Minna bil milli hvalveiðifylkinga 20. júní 2005 00:01
Lögð verður fram tillaga á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í dag um að hvalveiðum í atvinnuskyni verði stjórnað innan Alþjóðahvalveiðiráðsins. Fundurinn fer fram í Ulsan í Suður-Kóreu og hófst í gær en þá fóru fram nokkrar atkvæðagreiðslur um ýmis mál af stjórnsýslulegu tagi samtakanna og fundarins. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefndarinnar á fundinum, segir að honum finnist sem að draga sé saman með fylkingum hvalveiðisinna og andstæðinga þeirra. "Það var ein atkvæðagreiðsla sem féll bara á einu atkvæði en það var svo sem ekki stórt mál. Langstærsta málið snýst um stjórnunarkerfið um atvinnuveiðar og það er það sem er verið að ræða í bakherbergjum hér á fundinum. Á þessari stundu er ekkert ljóst hvort að við náum því í gegn að stjórnkerfi hvalveiðanna verði komið á en við erum að reyna koma því máli í réttan farveg," segir hann. Þrjá fjórðu hluta atkvæða á fundinum þarf til að aflétta banninu sem hefur gilt í um tuttugu ár. Helstu stuðningsaðilar hvalveiða á fundinum eru auk Íslendinga, Japanir og Norðmenn sem eru eina þjóðin í heiminum sem stundar hvalveiðar í atvinnuskyni en Japanir og Íslendingar stunda þær í vísindalegum tilgangi. Ásta Einarsdóttir, varaformaður íslensku sendinefndarinnar, segir að henni finnist sem miðjuhópur sé að myndast í afstöðunni til hvalveiða þar sem Bandaríkin, Holland, Svíþjóð og Finnland séu meðal stærstu þjóðanna en auk þeirra hafa komið inn ný ríki sem styðja hvalveiðar. Nokkur þeirra höfðu þó ekki atkvæðisrétt á fundinum í gær þar sem þau höfðu ekki greitt gjöld til ráðsins. Þær þjóðir sem eru hvað hörðust í afstöðu sinni gegn hvalveiðum eru Ástralía og Nýja-Sjáland. Í tillögum Hafrannsóknarstofnunar fyrir árið í ár er gert ráð fyrir því að veiddar verði þrjátíu og níu hrefnur í vísindaskyni en þeim verði svo fjölgað í eitt hundrað árið 2006.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira