Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvenráðherra sver embættiseið Fyrsti kvenráðherra Kúveits sór í dag embættiseið á kúveiska þinginu við hávær mótmæli íslamskra harðlínumanna. Massouma al-Moubarak, fyrrverandi háskólaprófessor og baráttukona fyrir réttindum kvenna, var í síðustu viku skipuð skipulags- og stjórnsýsluráðherra í Persaflóaríkinu og tekur sæti á kúveiska þinginu sem slík. Moubarak sagði við athöfnina að dagurinn í dag markaði þáttaskil fyrir kúveiskar konur sem lengi hefðu barist fyrir því að fá að taka þátt í stjórnmálum í landinu. 20.6.2005 00:01
Bensínverð ekki verið hærra Olíufélagið Esso hefur hækkað verð á 95 oktana bensíni um tvær krónur lítrann og hefur bensínverð ekki verið hærra hér á landi. Eftir hækkunina kostar lítrinn á 95 oktana bensíni 114,70 krónur á stöðvum með fulla þjónustu en algengt verð er 109,6 krónur í sjálfsafgreiðslu. Lítrinn af dísilolíu kostar 62,10 krónur með þjónustu en 57,10 krónur í sjálfsafgreiðslu. Hin olíufélögin hafa ekki enn fylgt á eftir. 20.6.2005 00:01
LHÍ og Bifröst vinna saman Félagsvísinda- og hagfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst og leiklistardeild Listaháskóla Íslands gerðu á dögunum með sér samkomulag um að þróa með sér samstarf á sviði nemenda- og kennaraskipta, rannsókna og sameiginlegra verkefna. Markmiðið með samningnum er að nemendur beggja háskóla vinni saman að uppsetningu leiksýningar, allt frá listrænni útfærslu til fjárhagsáætlunar. 20.6.2005 00:01
Zuma ákærður fyrir spillingu Ríkissaksóknari Suður-Afríku greindi frá því í dag að Jacob Zuma, fyrrverandi varaforseti Suður-Afríku, yrði ákærður fyrir spillingu. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar þess að fjármálaráðgjafi Zuma var dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir að hafa haft millgöngu um mútur fyrir varaforsetann frá frönskum vopnaframleiðanda. 20.6.2005 00:01
Bjóði fram undir eigin nafni Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hefur skorað á samfylkingarfélaga um allt land að beita sér fyrir því að Samfylkingin bjóði fram í sem flestum sveitarfélögum undir eigin nafni. Fundur kjrödæmisráðsins lýsir þungum áhyggum af þeim sívaxandi vanda sem stafar að atvinnulífinu vegna ruðningsáhrifa stóriðjustefnunnar. 20.6.2005 00:01
Manntjón í óveðri í Afganistan Neyðarástand ríkir í norðausturhluta Afganistans í kjölfar óveðurs og flóða sem gengu yfir Badakhshan-hérað í síðustu viku. Talið er að 29 hafi látist í hamförunum og 40 slasast en auk þess eyðilögðust ríflega þúsund heimili. Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í dag að hún myndi dreifa 88 tonnum af mat og ýmsum öðrum hjálpargögnum á svæðinu, þar á meðal teppum og tjöldum til heimilislausra. 20.6.2005 00:01
Hringferðin hafin Bjarki Birgisson og Guðbrandur Einarsson hófu í gærmorgun gönguferð sína, hringinn í kringum landið. 20.6.2005 00:01
Sagðir ætla myrða sendiherra Yfirvöld í Afganistan greindu frá því í dag að þau hefðu handtekið þrjá menn sem grunaðir eru um að hafa skipulagt tilræði við Zalmay Khalilzad, sendiherra Bandaríkjanna í landinu. Mennirnir eru allir Pakistanar og sagði tengjast íslömskum andspyrnuhópi, en þeir voru handteknir í Laghman-héraði í Austur-Afganistan daginn áður en sendiherrann kom þangað í heimsókn. 20.6.2005 00:01
Kirkjudagar haldnir í annað sinn "Meginmarkmið Kirkjudaga er að kynna kirkjuna," segir Stefán Már Gunnlaugsson, verkefnisstjóri Kirkjudaga. Kirkjudagar verða haldnir í annað sinn um helgina en stefnt er að því að gera dagana að föstum lið í kirkjustarfinu fjórða hvert ár. 20.6.2005 00:01
Dregur úr aðild að stéttarfélögum Aðild að stéttarfélögum fer minnkandi og reyndar er sífellt minna hlutfall af vinnumarkaði í stéttarfélögum. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir að á hinum norðurlöndunum dragi úr þátttöku í stéttarfélögum, þar sé komin samkeppni milli stéttarfélaga með lággjaldastéttarfélögum. 20.6.2005 00:01
Samkeppnisstaðan breytist ekki Fiskútflytjendur telja að samkeppnisstaðan breytist ekki mikið þó að FL Group, Bláfugl og Flugflutningar renni saman. Níels Guðmundsson, framkvæmdastjóri Tros í Sandgerði, telur að samruni fyrirtækjanna þriggja valdi ekki jafn miklum áhyggjum og þróun gengisins. 20.6.2005 00:01
Handtók grunaða mafíósa á Spáni Lögregla á Spáni handtók á dögunum 28 menn sem taldir eru félagar í rússnesku mafíunni en þeir sakaðir um að hafa staðið fyrir umfangsmiklu peningaþvætti á Spáni. Að sögn talsmanns innanríkisráðuneytis Spánar veittu lögregluyfirvöld í Þýskalandi, Frakkland, Belgíu, Bandaríkjunum, Rússlandi og Ísrael aðstoð við handtöku mannanna í einni mestu aðgerð gegn skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. 20.6.2005 00:01
Harður árekstur í Kópavogi Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Beita þurfti klippum til að ná fólki úr annari eða báðum bifreiðunum. Ekki liggur fyrir hvort að slys urðu á fólki að svo stöddu en lögreglan er enn á vettvangi. 20.6.2005 00:01
Ungmenni frædd um alnæmi Þetta er fræðsla sem sífellt þarf að veita," segir Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Alnæmissamtakanna á Íslandi. Fulltrúar samtakanna hittu nú eftir áramótin flesta 9. og 10. bekkinga á landinu og fræddu um alnæmi. 20.6.2005 00:01
Mikil aukning á veltu dagvöru Velta dagvöruverslana var 13 prósentum meiri í maí en í sama mánuði árið 2004, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga, samkvæmt nýjustu mælingu Rannsóknaseturs verslunarinnar. Í tilkynningu frá Rannsóknarsetrinu segir að velta dagvöru hafi aldrei aukist jafn mikið á 12 mánaða tímabili síðan byrjað var að reikna smásöluvísitöluna árið 2001. 20.6.2005 00:01
Kortanúmer héðan voru í hættu Talið er að tölvuþrjótar í Bandaríkjunum hafi komist í kreditkortanúmer í allt að hálft ár áður en lokað var fyrir lekann. Á þriðja hundrað íslensk kortanúmer komust í hendur þjófanna og þurfa eigendur þeirra að fá ný kort. 20.6.2005 00:01
Völdu ráðstefnu vegna mikilvægis Þremenningarnir sem stóðu að mótmælunum á Nordica-hóteli og slettu grænleitu skyri yfir gesti og búnað á álráðstefnu hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir svara ýmsum spurningum varðandi mótmælin. Þar segja þeir meðal annars að álráðstefnan hafi orðið fyrir valinu vegna þess að þetta hafi verið ráðstefna leiðandi manna í áliðnaði og tengdri framleiðslu hvaðanæva að úr heiminum. 20.6.2005 00:01
Valt við að sturta mold Ökumaður vörubíls meiddist lítillega þegar bíll hans valt á hliðina þar sem hann var að sturta mold í pytt í grennd við Nátthaga í Ölfusi klukkan að ganga 10 í gærmorgun. 20.6.2005 00:01
Hass og hraðakstur Upp komu tvö fíkniefnamál um helgina á Sauðárkróki. Lögregla fann við reglubundið eftirlit með ökumönnum, annars vegar áhöld til neyslu efna og hins vegar lítilræði af tóbaksblönduðu hassi. 20.6.2005 00:01
Rafmagnsbilun í Ólafsfirði Rafmagnstruflanir stóðu í um klukkustund í Ólafsfirði frá klukkan fimmtán mínútur gengin í tólf á sunnudagskvöldið. Helgi Jónsson, verkstjóri hjá RARIK á Norðurlandi, segir háspennustreng fyrir hitaveitudælur hafa bilað og því hafi slegið út. 20.6.2005 00:01
Skemmdir eftir árekstur á brú Tveir bílar eru mikið skemmdir eftir að hafa rekist saman síðdegis á sunnudag á einbreiðri brú yfir Hoffellsá. Ökumenn og farþegar sluppu hins vegar við meiðsli, að sögn lögreglu á Höfn í Hornafirði. Í öðrum bílnum voru hjón með tvö börn á ferðalagi, en í hinum var ein kona. 20.6.2005 00:01
Sumarlöng leit að klámi í tölvum Lögreglan í Reykjavík vinnur enn að rannsókn tveggja mála tengdum misnotkun barna og barnaklámi sem upp komu um miðjan mánuðinn. Annar maðurinn er grunaður um að hafa misnotað og myndaðp fjögur stúlkubörn, en hinn var handtekinn og leitað hjá honum í alþjóðlegum aðgerðum Europol. 20.6.2005 00:01
Sektaður fyrir sterasmygl 32 ára gamall maður var síðasta fimmtudag dæmdur til greiðslu 300.000 króna sektar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til að smygla hingað til lands ólöglegum sterum frá Danmörku árið 2003. Þá var manninum gert að greiða sakarkostnað upp á rúmar 800.000 krónur. 20.6.2005 00:01
Borgin sýknuð af launakröfum Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Reykjavíkurborg af kröfum heimilisfræðikennara um vangoldin laun upp á tæpar 700 þúsund krónur. Konan vísaði til samþykktar borgarráðs frá því í júní árið 1981 um að greiða bæri heimilisfræðikennurum tvær klukkustundir á viku fyrir matarinnkaup. 20.6.2005 00:01
Bandalag Hariris sigurvegari Kosningayfirvöld í Líbanon voru rétt í þessu að staðfesta að bandalag Saads Hariris hefði hlotið meirihluta þingsæta í þingskosningum í landinu sem lauk í gær. Bandalagið hlaut öll 28 sætin í fjórða og síðasta hluta kosninganna í gær en það er andvígt afskiptum Sýrlendinga af stjórn landsins. 20.6.2005 00:01
Úr öndunarvél eftir hermannaveiki Sjúklingur með hermannaveiki á Landspítalanum er kominn af gjörgæsludeild og úr öndunarvél. Maðurinn greindist með veikina seinni hluta maímánaðar og hefur verið á gjörgæsludeild síðan, mjög veikur. Hann er á hægum batavegi. Tveir Íslendingar hafa látist úr hermannaveiki hér á landi á þessu ári og fimm greinst með veikina. Síðustu ár hafa að jafnaði tveir til þrír greinst með hermannaveiki sem er í raun svæsin lungnabólga. 20.6.2005 00:01
Bondevik óvinsæll Ný skoðanakönnun Aftenposten sýnir að vinsældir kristilegra demókrata, flokks forsætisráðherrans Kjell Magne Bondevik fara mjög þverrandi. 20.6.2005 00:01
Banatilræði afstýrt Afgönskum leyniþjónustumönnum tókst í gær að afstýra banatilræði við Zalmay Khalilzad, sendiherra Bandaríkjanna í landinu. 20.6.2005 00:01
Rannsókn á Baugi í fullum gangi Rannsókn Ríkislögreglustjóra á Baugi er í fullum gangi þessa dagana. Jón Gerald Sullenberger, sem kærði Baug á sínum tíma, var yfirheyrður vegna málsins í dag. 20.6.2005 00:01
Hrópað að kvenráðherra Fyrsti kvenráðherra Kúvæta sór embættiseið sinn í gær. Hróp voru gerð að henni á meðan athöfninni stóð. 20.6.2005 00:01
Lúxemborgarar kjósa Þrátt fyrir óvissuna sem ríkir um þessar mundir í Evrópusambandinu ætla Lúxemborgarar að halda sínu striki og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrársáttmála ESB 10. júlí næstkomandi. 20.6.2005 00:01
CIA segist vita um bin Laden Porter Goss, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, kvaðst í viðtali við tímaritið Time hafa "prýðilega hugmynd" um hvar Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída, felur sig. 20.6.2005 00:01
Vargöldin heldur áfram Þrátt fyrir hertar aðgerðir bandarískra og íraskra hermanna gegn uppreisnarmönnum síðustu daga héldu þeir síðarnefndu uppteknum hætti í gær. Þá féllu í það minnsta 28 manns í árásum víða um landið. 20.6.2005 00:01
Skyndiflóð á Englandi Eftir miklar rigningar hafa orðið skyndiflóð í norðurhluta Yorkshire á Englandi. Rafmagnslaust varð á svæðinu eftir óveður í nótt, vegasamgöngur lágu niðri í tveimur þorpum og mikið tjón hefur orðið á mannvirkjum. Hjálparsveitir hafa unnið hörðum höndum við að bjarga fólki úr bifreiðum, trjám og ofan af húsþökum. Líkur eru taldar á að flytja þurfi fólk af flóðasvæðinu því að spáð er áframhaldandi votviðri. 20.6.2005 00:01
Stjórnarandstaðan sigraði Stórtíðindi urðu í líbanskri stjórnmálasögu á sunnudaginn þegar andsýrlensku flokkarnir sigruðu í þingkosningunum. Allt útlit er fyrir að Saad Hariri fylgi í fótspor föður síns og verði forsætisráðherra landsins. 20.6.2005 00:01
Tekur hvalurinn æti frá þorski? Hafa vaxandi hvalastofnar hér við land tekið það mikið úr fæðukeðjunni að þorskurinn fær ekki nægilegt æti? Sjávarútvegsnefnd Alþingis lagði þessa, auk fleiri spurninga, fyrir Hafrannsóknastofnunina á fundi í dag. Farið var yfir nýlega skýrslu Hafró um ástand þorsksstofnsins og forsendur fyrir veiðiráðgjöf stofnunarinnar. 20.6.2005 00:01
Olíuverð hækkar enn Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að stíga í gær og fór fatið hæst upp í tæpa sextíu dali. 20.6.2005 00:01
Ók á áhorfendur í ralli Rall í Rúmeníu fékk skelfilegan endi þegar einn ökumannanna missti stjórn á bílnum. Hann þeyttist niður brekku og að áhorfendum sem fylgdust með rallinu aðeins nokkra metra frá akstursbrautinni. Einn maður höfuðkúpubrotnaði og sjö aðrir slösuðust. Meiðsl þeirra voru sem betur fer ekki alvarleg. 20.6.2005 00:01
Engar sættir í Garðasókn "Ég sagði sem var, að sættir hefðu verið reyndar og ekki tekist," segir Matthías G. Pétursson, formaður Garðasóknar, en áfrýjunarnefnd þjóðkirkjunnar hefur sent málsaðilum í deilumálinu í Garðasókn sáttatillögu. 20.6.2005 00:01
Minna bil milli hvalveiðifylkinga Formanni íslensku sendinefndarinnar á fundi Alþjóðahvalveiðráðsins telur að draga sé saman með fylkingum í afstöðunni til hvalveiða. Lögð verður fram tillaga á fundinum í Suður-Kóreu í dag um að hefja hvalveiðar í vísindaskyni. 20.6.2005 00:01
Engin von á leyfi til hvalveiða Íslenska hvalasendinefndin er nú þegar orðin vonlaus um að knýja fram leyfi til hvalveiða í atvinnuskyni á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins. Fundurinn hófst í Uslan í Suður-Kóreu í morgun. 20.6.2005 00:01
Gill segist ekki atvinnumótmælandi Paul Gill, mótmælandinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald eftir að hafa slett skyri á Nordica-hóteli, neitar því að hann sé atvinnumótmælandi. Hann var látinn laus úr gæsluvarðhaldi á laugardaginn og er í farbanni til 1. júlí. 20.6.2005 00:01
Ekki nauðsyn að afturkalla leyfi Skipulagsstofnun telur ekki nauðsynlegt að afturkalla starfsleyfi vegna álversins í Reyðarfirði nema nýtt umhverfismat gerbylti forsendunum fyrir því. 20.6.2005 00:01
Ný höfn á Mjóeyri við Reyðarfjörð Ný höfn, sem er að verða til á Mjóeyri við Reyðarfjörð, verður á næstu árum ein stærsta útflutningshöfn landsins. Fyrstu skipin leggjast þar að bryggju í næsta mánuði. 20.6.2005 00:01
Hafa nær jafnað Qaim við jörðu Bandarískar og írakskar hersveitir hafa nær jafnað íröksku borgina Qaim við jörðu. Aðgerðirnar, sem beinast gegn uppreisnarmönnum, hafa skelfilegar afleiðingar fyrir íbúana. 20.6.2005 00:01