Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Haförn undir rafrænu eftirliti Haferninum, sem notið hefur aðhlynningar í Húsdýragarðinum undanfarnar vikur, var sleppt austur í Grafningi í dag. Örninn verður þó undir rafrænu eftirliti fyrst um sinn. 19.2.2005 00:01
Reykjanesvirkjun stækkuð Hitaveita Suðurnesja stefnir að því á næstu árum að tvöfalda afkastagetu Reykjanesvirkjunar svo að hún verði 200 megavött. Virkjunin verður þá ein sú stærsta á landinu. 19.2.2005 00:01
Sandgerði stenst prófið Öll skilyrði sem sjávarútvegsráðuneytið setur um byggðakvóta eru uppfyllt af bæjarstjórn Sandgerðis, að sögn Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. 19.2.2005 00:01
Atlantsolía opnar í Reykjavík Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri opnar fyrstu bensínstöð Atlantsolíu í Reykjavík klukkan hálf þrjú í dag. Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu, segir stefnt að því að opna fleiri stöðvar á höfuðborgarsvæðinu fyrir árslok. 19.2.2005 00:01
Fjögur atkvæði réðu úrslitum Ólafur Loftsson, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, var kosinn formaður Félags grunnskólakennara á aðalfundi félagsins sem haldinn var á föstudag og laugardag á Hótel Selfossi. 19.2.2005 00:01
Þúsundir á Þjóðahátíð Nokkur þúsund mættu á Þjóðahátíð Alþjóðahúss í Perlunni í gær. Hátíðin var haldin í annað sinn og spáir framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, Einar Skúlason, því að hún stækki enn að ári. 19.2.2005 00:01
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í vélsleðaslysi á Landmannaleið í fyrrinótt hét Bjarni Sveinsson og var til heimilis að Þernunesi 7 í Garðabæ. 19.2.2005 00:01
Mistókst að ná peningum Tveir menn ógnuðu starfsfólki með hnífum í Árbæjarapóteki í hádeginu í gær og höfðu á brott með sér talsvert magn að örvandi lyfjum. 19.2.2005 00:01
Þriggja tonna tjakki stolið Brotist var inn í fiskvinnslufyrirtæki á Reykjanesi í fyrrinótt og hvarf þjófurinn á brott með verkfærakistu á hjólum, rafsuðutæki, hátíðnisuðutæki og þriggja tonna tjakk. 19.2.2005 00:01
Áhættuatriði endaði illa Tvítugur maður fékk höfuðáverka þegar hann var að leika í myndbandi sem félagar hans voru að taka upp í Siglufjarðarskarði um fimmleytið í fyrradag. 19.2.2005 00:01
Bein grænlenskra á Skriðuklaustri? Hugsanlega skýrist á morgun hvort bein sem fundust við fornleifauppgröft á Skriðuklaustri séu af grænlensku fólki. Komi það á daginn er það skýr vísbending um að tengsl Íslendinga og Grænlendinga hafi verið meiri en áður var talið. 19.2.2005 00:01
SÞ rannsakar morðið á Hariri Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, ætlar að senda hóp sérfræðinga til Líbanons til að rannsaka morðið á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra landsins. 19.2.2005 00:01
756 prestar áskaðir um misnotkun Rómversk-kaþólsku kirkjunni í Bandaríkjunum bárust á síðasta ári 1.092 nýjar ásakanir um kynferðislega misnotkun presta á börnum. 19.2.2005 00:01
Kosið um stjórnarskrá ESB Þjóðaratkvæðagreiðsla um nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins fer fram á Spáni í dag. Spánverjar verða þar með fyrsta þjóðin til að kjósa um stjórnarskrána en tíu aðrar þjóðir innan sambandsins hafa tilkynnt að þær ætli að bera hana undir þjóðaratkvæði.Ef eitt ríki neitar að staðfesta stjórnarskrána tekur hún ekki gildi. 19.2.2005 00:01
Norður-Kórea vill engar viðræður Stjórnvöld í Norður-Kóreu útiloka nú tvíhliða viðræður við Bandaríkjastjórn um kjarnorkuætlun landsins. Kínverska fréttastofan Xinhua hafði þetta eftir embættismanni norður-kóreska utanríkisráðuneytisins í gær. 19.2.2005 00:01
50 létust í sprengjuárásum Að minnsta kosti 50 manns létust í sprengjuárásum uppreisnarmanna í Írak í gær þegar Ashoura, trúarhátíð sjía-múslíma, náði hámarki. Meira en hundrað manns særðust í árásunum. Talið er að súnní-múslímar hafi skipulagt árásirnar. 19.2.2005 00:01
Dragnótaveiðar innst í Eyjafirði Smábátasjómenn við Eyjafjörð eru ævareiðir vegna heimildar sem sjávarútvegsráðuneytið veitti til dragnótaveiða í innanverðum Eyjafirði. Ráðuneytið vildi koma til móts við fiskeldi Brims en smábátasjómenn segja afkomu sinni ógnað og lífríki Eyjafjarðar og náttúruminjar séu í hættu. 19.2.2005 00:01
Grásleppuvertíðin stytt Vegna verðfalls á grásleppuhrognum og umframbirgða frá síðustu vertíð telur Landssamband smábátaeigenda nauðsynlegt að takmarka framboð á hrognum í ár. 19.2.2005 00:01
Ekið á annan tug hreindýra Nýtt vandamál blasir við á Austfjörðum. Á síðustu mánuðum hefur verið keyrt á á annan tug hreindýra og ástæðan er m.a. sögð aukin umferð á hreindýrasvæðum. 19.2.2005 00:01
Flugvél með fallhlíf Öruggasta einkaflugvél í heimi rennur í stríðum straumi út úr verksmiðjunni í Minnesota í Bandaríkjunum. Íslendingurinn Snorri Guðmundsson á þátt í hönnun vélarinnar sem er framleidd með fallhlíf fyrir alla vélina. 19.2.2005 00:01
Lést í vélsleðaslysi Karlmaður á vélsleða beið bana þegar hann ók fram af hárri hengju á Landmannaleið til móts við Sauðleysu seint í gærkvöldi. Félagi hans, sem var á öðrum sleða, þurfti að aka langa leið til að komast í síma og kalla á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þegar hún lenti á vettvangi með lækni var maðurinn látinn og er talið að hann hafi látist samstundis. Snjókoma og slæmt skyggni var þegar slysið varð. 18.2.2005 00:01
Þremur mönnum rænt í Írak Tveim blaðamönnum frá Indónesíu var rænt í borginni Ramadi í Írak fyrr í vikunni. Talsmaður stjórnvalda í Írak greindi frá þessu í morgun. Bílstjóra blaðamannanna var einnig rænt sem og bílaleigubíl sem þeir höfðu á leigu. 18.2.2005 00:01
Þrennt á slysadeild eftir árekstur Þrír voru fluttir á slysadeild Landsspítalans eftir harðan árekstur tveggja bíla á mótum Þrengslavegar og Suðurlandsvegar í gærkvöldi. Enginn er þó lífshættulega slasaður. Vegna skyndilegrar hálku rann bíll af Þrengslavegi inn á Suðurlandsveg í veg fyrir bíl þar. 18.2.2005 00:01
Handtekin vegna bankaráns Lögreglan á Írlandi handtók í gær sjö manns sem grunaðir eru um að hafa framið mesta bankarán í sögu Norður-Írlands fyrir tveim mánuðum. Nærri 300 milljónir króna fundust í híbýlum mannanna, en það er þó ekki nema brot af því sem stolið var. 18.2.2005 00:01
Bílaflutningabíll ók á jeppa Fimm bílar skemmdust, þar af kastaðist einn mannlaus bíll út í móa og hafnaði á hvolfi, þegar jeppi og bílaflutningabíll með þrjá bíla á dráttarvagni lentu í hörðum árekstri í Miðfirði í gærkvöldi. Ökumenn flutningabílsins og jeppans sluppu ómeiddir þótt jeppinn sé gjörónýtur. 18.2.2005 00:01
Sonur Sharons sóttur til saka Dómsmálaráðherra Ísraels ákvað í gær að höfða mál á hendur syni Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels. Omri Sharon er gefið að sök að hafa sett á stofn fyrirtæki erlendis sem sendi síðan fjármagn í kosningasjóði föður hans. Þá er hann einnig sakaður um frekara bókhaldssvindl og meinsæri. 18.2.2005 00:01
Björguðu þriggja marka dreng Læknum í Bandaríkjunum hefur tekist að bjarga dreng sem vó aðeins þrjár merkur við fæðingu. Hjarta drengsins var á stærð við vínber þegar hann fæddist og þurfti að víxla hjartaslagæðum svo að hann myndi lifa af. Jafnlétt barn hefur aldrei áður lifað slíka aðgerð af. 18.2.2005 00:01
Tókust á við lögreglumenn Lögreglumenn í Keflavík þurftu að beita piparúða á tvo ofstopamenn á veitingahúsi í bænum laust eftir miðnætti eftir snörp átök við þá. Við úðann dösuðust mennirnir svo lögregla kom járnum á þá og flutti þá í fangageymslur þar sem þeir sofa úr sér ölvímu. Einn lögreglumaður þurfti að leita læknis í kjölfar þess að annar mannanna sparkaði harkalega í hann. 18.2.2005 00:01
Allir hópar verði í ríkisstjórn Ibrahim al-Jaafari, sem talið er líklegt að verði forsætisráðherra Íraks, segir að í nýrri ríkisstjórn verði að vera fulltrúar allra helstu hópa í landinu. Jaafari fer fyrir bandalagi sjíta en hann segir að í ríkisstjórninni verði einnig Kúrdar og súnnítar þrátt fyrir að þeir síðarnefndu hafi nær ekkert fylgi hlotið í nýafstöðnum kosningum. 18.2.2005 00:01
Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu Enn var brotist inn í íbúðarhús í Hafnarfirði í gær og þaðan stolið verðmætum. Nokkuð hefur verið um innbrot þar að undanförnu, gjarnan um hábjartan daginn, og stórir hlutir á borð við sjónvörp og tölvur borin út án þess að nokkur virðist taka eftir því. Fyrr í vikunni var heilli búslóð stolið úr bílskúr í Breiðholti þar sem hún var í geymslu. 18.2.2005 00:01
Glitský á austurhimni í Reykjavík Mjög falleg glitský sáust á austurhimninum frá Reykjavík séð á níunda tímanum í morgun, en þau sjást að jafnaði aðeins á nokkurra ára fresti frá Reykjavík. Að sögn Friðjóns Magnússonar eru þetta líka kölluð perlumóðuský, dregið af litbrigðunum sem sjást þegar horft er inn í perlumóðuskel. 18.2.2005 00:01
Sprengdi sig í loft upp í mosku Sjálfsmorðsárásarmaður drap fjóra hið minnsta og særði tuttugu og tvo inni í mosku sjíta í suðurhluta Bagdad í morgun. Sjónarvottar segja að árásarmaðurinn hafi borið sprengjubelti um sig miðjan og kveikt í því þegar hann kom inn í moskuna. Sjítamúslimar fagna þessa dagana Ashura sem er mikilvæg trúarhátíð til minningar um píslarvætti barnabarns Múhameðs spámanns. 18.2.2005 00:01
Börn sögð hríðfalla vegna kulda Talið er að ríflega eitt þúsund afgönsk börn hafi látið lífið úr sjúkdómum sem rekja má til óveðurs og óvenjumikils snjóþunga og kulda um miðbik landsins síðustu vikurnar. Hjálparstarfsmenn sem könnuðu aðstæður í sextán þorpum í Ghor-héraði segja að ástandið sé skelfilegt og börn undir fimm ára aldri hríðfalli. 18.2.2005 00:01
Árás á aðra sjítamosku í Bagdad Árás var gerð á aðra sjítamosku í Bagdad í Írak fyrir stundu með þeim afleiðingum að að minnsta kosti einn lést og fjórir særðust. Moskan er í vesturhluta Bagdad og samkvæmt lögreglu var eldflaug skotið á hana. Fyrr í morgun myrti sjálfsmorðsárásarmaður að minnsta kosti fjóra og særði 22 inni í mosku sjíta í suðurhluta Bagdad. 18.2.2005 00:01
Tugir látnir í árásum á moskur Tugir liggja í valnum eftir árásir sem voru gerðar á að minnsta kosti tvær moskur sjítamúslíma í Bagdad í Írak í morgun. Sjítar halda eina mikilvægustu trúarhátíð sína þessa dagana. 18.2.2005 00:01
Löng bið eftir skilríkjum Fischers Útlendingastofnun lét kalla á stuðningsmenn Bobbys Fischers úr beinni útvarpsútsendingu í desember til þess að spyrja um fæðingardag hans og annað vegna skilríkja handa honum. Síðan hefur ekkert gerst. Forstjóri Útlendingastofnunar ætlar að funda með stuðningshópnum eftir helgi. 18.2.2005 00:01
Negroponte stjórnar leyniþjónustu John Negroponte, sendiherra Bandaríkjanna í Írak, hefur verið skipaður í stöðu yfirmanns allrar leyniþjónustu í Bandaríkjunum. Negroponte mun hafa yfirumsjón með öllum fimmtán leyniþjónustustofnunum Bandaríkjanna, meðal annars bæði FBI og CIA. Staðan er ný af nálinni, en hún var sett á laggirnar í kjölfar árásanna 11. september árið 2001. 18.2.2005 00:01
Mótmælir reykingabanni Frjálshyggjufélagið hefur sent frá sér ályktun vegna lagafrumvarps um bann við reykingum á veitinga- og skemmtistöðum. Þar ítrekar félagið að það sé óréttlætanlegt að ríkið banni fólki að stunda löglegar athafnir á eign sinni. 18.2.2005 00:01
Brúnni yfir Kaldaklifsá lokað Brúnni yfir Kaldaklifsá, austur undir Þorvaldseyri, hefur verið lokað vegna vatnavaxta. Búist er við að hún verði opnuð aftur síðar í dag. 18.2.2005 00:01
Undrast áform iðnaðarráðherra Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lýsir í tilkynningu furðu sinni á bollaleggingum Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um sameiningu orkufyrirtækja. Þingflokkurinn mótmælir harðlega öllum áformum ráðherrans um frekari markaðs- og einkavæðingu almannaþjónustu á sviði orkuframleiðslu og orkudreifingar á næstu árum. 18.2.2005 00:01
Pútín treystir Írönum Vladímír Pútín, forseti Rússland, lýsti því yfir í dag að hann væri sannfærður um að Íranar hygðust ekki smíða kjarnorkuvopn heldur nýta kjarnorkuframleiðslu sína eingöngu í friðsamlegum tilgangi. Þetta lét forsetinn hafa eftir sér fyrir fund með aðalsamningamanni Írana í kjarnorkudeilum Írans við Bandaríkin og Evrópusambandið. 18.2.2005 00:01
Fimmta kjarnorkuverið í Finnlandi Finnska ríkisráðið hefur veitt Industrins Kraft leyfi til að byggja fimmta kjarnorkuverið í Finnlandi. Bygging versins, sem mun bera heitið Olkiluoto 3, mun sennilega hefjast nú þegar. Pólitísk ákvörðun um bygginguna var tekin í þinginu fyrir þremur árum og sveitarfélagið Eurajoki, þar sem verið kjarnorkuverður byggt, veitti fyrr í þessari viku byggingarleyfi. 18.2.2005 00:01
Mágurinn yfirmaður leyniþjónustu Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, hefur skipað mág sinn yfirmann leyniþjónustu hersins. Bashar al-Assad erfði forsetaembættið eftir föður sinn, Hafes al-Assad, og því má segja að fjölskylda þeirra sé æði valdamikil í Sýrlandi. 18.2.2005 00:01
Handtekinn fyrir að hjóla nakinn Tuttugu og fjögurra ára gamall maður var handtekinn á Nýja-Sjálandi síðastliðinn sunnudag fyrir að hjóla um berrassaður á reiðhjóli sínu. Hann var að mótmæla of mikilli bílanotkun og mengun sem af henni stafaði. Honum var gert að mæta fyrir dómara vegna ósiðsamlegs framferðis og hann mætti samviskusamlega - enn þá berrassaður. 18.2.2005 00:01
Fegurðardrottning tapar máli Fyrrverandi þátttakandi í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland.is tapaði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur máli sem hún höfðaði á hendur aðstandendum keppninnar og íslenska ríkinu. Stúlkan hafði tekið þátt í kynningu á torfærukeppni og slasast þegar hún keyrði yfir sandbing. Hún krafðist bóta upp á tæplega tvær milljónir króna. 18.2.2005 00:01
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent