. 10.7.2005 00:01
Telja öll líkin fundin Lundúnalögreglan telur að tekist hafi að finna öll líkin sem grafin voru undir braki á stöðunum fjórum í London þar sem hryðjuverkin voru gerð á fimmtudag. Talið er að endanleg tala látinna verði 49 eða litlu fleiri. 10.7.2005 00:01
Tvær milljónir flýðu heimili sín Hátt í tvær milljónir einstaklinga þurftu að yfirgefa heimili sín í strandbyggðum Flórída og Alabama þegar fellibylurinn Dennis gekk yfir og olli miklum skemmdum. Fellibylurinn fór yfir á sama stað og fellibylurinn Ivan olli miklum skemmdum fyrir innan við ári síðan. Skaðinn þá var svo mikill að enn er ekki búið að byggja upp allt sem eyddist þá. 10.7.2005 00:01
Minningin er aldrei langt undan Eftir því sem dagarnir líða frá hryðjuverkunum á fimmtudaginn er lífið í höfuðborg Bretlands smátt og smátt að komast í sitt fyrra horf. Margir borgarbúar minntust þeirra sem létust með því að leggja blóm við King's Cross stöðina.</font /></b /> 10.7.2005 00:01
Mikið forskot hægrimanna Kristilegir demókratar og systurflokkur hans í Bæjaralandi fengju 43 prósent atkvæða ef kosið yrði nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem birt var í Berliner Morgenpost í gær. Jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröder kanslara fengi 28 prósent atkvæða og Græningjar, sem mynda stjórn með honum, átta prósent. 10.7.2005 00:01
Aftur að samningaborðinu Norður-kóresk stjórnvöld snúa aftur að samningaviðræðum um lausn kjarnorkudeilunnar á Kóreuskaga, ári eftir að þau hættu að mæta á samningafundi. Þessu lýstu þau yfir eftir leynilegan fund sem fulltrúar Norður-Kóreu og Bandaríkjanna áttu í Peking, höfuðborg Kína, um helgina. 10.7.2005 00:01
42 skot í Reykjavíkurhöfn Rússneski tundurspillirinn Admiral Levtsjenko kom til Reykjavíkur um hádegisbilið í gær í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Tundurspillirinn skaut 21 púðurskoti til heiðurs íslensku þjóðinni við komuna til hafnar og varðskipið Týr, sem lá við landfestar í Reykjavíkurhöfn, svaraði í sömu mynt. 10.7.2005 00:01
Björgunaraðgerðir í London Björgunarmenn reyna nú sitt ítrasta til að bjarga líkum þeirra sem fórust í hryðjuverkaárásunum á London, en fjöldi þeirra liggur í löskuðum lestargöngum langt undir yfirborði jarðar. Staðfest hefur verið að fjörutíu og níu voru myrtir í árásinni en vitað er að rauntalan er hærri þar sem líkin í göngunum eru ekki talin með. 9.7.2005 00:01
Sjálfstæðisflokkkur með meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í borgarstjórn ef nú yrði gengið til kosninga samkvæmt nýrri Gallup könnun. Niðurstöður hennar gefa til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 50,2 prósent atkvæða, R-listinn 49 prósent og Frjálslyndi flokkurinn 0,8 prósent ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag. 9.7.2005 00:01
Árásir á uppreisnarmenn í Írak Bandarískir landgönguliðar hófu í morgun nýja hrynu árása á uppreisnarmenn, en til stendur að reyna að útrýma búðum uppreisnarmanna í Efrat-dalnum. Fimm hundruð bandarískir og hundrað írakskir hermenn taka þátt í aðgerðinni. 9.7.2005 00:01
Spænskir stjórnmálamenn skotmörk Spænskir stjórnmálamenn eru enn á skotmarkalista ETA, aðskilnaðarsamtaka herskárra Baska, þrátt fyrir að samtökin hafi lýst yfir vopnahléi í byrjun júní. Þar var sagt að ekki yrði reynt að ráða stjórnmálamenn af dögum, en nú segja spænsk dagblöð frá því að stjórnmálamenn sem séu í héraðsstjórnum eða ríkisstjórninni séu enn í sigtinu. 9.7.2005 00:01
Fellibylurinn Dennis Þrjátíu og tveir hafa týnt lífi eftir yfirreið fellibylsins Dennis um Karabíska hafið. Dennis skall á Havana á Kúbu snemma í morgun og reif þar upp tré með rótum og rafmagnslaust varð í borginni. Á ferði sinni yfir Kúbu dró úr krafti Dennis sem er langstærsti fellibylurinn sem sést hefur á svæðinu í ár og raunar er hann talinn öflugasti fellibylur sem mælst hefur svo snemma á árinu. 9.7.2005 00:01
Mjótt á mununum í borginni Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í borgarstjórn ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups. Fimmtíu komma tvö prósent þeirra sem tóku þátt sögðust ætla að kjósa Sjálfsstæðisflokkinn, fjörutíu og níu prósent R-listann og núll komma átta prósent Frjálslynda flokkinn. Sexhundruð og sjötíu Reykvíkingar á kosningaaldri voru í úrtakinu og var svarhlutfall 56,1 eitt prósent. 9.7.2005 00:01
Leit hafin að grunuðum Breska lögreglan Scotland Yard og leyniþjónustan MI 5 hafa beðið kollega sína um alla Evrópu að hafa uppi á Mohamed Guerbouzi, fjörutíu og fjögurra ára gömlum íslömskum fræðimanni með breskan og marokkóskan ríkisborgararétt. Talið er að hann geti verið leiðtogi hópsins sem skipulagði hryðjuverkin á fimmtudaginn. 9.7.2005 00:01
Fylgisbreytingin eru tíðindi <font face="Helv"> </font>Þetta er breyting því langt er síðan fylgi Sjálfstæðisflokksins og R-listans hefur mælst svo jafnt sem nú," segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði. Niðurstöður nýrrar fylgiskönnunar benda til þess að fylgi Sjálfstæðisflokksins og R-listans sé nánast jafnt. 9.7.2005 00:01
Fíknefni finnast í Herjólfi Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók tvítugan mann með fíkniefni í fórum sínum við komu Herjólfs til Vestmannaeyja í gærkvöldi þar sem lögregla viðhafði reglubundið eftirlit. Við leit í bifreið mannsins fundust fíkniefni með aðstoð fíkniefnaleitarhunds. 9.7.2005 00:01
Árásirnar afar vel skipulagðar Óttast er að allt að 75 hafi týnt lífi í hryðjuverkunum London. Enn hefur ekki tekist að ná öllum líkum úr lestarvögnunum og á meðan leita grátandi ættingjar að þeim sem saknað er. Flest bendir til að árásirnar hafi verið vel skipulagðar en þær voru gerðar nánast samtímis á þremur stöðum. Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2 var í London og hún segir rannsóknina á hryðjuverkunum eina þá viðamestu sem lögreglan í Lundúnum hefur staðið frammi fyrir. 9.7.2005 00:01
Stígamót gera athugasemd við dóm Magnús Einarsson var dæmdur í níu ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir að bana 25 ára gamalli eiginkonu sinni og barnsmóður, Sæunni Pálsdóttur. Magnús játaði að hafa kyrkt Sæunni með þvottasnúru. Við málsmeðferð kom fram að erfiðleikar voru í hjónabandi þeirra. Í niðurstöðu dómsins segir að ekki verði vísað á bug frásögn Magnúsar um að Sæunn hafi skýrt honum frá kynferðislegum samskiptum sínum við aðra menn, og lýst þeim í smáatriðum. 9.7.2005 00:01
Engin hrossakaup um málskotsrétt Össur Skarphéðinsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórnarskrárnefnd, telur sig bundinn af samþykkt landsfundar flokksins um málskotsrétt forseta Íslands. 9.7.2005 00:01
Versta vikan í viðskiptum Jón Ásgeir Jóhannesson segir efnislega í Sunday Times í dag að síðasta vika hafi verið ein sú versta í hans viðskiptalífi og hann hyggist ekki standa í stórviðskiptum fyrr en sakleysi hans sé sannað. 9.7.2005 00:01
Óánægja með stjórnarhætti "Ég treysti mér einfaldlega ekki lengur til að starfa við núverandi stjórnarhætti hjá félaginu," segir Inga Jóna Þórðardóttir sem gaf skýringu á úrsögn sinni úr stjórn FL-group á hluthafafundi félagsins sem haldinn var á Nordica hótel í gær. 9.7.2005 00:01
Jón Ásgeir ýjar að samsæri Tímasetning á ákærunum er afskaplega undarleg segir Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs í viðtali sem birtist í Sunday Times á morgun. Hann segist þar ætla að bíða með frekari stórviðskipti uns hann hafi sannað sakleysi sitt. 9.7.2005 00:01
Leitað á Langjökli Björgunarsveitir úr Árnessýslu og frá Borgarfirði voru sendar út í gær til að leita þýsks ferðamanns sem fór fótgangandi á Langjökul. Neyðarskeyti barst frá manninum skömmu eftir hádegi í gær og var þyrla Landhelgisgæslunnar send af stað en mjög þungbúið var á jöklinum og því ógjörningur að lenda þar. Voru þá björgunarsveitirnar sendar út. 9.7.2005 00:01
Handtekinn í Herjólfi Tvítugur farþegi var handtekinn með mikið magn fíkniefna við komu Herjólfs til Vestmannaeyja klukkan hálf tíu í fyrrakvöld. Við leit í bifreið hans fundust 400 grömm af hassi, tíu grömm af amfetamíni og sex grömm af kókaíni. Efnin voru falin undir mælaborði, milli sæta og í farangursrými bifreiðarinnar. 9.7.2005 00:01
Stjórnarformaður FL fær ádrepu Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi stjórnarmaður í FL Group, sakaði Hannes Smárason stjórnarformann um að virða hvorki starfsreglur né samþykktir félagsins á hluthafafundi í dag. Þrír stjórnarmenn sögðu af sér í lok júní og þrír aðrir seldu allan hlut sinn í félaginu og hurfu á braut. 9.7.2005 00:01
Miðborg Birmingham rýmd Lögreglan í Birmingham hefur fyrirskipað fólki að yfirgefa skemmtanahverfið í miðborg borgarinnar. Um 30 þúsund manns þurftu því að hverfa á brott. Þetta er gert eftir að lögreglu bárust vísbendingar um að hætta væri á hryðjuverkaárásum. Lögregla umkringdi miðborgina og lokaði öllum leiðum inn í hana. 9.7.2005 00:01
Kennsl ekki borin á líkin Sprengjurnar sem sprungu í þremur neðanjarðarlestum á fimmtudag voru svo öflugar að ekki hafa enn verið borin kennsl á lík þeirra sem létust í árásunum. Þessu greindu breskir lögreglumenn. Staðfest hefur verið að 49 hafi látist og segir lögreglan að tala látinna eigi eftir að hækka eitthvað en draga í efa að hún eigi eftir að hækka mjög mikið. 9.7.2005 00:01
Björgunarfólkið hinar nýju hetjur Bretar tala þessa dagana um nýjar hetjur, fólkið sem fór niður í lestargöngin til að hjálpa þeim sem særðust í sprengjuárásunum á fimmtudag og gátu ekki bjargað sér út sjálfir. 9.7.2005 00:01
Tvenn samtök ábyrgð á hendur sér Abu Hafs al Masri hersveitin, sem segist tengjast al-Kaída, hefur lýst ábyrgð á hendur sér á hryðjuverkunum í Lundúnum. Sannleiksgildið hefur þó ekki fengist staðfest og leggja sérfræðingar í hryðjuverkamálum lítinn trúnað á tilkynninguna þar sem hópurinn hefur áður eignað sér verk sem hann hefur ekki staðið fyrir. 9.7.2005 00:01
142 handteknir Ítalskir lögreglumenn handtóku 142 einstaklinga í viðamiklum aðgerðum í og við Mílanó á föstudag og laugardag. Handtökurnar eru hluti af stórauknum viðbúnaði á Ítalíu í kjölfar hryðjuverkanna í Lundúnum og hótana um hryðjuverk á Ítalíu. 9.7.2005 00:01
Tugir drukkna í Kaspíahafi Rúmlega 32 einstaklingar drukknuðu í Kaspíahafi þegar þeir voru á sundi undan norðurströnd Írans. Lík 32 einstaklinga fundust á sjö stöðum á ströndinni við Kaspíahaf á föstudag að sögn þeirra sem skipulögðu hjálparstarf. 9.7.2005 00:01
Ráðast verður að rótum hryðjuverka Ráðast verður að félagslegum orsökum hryðjuverka ef takast á að vinna bug á þeim sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Orsakirnar sagði hann vera fátækt, skort á lýðræði og áframhaldandi átök í Mið-Austurlöndum. 9.7.2005 00:01
Fjórir fengu að kenna á hornunum Naut stungu fjóra hlaupara með hornum sínum í nautahlaupinu í Pamplona í gær. Fjöldi annarra hlaupara slasaðist lítillega í hlaupinu sem dregið hefur að sér mikinn mannfjölda líkt og undanfarin ár. 9.7.2005 00:01
Erlendir fangar á Íslandi Náin tengsl skapast milli erlendra og íslenskra fanga þegar þeir sitja saman í fangelsum landsins. Skiptar skoðanir eru um hvort eigi að aðskilja þá eins og gert er í Finnlandi. Á Litla Hrauni sitja allir helstu glæpamenn landsins og innan um eru erlendir glæpamenn, sem hafa verið dæmdir af íslensku réttarkerfi fyrir fíkniefnainnflutning, fjársvik, mansal og aðra glæpi. 9.7.2005 00:01