Völdu ráðstefnu vegna mikilvægis 20. júní 2005 00:01
Þremenningarnir sem stóðu að mótmælunum á Nordica-hóteli og slettu grænleitu skyri yfir gesti og búnað á álráðstefnu hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir svara ýmsum spurningum varðandi mótmælin. Þar segja þeir meðal annars að álráðstefnan hafi orðið fyrir valinu vegna þess að þetta hafi verið ráðstefna leiðandi manna í áliðnaði og tengdri framleiðslu hvaðanæva að úr heiminum. Þeir hafi verið hér vegna þess að þeir telji að Ísland sé rétti staðurinn til að þróa þungaiðnað. Þeir sem verið hafi á ráðstefnunni séu lykilpersónur í ákvarðanatöku, fjármögnun og stefnumótun á bak við Kárahnjúkavirkjun og aðrar þungaiðnaðarframkvæmdir víðar á Íslandi sem þau séu andvíg. Þá segjast þremenningarnir hafa valið grænt skyr þar sem „grænþvottur“ sé hugtak sem oft sé notað til að lýsa yfirborðslegum tilraunum fyrirtækja til að kynna sig sjálf sem umhverfisvæn eða sjálfbær. Skyrið hafi orðið fyrir valinu vegna þess að það sé lífrænt efni og hægt að þvo af og því er ljóst að því var ekki ætlað að valda meiðslum eða óafturkræfum skemmdum. Hópurinn segir að markmið aðgerðanna hafi verið að trufla ráðstefnuna, einkum og sér í lagi málstofu um sjálfbærni, og að senda skýr skilaboð beint til leiðtoga þungaiðnaðarins um að Ísland sé ekki eins notalegt hreiður fyrir þá og þeir virðast halda. Þá hafi þau viljað veita öðrum innblástur til að grípa til aðgerða gegn því samsæri fyrirtækja og stjórnvalda að svíkja af Íslendingum mikið afþeirri stórbrotnu arfleifð sem náttúra landsins er. Þremenningarnir segjast ekki hafa fengið greitt fyrir athæfið heldur séu þau knúin áfram af ást og reiði; ást á nátturunni og reiði í garð þeirra sem reyna að eyðileggja hana vegna persónulegs stundarhagnaðar, hagnaðar hluthafa og valdafíknar. Þau segjast bera jafna ábyrgð á aðgerðunum en ætlunin hafi ekki verið að skemma eignir. Hins vegar felist skelfileg kaldhæðni í því að margir ráðstefnugesta taki í starfi sínu ákvarðanir sem valda gríðarlegum og óafturkræfum skemmdum á þeirri jörð sem við eigum öll og samt eru þeir ekki kallaðir til ábyrgðar, hvorki siðferðislega, lagalega né fjárhagslega og þaðan af síður með einstaklingsbundnum hætti. Fréttastofa Bylgjunnar og Stöðvar 2 hefur reynt var að ná tali af Paul Gill, einum mótmælendanna, í dag eftir að ljóst varð að hann væri laus úr varðhaldi en hann segist ekki ætla að ræða við fjölmiðla og skellti á fréttamann.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira