Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Samúel Karl Ólason skrifar 6. október 2026 23:00 Ríkisstjórn Trumps hefur varið tæplega einum og hálfum milljarði króna af skattfé í pólitískar auglýsingar, sem ekki stendur til að endurgreiða. AP/Alex Brandon Donald Trump ætlar ekki að endurgreiða bandaríska ríkinu fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í sjónvarpi vestanhafs. Í gær sagði forsetinn að pólitísk aðgerðanefnd hans, MAGA Inc, myndi greiða fyrir auglýsingarnar sem hafa verið harðlega gagnrýndar, þar sem þær hafa verið fjármagnaðar með skattfé og þykja mjög pólitískar.
Ólöglegt ætti að vera að verja skattfé í framleiðslu og birtingu auglýsinga sem þessara. Nú segja starfsmenn forsetans við blaðamenn vestanhafs að hann ætli ekki að endurgreiða þær rúmu tíu milljónir dala sem búið er að verja í auglýsingarnar, heldur hafi Trump átt við að MAGA Inc myndi greiða fyrir þær auglýsingar sem verða birtar á næsta mánuði, fram að þingkosningunum 3. nóvember. Heimavarnaráðuneytið hefur varið tæpum tólf milljónum dala af opinberu fé í auglýsingarnar, samkvæmt AP-fréttaveitunni, en fyrstu auglýsingarnar voru birtar í síðasta mánuði. Til stóð að verja um tuttugu milljónum í þær fram að kosningunum. Það var Trump sjálfur sem skipaði starfsfólki sínu að fjármagna auglýsingarnar með skattfé en ein auglýsingin, sú fyrsta sem var birt, sýnir myndir af Trump sjálfum á meðan hann heyrist tala um að hann og bandamenn hans muni sigra kommúnista, sósíalista, djúpríkið og aðra meinta andstæðinga sem finna megi innan Bandaríkjanna. Undir því má svo heyra kór syngja „Love me“ eða „elskið mig“. Talsmenn heimavarnaráðuneytisins og ríkisstjórnarinnar hafa staðhæft að ekki sé um pólitískar auglýsingar að ræða, heldur sé um að ræða upplýsingaherferð í almannaþágu. Sjálfur hefur Trump haldið því fram að þetta séu auglýsingar fyrir Bandaríkin. Auglýsingin og aðrar svipaðar hafa birst í útsendingum margra bandarískra sjónvarpsstöðva. Allar enduðu á skilaboðum um að þær hefðu verið kostaðar af ríkisstjórn Bandaríkjanna. Þetta hefur verið gagnrýnt af bæði þingmönnum Demókrataflokksins og Repúblikanaflokksins. Í gær lýsti Trump því svo yfir að MAGA Inc myndi greiða fyrir auglýsingarnar en útskýrði ekki það sem komið hefur í ljós í dag, að ekki standi til að endurgreiða milljónirnar tólf, sem samsvara tæplega einum og hálfum milljarði króna. Trump var spurður út í það í dag hvort hann ætlaði að endurgreiða ríkinu auglýsingarnar. Þá svaraði hann að þær væru mjög góðar og góðar fyrir Bandaríkin. Hann sagði að ákveðið yrði seinna hvort ríkið fengi endurgreitt. Q: Why did you change your mind on the taxpayer funded ads and will you reimburse the government for the millions already spent? Trump: Well, the, the ads were really good… https://t.co/zJ4Zw2brFU— Acyn (@Acyn) October 6, 2026 Trump hefur í gegnum MAGA Inc safnað fúlgum fjár. Aðgerðanefndin og aðrar henni tengdar áttu í aðdraganda þingkosninganna sem fara fram í næsta mánuði um fjögur hundruð milljónir dala þegar mest var. Sjá einnig: Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Staða Repúblikana þykir slæm víða um Bandaríkin og hefur það að miklu leyti verið rakið til mikilla óvinsælda Donalds Trump, forseta. Þingkosningar munu fara fram í byrjun nóvember en baráttan snýst um hverjir munu stjórna báðum deildum þings næstu tvö árin. Demókratar vilja rannsóknir Chuck Schumer, leiðtogi Demókrataflokksins í öldungadeildinni, kallaði í dag eftir því að málefni auglýsinganna yrði tekið til rannsóknar. Þá sagðist hann ætla að tilkynna Trump til kosningaeftirlits Bandaríkjanna, vegna þess að forsetinn ætlaði að láta MAGA Inc. greiða fyrir auglýsingarnar í framtíðinni. Kosningalög og reglur um pólitískar aðgerðanefndir (Super PAC) segja að frambjóðendur og stjórnmálamenn megi í raun ekki stýra aðgerðum aðgerðanefnda með beinum hætti. „Með þessum fáránlegu áróðursauglýsingum er Trump að feta í fótspor erlendra einræðisherra sem hann ber iðulega lof á, eins og Vladimírs Pútín og Kim Jong Un,“ segir Schumer í yfirlýsingu. Schumer segir að Trump hafi brotið lög með því að láta ríkið borga fyrir auglýsingarnar og einnig með því að láta MAGA Inc greiða fyrir þær fram að kosningum. Þetta þurfi að rannsaka og sömuleiðis þurfi að komast til botns í því hvaða opinberu embættismenn komu að framleiðslu auglýsinganna og dreifingu þeirra.
Bandaríkin Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira