Ný höfn á Mjóeyri við Reyðarfjörð 20. júní 2005 00:01
Ný höfn, sem er að verða til á Mjóeyri við Reyðarfjörð, verður á næstu árum ein stærsta útflutningshöfn landsins. Fyrstu skipin leggjast þar að bryggju í næsta mánuði. Verktakafyrirtækið Arnarfell hóf hafnargerðina síðastliðið haust. Það er vitanlega ákvörðun um byggingu álvers sem leiddi til þess að samhliða þurfti að gera höfn við álverslóðina. Sveitarfélagið Fjarðabyggð mun eiga og reka höfnina. Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir þetta langstærsta verkefni sem sveitarfélagið hafi ráðist í. Höfnin kosti um milljarð króna og hlutur sveitarfélagsins sé á milli 500 og 600 milljónir. Viðlegukanturinn verður 380 metra langur og sá lengsti utan suðvesturhorns landsins. Aðeins Reykjavík, Hafnarfjörður og Grundartangi verða með lengri bryggju. Nýja höfnin á Mjóeyri mun hins vegar státa af meira dýpi en hinar, yfir 14 metra dýpi, og mun því geta tekið við stærstu skipum. Upphaflega bjuggust menn við því að hún yrði sérhæfð stóriðjuhöfn eins og Straumsvík og Grundartangi. Nú hafa hins vegar bæði Eimskip og Samskip sótt formlega um lóð á hafnarsvæðinu og fyrirspurnir og óskir annarra aðila um athafnarými benda jafnframt til að þarna geti byggst upp ein helsta inn- og útflutningshöfn landsins. Þaðan er ein stysta siglingaleiðin til Evrópu og Austfirðingar sjá fyrir sér að hún muni sem vöruflutningahöfn ekki aðeins þjóna Norður- og Austurlandi heldur öllu landinu. Eins og annað á Austurlandi þessa dagana hefur verkið unnist hratt. Guðmundur segir fyrsta hluta hafnarinn verða til 1. júlí og þá eigi hundrað metra viðlegukantur að vera tilbúinn fyrir skip.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira